Skotveiði
Fjöldi skotmarka í Rúmeníu
Hvað getum við sagt ykkur um Rúmeníu? Þetta er náttúrulega Evrópuland, en hefur til þessa ekki verið sérlega vel kynnt hér á landi og ef eitthvað þá hvílir yfir landinu einhver dulúð sem kann að eiga rætur að rekja til Karpatafjalla þar sem ónafngreindur blóðþyrstur greifi hélt sveitungum sínum í heljargreipum(eða ættum við frekar að segja heljartönnum?) á miðöldum og gerir kannski enn einhvers staðar að einhverju leyti!
En við getum upplýst ykkur um það, að í myrkviðum rúmenskra skóga er fjöldi ferfætlinga sem veiddir eru og er um magnaðan veiðiskap að ræða því sjaldan vita menn hvaða tegund ryðst út úr þykkninu?.villsvín, skógarbjörn, úlfur, gaupa, rauðrefur?..eða ein fimm tegunda dádýra og hjarta! Veiðitími hinna ýmsu tegunda er breytilegur og veiðitími ýmissa tegunda skarast. Fljótlegra er að segja, að við getum komið ykkur í veiði í rúmenska skóga á bilinu frá mars og fram í desember.
Skotveiðar í Rúmeníu eru að aukast mjög að vinsældum, fjöldi skotveiðimanna sem hafa reynt flest hafa heyrt af Rúmeníu síðustu árin, haldið þangað og hælt upplifuninni í hástert.
Allar frekari upplýsingar veitir Árni Baldursson á skrifstofu Lax-á sími 531 6100 eða í gegnum tölvupósi arnibald@lax-a.is.
