Tungufljót gaf þegar best var yfir 2800 laxa árið 2008 þegar sleppingar skiluðu sér af krafti. Nú hefur ræktunarátak við ána aftur verið sett í fullan gang og því má búast við aukinni veiði á næstu árum. Þrátt fyrir engar sleppingar voru margir að fá ágætis veiði úr fljótinu árið 2014 og komu meðal annars á land þrír fiskar yfir 20 pund. Á meðan áin er að ná fyrri styrk verður verði veiðileyfa stillt í hóf og hægt er að gera mjög góð kaup með því að fjárfesta í leyfi í Tungufljóti

Laxasvæðið í Tungufljóti nær frá fossinum Faxa fram hjá Reykholti og niður að brú. Þetta veiðisvæði er að mestu ókannað og því erfitt að fullyrða um bestu veiðistaði

Staðsetning:
Um 85 km frá Reykjavík, keyrt er í gegnum Hveragerði til Grímsnes, haldið beint áfram í gegnum Reykholt og um 4 km áfram í átt að fossinum Faxa sem er efsti veiðistaðurinn á laxasvæðinu í Tungufljóti.

Veiðisvæði VesturbakkaTungufljóts:  TVÆR stangir eru á vesturbakka Tungufljóts. Frá Faxa og niður að Borgarholtshyl

Veiðisvæði AusturbakkaTungufljóts:  TVÆR stangir eru á austurbakka Tungufljóts. Frá Faxa og niður að Borgarholtshyl

Stangafjöldi: 2 stangir. Seldir eru heilir dagar þar sem ekki er veiðihús á svæðinu. Hægt er að kaupa stakar stangir.

Tímabil: 24. júní – 1 október

Daglegur veiðitími: 
7-13 og 16-22 (24. júní – 20 ágúst)

7-13 og 15 21 (20 ágúst – 19 september)

8-20 (20. september-1. október)

Meðalvigt: 5 pund

Leyfilegt agn: Aðeins fluga

Kvóti: Tveir smálaxar á stöng á dag, öllum laxi yfir 70cm ber að sleppa!

Veiðitæki: Tvíhenda 12-14″, sökkendi

Bestu flugurnar: Snælda 1/2″-1″ allir litir, Frances túpur allir litir sérstaklega með keiluhaus, Collie dog og Sunray shadow

Veiðihús: Ekkert veiðihús fylgir með veiðileyfum. Jónas veiðivörður s. 694 7444

 

L1020108DSC00094TUNGL1020081IMG_5396L1020492L1020084IMG_5381