Malselv

Stórlaxaveiði í Noregi - Ódýr laxveiðiferð - Stórlaxar!

Lax-á er komið með tangarhald á frábæru stórlaxasvæði í Noregi. Það er ofan Malselvfoss í samnefndri á, Malselv. Laxveiði í Noregi átti verulega undir högg að sækja á tíunda áratugnum vegna aðkomu eldislaxa sem hafa sloppið úr sjókvíum í ríkum mæli og mengað erfðagen og dreift sjúkdómum..

Norway

Þetta vandamál er nú á útleið í norskum ám samhliða netaupptökum og það er eigi að síður staðreynd að allra síðustu árin hafa ýmsar ár í landinu verið að taka vel við sér á ný og eru orðnar sjálfum sér líkar og einmitt ein þeirra er hin kyngimagnaða Malselv..

n8

Veiðitölur síðustu þriggja ára í Malselv ánni eru afar glæsilegar, mikið af stórlaxi, samt ekkert mok en fín veiði í heildina. Meðalþyngd veiddra laxa er rúm 10,6 pund og hafa veiðst laxar allt að 36 pundum. Laxar á bilinu 15 til 26 pund eru beinlínis algengir í aflanum. Malselv er eitt af stóru nöfnunum í Noregi og engin tilviljun að enskir lávarðar og auðmenn voru farnir að stunda veiðar í ánni þegar árið 1840..

n13

Malselvfossen er mikið sjónarspil, grimmar flúðir í tveimur kvíslum sem spanna alls 500 metra og laxinn þarf að vanda sig. Þarna er góð aðstaða til að fylgjast með laxinum þræða sig upp brattar flúðirnar og eykur það á ánægjuna við að stunda þarna veiðiskap..

n2

Auk frábærrar laxveiði þá er framúrskarandi urriða og harraveiði á efri svæðum Malselv og er það fiskur af góðri stærð, veiddur í töfrandi umhverfi og aldeilis frábær viðbót við laxveiðina..

a1

Rundhaug gistiheimilið rekur þetta veiðisvæði og þar gista veiðimenn í vellystingum. Þarna er boðið upp á öll nútímaleg þægindi, gott viðmót og sannkallaðan veislukost þegar menn koma þreyttir heim eftir laxadráttinn. Lax er farinn að ganga upp fossinn um mánaðamót júní og júlí og það er því alveg raunhæft að fara á svæðið um það leyti og hvenær sem er eftir það. Veitt er á allt það löglega agn sem við þekkjum hér heima, flugu, spón og maðk..

n1

Við hér hjá Lax-á mælum með sterklega með þessarri frábæru á. Ein af þeim ástæðum sem glæða laxveiðina í Noregi svo vel er sú að  frændur okkar Norðmenn eiga fallegt land og stóra laxa í stórkostlegum ám. Þeir eru sjálfir hinir ágætustu sem alkunna er, og góðir heim að sækja..

n3

Allar frekari upplýsingar má nálgast hjá okkur hér á skrifstofunni..

 

Árni Baldursson  arnibald@lax-a.is

sími: 531 6100

Vertu velkominn.. við tökum vel á móti þér.

11n

 

 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 
kertasnikir[1]

28.12.2011 : Vinningshafar í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á

Búið er að draga úr seldum gjafabréfum í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á en þrír stórir vinningar voru í boði ásamt fimm ársáskriftum að Sportveiðiblaðinu. Góð sala var á gjafabréfum fyrir Jól og voru því mörg nöfn í pottinum. Búið er að hafa samband við vinningshafa og þökkum við öllum fyrir þáttökuna og óskum vinningshöfum innilega til hamingju.

Lesa meira
 
p15

19.12.2011 : Að hamfletta rjúpur

Nú styttist í Jólin og margir eflaust búnir að skjóta sér rjúpur jólamatinn. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga góða að til að kenna þeim handtökin við að hamfletta rjúpurnar. Til að stytta mönnum tímann við að leita að leiðbeiningum ákváðum við að safna saman nokkrum tenglum þar sem þessi handtök eru kennd.

Lesa meira
 
pottaskefill[1]

15.12.2011 : Jólastemning hjá Lax-á

Jóla-Gjafabréfaleikur Lax-á er í fullum gangi og gjafabréfin rjúka út eins og heitar lummur þessa daganna. Mögulegt er að kaupa gjafabréf frá 5000 til 500.000 og fylgja góðar gjafir með gjafabréfunum ásamt því að þú átt möguleika á að vinna veglega vinninga.

Lesa meira
 
AtlanticSalmonFront

1.12.2011 : Atlantic Salmon Magic

Bókin Atlantic Salmon Magic tekur á spurningum sem hafa nagað laxveiðimenn um langan tíma. Bókin, sem hefur fengið frábæra dóma, gefur góða innsýn inní hegðun laxins en höfundur reynir að svara spurningum eins og afhverju tekur laxinn fluguna? og hvað sér laxinn? Nú er hægt að nálgast hana á vefnum í gegnum vefverslun FishandFly.com en DVD diskur fylgir með hverri bók. Hluti af hverju seldu eintaki rennur hluti til NASF (North Antlatic Salmon Fund).

Lesa meira
 
RIMG0002

7.11.2011 : Laxasetur Íslands opnar á Blönduósi

Laxasetur Íslands, sýningar- og fræðasetur um íslenska laxinn verður opnað á Blönduósi í sumar. Undirbúningur fyrir opnunina er nú í fullum gangi.

Í Laxasetri Íslands verður hægt að finna ýmislegt efni er tengist íslenskum laxfiskum. Þar verða til að mynda upplýsingar um laxveiðiár, sögu laxveiða og rannsóknir.

Lesa meira
 

1.11.2011 : Fyrirlestur um stíflur í ám og áhrif þeirra á fiskistofna

Fyrirlestur um stíflur í ám og tilraunir til að greiða för sjógöngufiska á áhrifasvæðum stíflumannvirkja verður haldinn í Háskólabíói, Sal 2, kl. 11:50 – 13.20, fimmtudaginn 3. nóvember 2011.

Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, Stofnunar Sæmundar fróða og NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna.

Lesa meira
 
minkurinn

19.10.2011 : Pólverjar sækja í smiðju Íslendinga varðandi þekkingu á mink

Nýverið sótti pólskur minka sérfræðingur Náttúrustofuna heim í þeim tilgangi að afla gagna um rannsóknir, löggjöf, veiðistjórnun, veiðar og ræktun minka á Íslandi. Um var að ræða líffræðinginn Jakub Skorupski, sem starfar við Tækniháskóla Vestur-Pommern í Szczecin í Póllandi og er jafnframt verkefnastjóri hjá samtökunum Baltic Green Belt.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar