Kynning á Stóru Laxá

Margir þekkja Stóru Laxá og fegurðina sem hún hefur upp á að bjóða. Næstu helgar mun fara fram veiðistaðakynning á öllum svæðum Stóru Laxár þar sem farið verður yfir veiðistaðina, helstu tökustaði og allar þær upplýsingar sem koma sér vel þegar veitt er í ánni. Þá gefst veiðimönnum, sér að kostnaðarlausu, að kynnast ánni á staðnum og læra á hana.

Árni Baldursson mun halda kynninguna ásamt reyndum leiðsögumönnum sem þekkja svæðið í þaula.
20 manns komast að á hverja kynningu og hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á arnibald@lax-a.is
Kynningin verður á eftirfarandi svæðum:

Sunnudaginn 17. maí 2020, kl. 13.00 á Stóru Laxá svæði 1&2
Sunnudaginn 24. maí 2020, kl 13.00 á Stóru Laxá svæði 3
Sunnudaginn 31. maí 2020, kl. 13.00 á Stóru Laxá svæði 4

Mæting er kl. 13.00 í Árnesi á bensínstöðina/veitingastaðinn og haldið verður þaðan í samfloti á viðeigandi svæði. Eftir kynningarnar verða grillaðar pylsur og gos í boði Veiðifélags Stóru Laxár.
Kynningin er sem fyrr segir að kostnaðarlausu og býðst þáttakendum einnig 25% afsláttur af lax- og silungsveiðileyfum fyrir komandi sumar sem bókuð eru á kynningardeginum.

Vonum að þetta komi sem flestum að góðum notum og gefi tækifæri á að kynnast þessu einstaka veiðisvæði betur og minnum á að skrá sig.