Silungsveiði
Frábær silungsveiði í bresku Kolumbíu

Lax-á getur nú boðið viðskiptavinum sínum í einhverja mögnuðustu silungsveiði sem fyrirfinnst á norðurhveli. Við erum að tala um Pyna-Tee-Ah í Bresku Kólumbíu, sem rekið er af Peggy og Gary Zorn, en fyrirtækið hefur aðgang að nokkrum af allra bestu veiðisvæðum BK sem eru staðsett í Cariboo Mountain Park. Um er að ræða Mitchell og Quesnel árnar og Mitchellvatn sem Mitchelláin rennur í og úr.
Vertíðin hefst í maí og í vatninu er stórir regnbogasilungar, margir yfir 10 pund, ærast er gönguseiði kyrrahafslaxa ganga niður í vatn. Fjöldi þeirra er gífurlegur og regnbogarnir leggjast í veislu. Í júní fer regnboginn að veiðast í ánum og þurrflugum vex ásmeyginn. Kóngslax (Chinook) gengur í ána í júlí og í ágúst kemur stór ganga af Sockeylaxi og eru bæði Kóngslaxinn og Sockeylaxinn veiddir samhliða regnboganum. Laxarnir detta smám saman úr veiðinni er líður að hrygningu, en regnbogatröllin eru veidd allt fram í október. Samhliða er Dolly Warden, sem er náskyldur íslensku bleikjunni og eru þessar kanadísku bleikjur allt að 16 punda!.
Pyna-Tee-Ah er 12 veiðimanna starfsemi og telst því vera með mjög svo persónulega þjónustu. Veiðihúsið er staðsett við Quesnelána og er búið öllum helstu þægindum. Matreiðslan er nokkuð sem þau Peggy og Gary leggja ekki hvað síst metnað sinn í, kokkurinn er galdramaður og steikur og kjúklingar eru á hverju kvöldi.
Allar frekari upplýsingar gefur Árni Baldursson á skrifstofu Lax-á í síma 531 6100 eða í gegnum tölvupóst arnibald@lax-a.is
