FRÉTTIR
Lax-á vikur í Kúbu 2006 - RISA tarponar
Kúba - þar sem RISA tarponar bíða ásamt fjörugum bonefish og fleiri framandi tegundum suðrænna sjávarfiska.
Við erum þegar byrjuð að bóka fyrir næsta ár í vikurnar okkar sem eru:
-
18. - 24. mars og
-
13. - 19. maí
Gist er um borð í Halcon, lúxus snekkju í góðu yfirlæti og dekri í mat og drykk. Flogið er til Havana og gist eina nótt. Næsta dag er flogð frá Havana til Cayo Coco, þá tekur við 2 tíma sigling á áfangastað. Byrjað er að veiða síðdegis þennan dag og veitt áfram í 6 daga samfleytt. Eftir veruna um borð í Halcon er haldið sömuleið tilbaka til Havana þar sem gist er aftur í eina nótt - og svo haldið heim á leið, brún, sælleg og full af krafti fyrir íslenskt veiðisumar.
Frekari upplýsingar veitir Ásta Ólafsdóttirá e-mail: asta@lax-a.is eða í síma 557 6360 á skrifstofutíma.
