Noregur

Lax-á býður upp á frábæra Laxveiði í Noregi

Komdu með Lax-á í Stórlaxa ævintýri

n13

Noregur er land fullt af stórum fjörðum og vígalegum skógi vöxnum fjöllum. Frábær veiðisvæði, stórfenglegt útsýni og ein besta stórlaxa veiði í heiminum í dag. Tækifærin eru mörg, Atlantshafs lax, bleikja, stór urriði og sjóbirtingur, allt þetta og meira til í næsta nágrenni..

Norway

Það er okkur sönn ánægja hér hjá Lax-á að bjóða þér kæri veiðimaður, upp á þetta einstaka tækifæri á að komast í færi við þann stóra. Njóta þín í guðsgrænni náttúrunni, lykta af sumrinu, villt blóm og stökkvandi fiskur um allt í nýju umhverfi þar sem hver dagur kemur með hið óvænta og gleður þig út að eyrum..

n1

Sumum fynnst kannski svolítið langt að ferðast alla leið til Noregs til að fara í Lax en fyrir aðra er hér kannski um að ræða hina sannkölluðu Pílagrímsferð. Tækifæri til að feta í fótspor þeirra mörgu veiðimanna hvaðanæva úr heiminum sem veitt hafa í fjölmörgum stórlaxaám Noregs í áratugi og látið vel af. Og ekki má gleyma að Víkingarnir komu til Noregs svo segja má að þú sért að halda á fornar slóðir þeirra..

 11n

Ferðalagið í dag er ósköp einfalt og þægilegt en flogið er daglega á Noreg svo þú getur farið að morgni og verið byrjaður að dýfa flugunni í vatn seinnipartinn.  Við hér hjá Lax-á erum í góðu samstarfi við mörg flugfélög í heiminum og að sjálfsögðu okkar heimaflugfélag Icelandair en þeir þjónusta einmitt Noreg..

 n2

Það er mikil fjölbreytni í veiðinni í Noregi og búast má við að landa mörgum tegundum af ferskvatns fiski eins og kom fram hér að ofan. Það eru mjög góð uppeldisskylirði fyrir þessa fiska og því oft mikið fjör á bökkunum.  Markmið Lax-á í Noregi er einfalt en það er að einfalda Íslenskum veiðimönnum að víkka út hjá sér veiðihringinn og finna nýja heima í Laxveiðinni.  Og við teljum Noreg vera stað til þess.  Lax-á er í mjög góðu samstarfi við heimamenn og hefur yfir allra bestu svæðum úr að velja. Þannig getum við lagt okkar að mörkum til að gera ferðina eftirminnilega og fulla af hinu óvænta sem væntalega eru 2ja stafa tölur í pundum..

Norway 

Veiðihús er öll til fyrirmyndar með þjónustu sem er á heimsmælikvarða, frábær matur, góð hvíldaraðstaða og kósýheit.  Leiðsögumenn eru reyndir og þekkja vel til aðstæðna. Það getur verið góð lausn hjá fyrirtækjum að bjóða starfsfólki, vinnuhópum og þessháttar til Noregs því öll veiðihúsin geta verið prívat og eru með allann fundarbúnað sem til þarf ef menn kjósa svo..

a2 

Veiðsvæðin eru annsi mikil og oft þarf að ferðast á milli á bátum en svo eru önnu svæðin minni eins og sjá má á myndinni hér að ofan, hreint út sagt geggjað umhverfi að veiða í. Samanlagt í Noregi er um 400 laxveiðiár.. 

 

Hreint loft, Gin tært vatn, mikið svæði fyrir veiðarnar, gott veðurfar er það sem heillar menn við Noreg. Heimamenn eru einnig afar stoltir af þessari perlu og það er annsi gaman að taka smá rökræður við þá um hvort sé betra að veiða lax á Íslandi eða í Noregi. En hvað stærð á Laxi varðar þá hafa þeir vinninginn.  Láttu það eftir þér að kíkja á frændur vora og renna fyrir Stórlaxi einum af þeirra veiðiperlum..

DSC00019 

Laxveiðiárnar í Noregi eru annsi duglegar þegar kemur að uppeldi Atlantshafs laxins og nú undanfarin 3 ár hafa miklar breytingar orðið á veiðinni sérstaklega vegna þess að öll netaveiði hefur verið bönnuð í þeim fjörðum þar sem helstu veiðiárnar eru. Meðal þyngd á Laxi er 2ja stafa tala og smálaxinn er vænn líka..

Yellow Shadow Shrimp 

Hér má sjá eina Klassíska Laxveiðiflugu sem mikið er notuð í Gaula, ekki ýkja langt frá því sem gengur og gerist á Íslandi. Hér að neðan má sjá veiðihús úr lofti en veiðihúsin sem við verðum með eru öll fyrsta flokks og sniðin að þörfum allra veiðimanna..

n10

 

Lax-a rod 

Fyrir Íslenska veiðimenn er veiðiútbúnaður sem nota þarf í Noregi svipaður þeim sem við notum hér heima.  Tvíhendur eru nauðsynlegar og menn þurfa helst að kunna vel á veltiköst til að koma flugunni á rétta staði því mikið er af trjám á bakvið mann við veiðarnar.  Vöðlurnar og hlýr fatnaður eru nauðsynlegur hluti af ferðinni en vatnið í ánum getur verið annsi kalt.  Nauðsynlegt er þó að vera með flotlínu, sökklínu, sökkenda og intermediate línu til að vera undirbúinn í hvaða aðstæður sem er..

Norway 

Lax- á býður þig velkominn með sér til Noreg 2009, við hlökkum til að heyra frá þér og skipuleggja frábæran veiðitúr á framandi slóðir sem skapar góða minningu að eilífu..

n5

Veiðisvæði Lax-á í Noregi 2009 eru eftirfarandi, Malselv, Abjora, Namsen, Orkla og hin ógleymanlega Gaula..

 

Allar frekari upplýsingar má fá hjá okkur, sláðu á þráðinn eða sendu póst

 

Axel Óskarsson   axelo@lax-a.is

snr..  00354-5576100


Árni Baldursson  arnibald@lax-a.is

snr..  00354-5576100

 

 

IMGP0218

VEIÐI 2010

Við bjóðum upp á veiði á Íslandi, í Rússlandi, Argentínu, Skotlandi, Kúbu og Noregi.

stefan@lax-a.is

s. 531 6100
fax: 557 6108





 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

Makrill

29.7.2010 : Makrílæði á Íslandi – hér er það sem þú vissir ekki um Makríl

Makrílæði hefur gripið Suðurnesjabúa og fleiri landsmenn en Keflavíkurhöfn ásamt fleiri höfnum á landsbyggðinni hafa verið troðfullar af Makríl undanfarnar vikur og veiðimenn smáir sem stórir mokveiða þar á allskonar agn. Það eru ekki allir landsmenn sem þekkja makríl en erlendis er hann þekktur sem hinn besti matfiskur og þykir hreint lostæti. Ég skoðaði aðeins þennan nýbúa og ákvað að deila því með ykkur..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
eldiskvi

29.7.2010 : Bleikja til Bandaríkjanna - Björt framtíð í eldinu

Framkvæmdastjóri fiskeldis fyrirtækisins Rifóss í Kelduhverfi segir að fiskeldi hafi sjaldan eða aldrei gengið eins vel og nú. Fyrir liggja samningar um sölu á bleikju til Bandaríkjanna nokkur ár fram í tímann. Rifós í Kelduhverfi, sem er rótgróin eldisstöð, er bæði í lax- og bleikjueldi. Laxinn fer allur á innanlandsmarkað en bleikjan er flutt til Bandaríkjanna og þar vestra er eftirspurnin gríðarleg..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Dadyr

28.7.2010 : Dádýrs segullinn spyr - Af hverju ég?

Tánings stúlka sem býr í Iowa fylki í Bandaríkjunum hefur hlotið viðurnefnið „Dádýrs segullinn“ eftir að hafa keyrt á fimm dádýr á síðastliðnu ári. Sautján ára gamla Kacee Larson segir að óheppni sín hafi byrjað síðastliðin júlímánuð þegar hún var að keyra heim úr vinnuni..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Tung601

28.7.2010 : Veiðin að glæðast í Tungufljóti - heildartalan í 211 löxum

Ég heyrði í Snorra veiðiverði í Tungufljóti í gærkvöldi, hann sat við eldhúsborðið og var að gæða sér á rúgbrauði með kæfu sem hann sagði að væri feit og ljúffeng að hætti sveitamanna.  Ég innti hann eftir veiðitölum úr ánni og aðstæðum og svörin voru þessi.  Heildarveiðin var 211 laxar af öllum svæðum, Þýska Snældan var vinsælasta agnið, vatnið í ánni er í lagi og aðstæður ágætar.  Svo virðist sem að ganga sé að detta í ánna og því má búast við hækkandi tölum á næstu dögum..Axelo      axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Selur

28.7.2010 : Selatalning í Húnaflóa - Aukning á milli ára

Selasetur Íslands stóð fyrir selatalningu í innanverðum Húnaflóa á sunnudaginn. Alls sáust 1.054 selir samanborið við 1.019 í fyrra. Alls tóku 30 manns þátt í talningunni, þar af 25 sjálfboðaliðar. Flestir fóru fótgangandi en einhverjir fóru ríðandi. Auk þess voru nokkrir um borð í selaskoðunarbátnum Brimli en þeir töldu seli við innanverðan Miðfjörð..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
ER Nils 9

8.7.2010 : Tannlæknir vill fara í maðkaræktun meðal annars fyrir veiðimenn!!

Sigurjón Benediktsson, tannlæknir á Húsavík hefur sótt um 50 hektara iðnaðarlóð að Bakka norðan Húsavíkur til að rækta ánamaðka til jarðbóta og sem agn á öngla. Þetta kemur fram í fundargerð skipulags- og byggingarnefndar Norðurþings. Undanfarin ár hefur sveitarstjórn Norðurþings í samstarfi við Alcoa stefnt að því að álver rísi á lóðinni..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 

8.7.2010 : Fá verðlaun fyrir að veiða norskan eldislax

Laxveiðimenn flykkjast nú til bæjarins Sunde við vesturströnd Noregs. Nær níu þúsund laxar sluppu úr fiskeldiskvíum við bæinn og lofar fiskeldisstöðin að borga 4.000 krónur fyrir hvern lax sem næst á land. Um er að ræða fiskeldisstöðina Viking Fjord en laxarnir sluppu úr kvíum sínum þegar verið var að leggja rör við hlið þeirra. Svo óheppilega vildi til að við þá vinnu rifnuðu netin í kvíunum og laxahjörðin slapp út í fjörðinn sem þær eru staðsettar í..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Hreindýr

15.6.2010 : Slegist um Hreindýr á Alþingi - Nýtt námskeið fyrir leiðsögumenn

Svandís Svavarsdóttir umhverfis ráðherra segir það vilja sinn að haldið verði námskeið fyrir hreindýraleiðsögumenn vorið 2011. Þá verða liðin tíu ár frá síðasta námskeiði. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, spurði ráðherra um námskeiðshaldið á Alþingi í dag. Námskeiðið er haldið á vegum Umhverfisstofnunar sem frá 2001 hefur ekki talið þörf fyrir það..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Falki

15.6.2010 : Gallar á reglugerð? Of algengt að menn skjóti Fálka og Erni

Ríflega fimmti hver örn og fjórði hver fálki sem fundist hafa dauðir hér á landi hafa verið skotnir samkvæmt rannsókn Náttúrufræðistofnunar. Ernir og fálkar eru á válista og algjörlega friðaðir, örninn frá 1914 og fálkinn frá 1940. Stofnunin hefur rannsakað hræ friðaðra fugla sem fundist hafa á undanförnum árum. Löggjöf um varðveislu og uppstoppun friðaðra fugla og verslun með þá sé gölluð og því erfitt að koma böndum á þessa ólöglegu iðju..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Rjúpa

14.6.2010 : Sviptingar á milli landshluta á Rjúpnastofninum

Rjúpnastofninn stækkar bæði og minnkar, eftir því hvar á landinu er talið. Samkvæmt talningu Náttúrufræðistofnunar Íslands á rjúpnastofninum má skipta landinu upp í tvo hluta. Á Vestfjörðum, Norður- og Austurlandi er aukning í stofninum frá fyrra ári um 29% að meðaltali í samandregnum tölum.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Skotid_a_skarf

14.6.2010 : Fjölgun Dílaskarfs – Vísbending um gott ástand átu

Dílaskörfum hér á landi hefur fjölgað samkvæmt nýlokinni árlegri talningu. Þegar reglubundnar talningar hófust árið 1994 var stofninn á niðurleið, en frá 1995 hefur honum fjölgað að meðaltali um nálægt 4% á hverju ári og eru hreiðrin nú alls 5250.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira

 
joi_namibia

9.6.2010 : Í Afríku með Lax-á -Voru á Gull gripaveiðum á Rauðusöndum s.l. vor

Nokkrir íslenskir skotveiðimenn fóru til veiða í Rooisand í Namibíu nú í vor. Rooisand-búgarðurinn er í um 90 mínútna akstursfjarlægð frá höfuðborgini Windhoek. Rooissand þýðir rauðisandur og dregur staðurinn nafn af rauðum eyðimerkursandi sem fauk á þetta svæði fyrir þúsundum ára frá Kalahari eyðimörkinni. Landareignin er um 12.000 hektarar og er hún við enda fjallgarðs nálægt fjallinu Gamsberg sem er 2.347 metra hátt og því nokkuð hærra en Hvannadalshnjúkur. Namib eyðimörkin liggur að landinu. Rooisand búgarðurinn er eins og eyja í þessu fjöllótta og hrjóstruga landi sem er nánast eins og eyðimörk.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira

 

9.6.2010 : Júní veiðin byrjar af krafti í Litluá fyrir norðan

Veiðin í júní byrjar af krafti í Litluá. Steingrímur Friðriksson sem hefur verið iðinn veiðimaður í Litluá var í vikunni tvo dagparta við veiðar í ánni og fékk hann 10 fiska hvorn daginn. Setti hann í góða bleikjugöngu við klöppina á svæði 4 og tók þar nokkrar fallegar bleikjur í röð og þar af fjórar um 62 cm langar. Sagan í Litluá segir að júnímánuður er yfirleitt mjög góður og mikið um sjóbirting. Hér á árum áður þegar veiði hófst ekki fyrr en í byrjun júní, þá var ætíð mjög mikil veiði á þessum tíma.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
Heklubyggd

7.6.2010 : Nýtt veiðihús hjá Lax-á

Lax-á hefur tekið í notkun nýtt og glæsilegt veiðihús í Heklubyggð en húsið er um 25km frá Hellu og 110km frá Reykjavík. Húsið er hægt að nota til dæmis með veiði í Galtalæk eða Ytri Rangá efra svæði,  en húsið fylgir ekki með veiðileyfum. Það þarf að panta það sér.

Lesa meira
 
2005,_largest_salmon_of_the_season_103_cm_web

4.6.2010 : Blanda 10. til 12. júlí

Ágætu veiðimenn, í tilefni Sjómannadagsins viljum við bjóða tvær stangir í Blöndu svæði 1 10. til 12. júlí (hád - hád) Lesa meira
 
Gudrun 4

26.5.2010 : Púlsinn tekinn á veiðimönnum - Spurning hvort þetta var heppni..?

Það hefur lítið farið fyrir veiðikonum hér hjá mér í spjallinu undanfarið. þær eru eflaust jafn margar og karlpeningurinn sem stunda veiðar og Guðrún S. Ólafsdóttir er ein af þeim. Hún er hörkuveiðimaður, bæði í stangveiði og skotveiði. Hér að neðan kemur hún inná maríulaxinn, Hreindýraveiðar og snilldar eldamennsku en einnig commentar hún á hvort kvennahollinn skilji eftir sig sömu sögurnar og karlahollinn..spennandi lesning.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
DEE

26.5.2010 : Góð veiði í Dee þessa daganna - 65 laxar á land í gær

Veiðin í Dee undanfarna daga er búinn að vera nokkuð góð og í samræmi við undanfarin ár. Í síðustu viku veiddust 159 laxar og 82 sjóbirtingar en föstudagur og laugardagur voru óveiðanlegir sökum veðurs. Það gerði mikla rigningu og þrumuveður sem varð til þess að áin hljóp upp. Þegar að sjatna tók í ánni varð veiðin eftir bókinni og á Mánudaginn komu 46 laxar á land. Í gær komu 65 laxar á land, stærsti laxinn var 23 pund og kom á land við Cambus O´May. Veðurspáin framundan er góð, það er spáð hlýindum og góðviðri og við fylgjumst náið með..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
minkur

25.5.2010 : Atvinnu minnkabani - Ekki hægt að útrýma dýrinu á Íslandi

Atvinnu minkaveiðimaður segir illa hafa verið staðið að tilraun til að útrýma mink á einstökum landsvæðum. Hann segir ekki hægt að útrýma minknum úr íslenskri náttúru en hinsvegar megi halda honum í skefjum með því að skipuleggja veiðarnar af skynsemi. Umhverfisstofnun stóð fyrir veiðiátaki á mink í Eyjafirði og á Snæfellsnesi á árunum 2007 - 2009 og er áætlað að verkefnið hafi kostað um 160 milljónir í heild..Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
p7

25.5.2010 : Skotveiðimenn eyða vel á annan milljarð króna samkvæmt nýlegri könnun

Íslenskir skotveiðimenn eyða samtals vel á annan milljarð á ári í tengslum við veiðarnar. Þetta eru niðurstöður könnunar sem gerð var við Háskólann á Akureyri. Hinn dæmigerði skotveiðimaður er 42 ára gamall karlmaður. Hann er háskólamenntaður, kvæntur, á tvö börn og býr á höfuðborgarsvæðinu. Hann veiðir helst á suðvestursvæði og hans aðalbráð er grágæs.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
eldiskviar

17.5.2010 : Vaxandi eftirspurn í íslenska eldisbleikju á erlendum mörkuðum

Mjög vaxandi eftirspurn er eftir íslenskri eldisbleikju á erlendum mörkuðum. Stærsti bleikjuframleiðandinn hér á landi annar ekki eftirspurn um þessar mundir. Langstærstur hluti af eldisbleikju á heimsmarkaði kemur frá Íslandi. Héðan fara um þrjúþúsund tonn ár hvert en heildarneyslan er um 5000 tonn.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarf 16 - 203 Kópavogur | s: 557 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar