Víðidalsá
Víðidalsá - Silungasvæði
Staðsetning: Norðvesturland, km frá Reykjavík
Stangarfjöldi: 2 stangir seldar saman
Tímabil: 15. júní-10. okt.
Seld holl/dagar: einn dagur seldur í einu og er veitt frá morgni til kvölds en veiðimenn mega mæta í hús (hjólhýsi) klukkan 22:30 kvöldið fyrir veiðidag.
Daglegur veiðitími: 07:00 – 13:00 og 16:00 – 22:00 (15. jún. – 20. ág.)
7:00 – 13:00 og 15:00 – 21:00 (20. ág. – 10 okt.)
Leyfilegt agn:Fluga, maðkur og spónn
Veiðitæki: Einhenda 9–10”, flotlína 7-9.
Bestu flugur:Heimasæta, Nobblerar ýmiss litbrigði, auk þess ýmsar púpur eins og peacock o.fl.
Veiðihús: Nýlegt hjólhýsi kom á staðinn sumarið 2009, pláss fyrir 4 að sofa. Það er huggulegt að fá sér kaffi og hægt að gista ef vill.
Umgengnisreglur:Veiðimenn mega koma í hús ( hjólhýsi ) klukkan 22:30 kvöldið fyrir veiðidag en brottfarardag skulu þeir rýma hjólhýsið rétt fyrir 22:30. Umsjónarmaður veiðihús er Ragnar á Bakka sími: 852-0531
Skyldugisting: Nei
Veiðibók: Í hjólhýsinu og er veiðimönnum skylt að skrá allan afla daglega í veiðibókina.

Aðkoma:
Til að rata á silungasvæðið, er best að miða sig við Víðigerði, sem er gisti- og veitingastaður við Þjóðveg nr. 1. Þegar ekið er frá Reykjavík er keyrt framhjá Víðigerði, yfir Víðidalsá, framhjá bænum Sólbakki á vinstri hönd, sem er bær við litla á sem heitir Melrakkadalsá, eða Dalsá , eins og hún er almennt nefnd. Og áfram fram hjá býlinu Laufás. Líka á vinstri hönd. Nú má fara að hægja á ferðinni því að beygt er niður næst til vinstri ,við bæ sem heitir Refsteinsstaðir.Þarna, uppi á hæðinni sést neðri hluti Silungasvæðisins. Haldið er áfram veginn niður eftir.Á næstu gatnamótum er beygt til vinstri, en þetta er slóðinn sem leiðir okkur niður á veiðisvæðið. Skömmu áður en komið er að ánni, er útskot til vinstri. Þar er ágætt að stoppa þar og ganga að girðingunni. Þá blasir við okkur efsti hulti veiðisvæðisins.
Veiðistaðir:
Hamarshylur
Er efsti veiðistaður á silungasvæðinu. Það eru girðingar á báðum bökkunum.Hylurinn við vesturbakkann er oftast veiddur.Þar er von um lax fyrri-part sumars en bleikjan liggur oft neðar á brotinu. Áin er breið þarna og getur breytt sér í vorleysingum og fært aðalkvíslina yfir að austur-bakkanum. Oft eru báðar kvíslarnar veiðanlegar.
Ferjuhylur, Ferjufljót
Þetta er stór og langur veiðistaður. Fiskur er oft efst í hylnum, miðju og neðalega. Í reyndinni er bara veiða allan hylinn.
Vesturkvíslin, Miðkvíslin og Austurkvíslin.
Það er mögleiki á fiski ofarlega í Vesturkvísl. Miðkvíslin hefur ekki gefið fisk lengi . Austurkvíslinn er er veidd þar sem hún rennur í Torfhyl.
Torfhylur
Er veiðistaður sem ekki ber að vanmeta, en reyna vel og eins strenginn sem rennur í Breiðuna.
Breiðan
Er sá veiðistaður þar sem kvíslarnar mætast. Þessi staður hefur núna seinustu árin verið sá gjöfulasti á silungasvæðinu.
Vesturkvísl
Er fyrir neðan Breiðuna geymir oft fisk, sérstaklega efrihlutinn. En þessi veiðistaður breyrtir sér frá ári til árs.
Veiðileyfi fást með því að smella hér
Nánari upplýsingar: á skrifstofu Lax-á, s: 531 6100 eða stefan@lax-a.is eða lax-a@lax-a.is
Netsala smella hér
