VERNDUN
Lax-á styrkir.
![ASFlogo[1] asf](/media/arnibaldurs/hausmynd/ASFlogo[1].gif)
Lax-á ehf styrkir árlega Canadísku laxaverndar samtökin Atlantic Salmon Federeation og er framlagið meðal stærstu styrkveitinga sem samtökin fá. Styrkirnir eru í formi veiðiferða sem gefnar eru samtökunum. Þessar ferðir eru boðnar á uppboði samtakanna þar sem sá félagsmaður sem hæst býður fær hnossið. Andvirðið rennur síðan í sjóði samtakanna sem síðan notar þá til rannsóknar og uppbyggingar á Atlandshafs laxastofnunum.
![scilogo[1] SCI](/media/arnibaldurs/hausmynd/scilogo[1].gif)
Einnig hefur Lax-á ehf árlega styrkt alheims samtökin Safari Club International. Sjóðir samtakana er notaður á heimsvísu til rannsókna og uppbyggingar.
Laxaræktun:
Lax-á tengist tveimur af stærstu seiðaeldistöðvum landsins Laxeyri og Húsafells fiskeldistöðvunum.
Farið er eftir ýtrustu kröfum varðandi laxastofna og er eingöngu sleppt seiðum sem eru af uppruna stofni árinnar eða þess vatnasvæðis.
Seiðaeldisstöðin Laxeyri í Borgarfirði.
Seiðaeldisstöðin Húsafellsstöðin í Borgarfirði.
Seiði
Tungufljót er ein þeirra áa sem seiðasleppingar hafa skipt máli í uppbyggingu laxastofna.
