Veiðin fyrstu vikuna í DEE

Enn færum við ykkur fréttir af Dee, enda gaman að geta sagt fréttir af laxveiði sem er komin í gang. Sérlega gaman finnst okkur að skoða myndir af vel höldnum nýgengnum laxinum og ekki er laust við að það ýti undir skjálfta í kasthendinni. Fyrstu vikuna í Dee komu á land 42 laxar en aðstæður voru mjög erfiðar, lágt hitastig …

Fréttir af opnun DEE

Menn voru nokkuð kátir á bakkanum við DEE í opnuninni þrátt fyrir snjóföl á bakkanum. Aðstæður á opnunardaginn voru prýðilegar að sögn veiðimanna og komu þá á land 11 nýgengnir laxar eða svokallaðir „Springers“. Auk þessa veiddust hátt í hundrað svokallaðir „Kelts“ eða það sem við myndum hreinlega kalla niðurgöngulaxa. Annan dag veiðanna brast á með slydduhraglanda og voru aðstæður …

DEE í Skotlandi opnar í dag !

Þó rétt sé nýslegið í febrúar þá fara nokkrir Skotar með glansbónaðar tvíhendurnar sínar ásamt vinum í dag og opna hina fornfrægu á – DEE. Við hér á skrifstofunni bíðum spennt frétta úr ánni og leyfum okkur að vera hóflega bjartsýn. Við hleruðum á tali heimamanna að torfa af höfrungum hefði sést við árósinn og þeir töldu víst að höfrungarnir …

Vorveiðin er handan við hornið

Þegar ég skóf bílinn minn í morgun, líklega í milljónasta skiptið þennan veturinn var mér hreint ekki iðagrænt vorið í huga. En staðreyndin er nú samt sú að það eru bara tæpir tveir mánuðir í að vorveiðisvæðin opna. Tveir mánuðir! Mikið óskaplega hlakkar síðuiritara til að komast út og bleyta í færi og svo er líklegast raunin með okkur flest …

Tungufljót er ódýr laxveiðikostur

Fyrir þá veiðimenn sem eru að leita að budduvænum veiðikosti vildum við benda á Tungufljót í Biskupstungum. Eins og við höfum ritað um er fljótið á uppleið, en verði veiðileyfa verður áfram stillt í hóf. Hér má lesa greinarstúf um fljótið í fortíð og framtíð: Tungufljót í Biskupstungum er á uppleið Veiðin síðastliðið sumar var þokkaleg þó fljótið væri lítið stundað. …

DEE í Skotlandi opnar von bráðar

Nú erum við komin réttu megin við jólin og heldur fer að styttast í fyrsta kastið. En fyrir óþreyjufulla viljum við benda á skemmtilegan kost í laxveiði hjá vinum okkar í Skotlandi. Við hjá Lax-Á höfum boðið upp á ferðir í ána DEE í Skotlandi til fjölda ára. Áin er ein af fjórum bestu laxveiðiám Bretlandseyja og veiðarnar þar eiga sér …

Litið um öxl – gleðilegt ár

Um áramót er við hæfi að líta um öxl. Og þó, sumir vilja helst ekkert tala um veiðina í sumar. Verður 2014 og 15 eins og árin 2012 og 13 þegar veiðin var arfaslök það fyrra og metveiði á landinu það síðara? Þá eigum við von á fjöri næsta sumar! Árið var langt því frá einhver hörmung, það fengu margir …

Ásgarður Silungasvæði

Silungsveiðin í Ásgarði hefur verið vinsæll kostur á vorin en svæðið opnar fyrir óþreyjufulla veiðmenn þann 1. apríl ár hvert. Fyrst um sinn er veiði leyfð allt frá markargirðingu við Álftavatn og upp allt Ásgarðssvæðið að veiðimörkum við Syðri Brú. Eftir 10. Júní er veiði eingöngu leyfð á svokölluðu silungasvæði, þá afmarkast svæðið af víkinni neðan gamla veiðihússins og að markargirðingunni …

Stórlaxinn er í Kola ánni

Til fjölda ára höfum við hjá Lax-Á boðið upp á veiðiferðir til Rússlands, nánar tiltekið á Kolaskaga en þar um slóðir má finna margar glæsilegar laxveiðiár. Einna þekktust er áin Kola sem allur skaginn dregur nafn sitt af. Kola er þekkt fyrir ógnarstóra fiska og þar veiðast fiskar yfir 40 pund ár hvert. Tuttugu pundarar – plús eru algengir og …

Tungufljót silungasvæði

Silungasvæði Tungufljóts hefur verið á uppleið síðustu ár og þeir sem hafa lagt sig fram hafa gert oft á tíðum góða veiði. Svæðið er afar víðfemt og nær frá ármótum Einholtslæks og Tungufljóts og í raun eins langt upp með fljótinu og menn kæra sig um að fara. Vel rúmt er um þær 8 stangir sem er leyft að veiða …