Gaula
Gaula áin í Noregi - Stórlaxaævintýri á hverjum degi
Lax-á býður þig velkominn til Gaula í Noregi

Gaula áin er talin ein af bestu laxveiðiám Evrópu í dag og undanfarin ár. Sérstaklega þó þegar kemur að stærð fiska sem veiðast og magn. Heildarveiðisvæðið í Gaula er um 150 km. Langar breiður sem teygja vel úr sér eru eitt af einkennum Gaula og það er stórkostleg upplifun að setja þar í fisk..

Gaula áin er þekktust allra laxveiðiáa í Noregi fyrir stóra fiska sem geta verið á bilinu 28-45 pund. Einnig er smærri laxinn þungur í pundinu en meðalvigtin getur verið frá 10-18 pund, en það veiðast á bilinu 8 - 9000 laxar af smærri gerðinni á hverju tímabili, geri aðrir betur. Í gegnum allt tímabilið er stór möguleiki á að landa þeim stóra, og við segjum þeim stóra því gerast vart stærri..

Stangveiðar á Laxi hófust við Gaula ánna 1840 þegar enskir veiðimenn uppgötvuðu þessa perlu. Áin og vatnasvæði hennar varð mjög vinsælt á meðal þeirra fljótlega og allar götur síðan. Orðspor Gaula óx mjög hratt og þá helst fyrir stórlaxaveiðina. Margir þessarra ensku veiðimanna keyptu sér hús við ánna og enn í dag má finna fyrir þeirra áhrifum á svæðinu..
Gaula áin er staðsett í suður Tröndelag en það er mjög fallegt svæði, mikill gróður og tré. 3ja Stærsta borg Noregs, Þrándheimur er staðsett rétt rúmum 50 km frá. Stórkostlegt landsvæði með miklum og háum fjöllum. Áin sjálf er ein sú lengsta í mið Noregi og umlykur um 20% af landsvæðinu. Gaula áin er ekki tengd neinum vötnum og er því frekar frjósöm..
Mikill snjór fellur til á veturna í fjöllinn og er það einmitt helsta ástæðan sem heldur nægu vatni út allt tímabilið sem gerir laxinum kleift að ganga allt tímabilið en eins og annarstaðar þarf töluvert af rigningu til að viðhalda góðu flæði á vatninu og gerist það oftast um miðjan Júlí og allt fram í Ágúst..

Gaula áin rennur í Þrándheimar fjörð og er ásamt 30 öðrum laxveiðiám á því svæði sem hvað helst hafa grætt á netaupptöku en í Þrándheimarfirðinum var mikið magn af laxi tekið í net. Allt frá því árið 2005 þegar netin voru keypt upp hefur veiðin í flestum ánum á þessu stóra og mikla svæði farið uppá við og fram úr björtustu vonum..

Helstu veiðuppýsingar sem vert er að vita
Veiðihúsin ( Storustu Winsnes Gjesegard )eru öll til fyrirmyndar með þeim helstu þægindum sem hinn nútímaveiðimaður þarfnast, góð rúm, góður matur og þægileg þjónusta veita manni veru í afslöppuðu umhverfi þar sem maður nýtur sín til fulls. S.W.G. er með veiðiréttin af bestu svæðunum eins og Malum og Winsnes ásamt mörgum öðrum mjög svo aðlaðandi veiðisvæðum. Þess ber þó að geta að allir veiðimenn hafa jafnan aðgang að þessum svæðum, skipting sem gerir alla ánægða, og ávallt veiða 2 og 2 saman..

Það er auðvelt að vaða þegar vatn er í meðallagi en botninn er blanda af stórum steinum og möl, þegar rignir og hækka fer í ánni þá ber að gæta fyllstu varúðar við. En besta reglan í flestum ám í Noregi er sú að vaða ekki upp fyrir hné en leiðsögumennirnir koma til með að vera með segja til um hvernig skal standa að því á hverjum veiðistað fyrir sig, einnig hvar þeir stóru lúra og bíða eftir flugunni..

Tímabilið í Gaula er frá 1. júní til 31. ágúst en stundum er veitt lengur og þá af heimamönnum eingöngu. Helstu laxagöngurnar koma frá 20. júní til 20. júlí en stórlaxarnir koma þó heldur fyrr, eða seint í mai fram í júní. Prime time er frá byrjun júlí út allann ágúst. Það er auðvelt að komast í Gaula með flugi en Icelandair fljúga til Oslo daglega og þaðan er flogið til Þrándheimar. Þar þarf að taka bílaleigubíl og keyra að veiðihúsinu en sú ferð tekur um 1 klst og 30 min, en nauðsynlegt er að hafa bíl til umráða til að ferðast um ánna..
Allar frekari upplýsingar má nálgast hjá..
Árni Baldursson arnibald@lax-a.is
sími: 531 6100

