Blanda I hefur skipað sér öruggan sess sem ein af bestu laxveiðiám Íslands. Vandfundin er sú á sem gefur betri veiði í upphafi tímabils og er stórlaxastofninn i ánni sérlega öflugur.

Yfir hábjargræðistímann eða „prime time“ er Blanda þekkt fyrir góðar aflahrotur .

Reynir og Árni með lax úr Blöndu

Reynir og Árni með lax úr Blöndu

Dammurinn og Breiðan eru fornfrægir veiðistaðir sem gefa góða veiði allt tímabilið.

Blanda er öflugt vatnsfall á íslenskan mælikvarða, krefjandi á sem geymir sprettharðan og öflugan stofn.

Veiðireglur í Blöndu:

Allt tímabilið er eingöngu leyfð fluga með flugustöngum. Spúnn og maðkur er bannaður á öllu svæðinu!

Kvóti:

Einn hængur undir 68 cm á stöng á vakt, ekki má færa kvóta milli vakta.

Meðalvigt: Veiddra laxa er um 4 kg.

Meðalveiði: Síðustu tíu ára er 2212 laxar á ári úr allri ánni.

Staðsetning: Norðvesturland. Blanda rennur í gegnum Blönduós, um 240 km frá Reykjavík.

Veiðihús:

Veiðimenn gista í hinu glæsilega veiðihúsi Hólahvarfi.

Í húsinu er að finna tveggja manna herbergi öll með sér baði.

Á veröndinni eru heitir pottar og hægt er skella sér í saunu kjósi menn það frekar. Setustofan er rúmgóð og þægileg og fallegt útsýni er yfir ána.

Athugið að Hólahvarf er staðsett á svæði tvö við Blöndu!

Ekið er í gegn um Blönduós og áfram þjóðveginn inn dalinn þar til komið er að skilti sem vísar á veiðihúsið á hægri hönd.

Tímabil:  ATH Nýtt 2020! 5. júní – 24. júní og 3,08 – 5.sept er svæði I selt sér. Annars er það selt með svæðum II og III í pakka.

Stangarfjöldi: 4 stangir, tvær á hvorum bakka.

Seld holl/dagar: Seldar eru holl frá hádegi til hádegis með gisti og fæðisskyldu.

Jóhann Davíð með lax úr Blöndu

Daglegur veiðitími:
7–13 og 16–22 (20. jún.–20. ág.)
7–13 og 15–21 (21. ág.–20. sept.)

Veiðitölur:

Veiðitölur 2009: 2.413 laxar
Veiðitölur 2010: 2.777 laxar
Veiðitölur 2011: 2.032 laxar
Veiðitölur 2012: 832 laxar
Veiðitölur 2013: 2611 laxar
Veiðitölur 2014: 1931 lax
Veiðitölur 2015: 4829 lax
Veiðitölur 2016: 2386 laxar
Veiðitölur 2017: 1433 laxar
Veiðitölur 2018: 870 laxar

Meðalveiði 10 ára: 2212 laxar

 

Hentugustu veiðitæki: Tvíhenda 13-15” fyrir línu 9-11.

Bestu flugur: Gárutúbur, Sunrise Shadow, Munroe Killer, Francis, Snældur ofl.

Veiðikort: Blanda 1

Staðhættir og aðgengi:

Ekið er upp á svæði I frá Blönduósi að vestanverðu við Blöndu. Ekið upp að og í gegnum hesthúsabyggð þar sem vegurinn liggur að Blöndu og endar á bílastæði. Þaðan er örstuttur gangur að ánni.

Þeir sem eiga veiði á austurbakkanum fara sömu leið og komast þeir yfir á göngubrú, beint neðan við bílastæði.

Blanda er mjög vatnsmikil og straumhörð á, því hvetjum við veiðimenn til að fara mjög varlega og nota vaðstaf og björgunarvesti við veiðar.

Vatnsstaða: 

Þegar líða tekur á sumarið er árviss viðburður að hækka tekur í Blöndulóni sem nær hámarki þegar vatnsborðið fer að flæða yfir stífluna við lónið.

Er þá talað um að Blanda fari á yfirfall. Síðustu ár hefur einnig borið á því að vélar eru keyrðar í virkjun sem getur haft grugg í för með sér.

Þegar Blanda fer á yfirfall eða vélar eru keyrðar hækkar yfirborð árinnar nokkuð og litast hún talsvert með þeim afleiðingum að áin verður erfiðari til veiða.

Verð veiðileyfa í ágústmánuði tekur mið af þeim möguleika að áin geti hugsanlega orðið illveiðanleg, enda ómögulegt að spá nokkuð fyrirfram um hvort eða hvenær áin fari á yfirfall eða vélar eru keyrðar.

Lax-Á getur því ekki borið ábyrgð á ástandi vatnsins þegar veiðimenn eru við ánna.

Á undanförnum árum hefur verið mjög misjafnt hvenær áin hefur litast, sumarið 2015 litaðist áin t.a.m. lítið sem ekkert og gerðu margir frábæra veiði það árið langt fram í september.

Bókanir og nánari upplýsingar:

Skrifstofa Lax-á, s: 531 6100


Staðsetning