Varmá - Þorleifslækur
Varmá - Þorleifslækur
Ein langbesta sjóbirtingsá landsins!
Þorleifslækur er eins og Varmá ein langbesta sjóbirtingsá landsins. Það er ekki óalgengt að veiðimenn taki upp undir 30 sjóbirtinga á dag. Með nýhöfnu ræktunarátaki okkar verður spennandi að fylgjast með þegar stofninn styrkist og birtingurinn treystir sig betur í sessi. Enn eymir eftir af fordómum í garð árinnar vegna þess að í "den" þótti hún miður geðsleg vegna frárennslislagna sem í hana lágu. Skal hér enn og aftur áréttað, að áin hefur nú öll verið gegnumtekin og í dag telst hún hrein. A.m.k. er lífríki hennar aldeilis í góðu lagi, á nýliðinni vertíð var áin gersamlega pökkuð af fiski og eitt það skemmtilegasta við hana er að ólíkt öðrum sjóbirtingsám þá má heita að hægt sé að veiða hana með góðumn árangri alveg frá apríl og fram í október. Aldrei er dauð stund.
Öllum fiski skal sleppt en það er í lagi að halda einum fiski í soðið.
Staðsetning: Suðurland, 40 km frá Reykjavík.
Veiðisvæði: Frá 1 apríl frá brú á þjóðvegi og niður að ósum Ölfusár. Eftir 1 Júní fylgir öll varmáin með og niður af ósum ölfusár.
Stangafjöldi: 6 stangir.
Meðalþyngd: 4-5 pund.
Tímabil: 1. apríl – 15. október.
Daglegur veiðitími:
7 – 13 og 16 – 22 (1. apríl – 20. .ágúst)
7 – 13 og 15 – 21 (21. ág. – 15. okt.)
Leyfilegt agn: Fluga.
Veiðitæki: Einhenda 8-10”, lína 4-8.
Bestu flugur: Hinar ýmsu þurrflugur, streamerar og púpur.
Staðhættir og aðgengi: Nokkuð gott. Hægt er að aka að flestum veiðistöðum.
Veiðihús: Nei, en við mælum með gistingu hjá Frosti og Funa sem staðsett er á árbakka Varmár fyrir ofan þjóðveg.
Umsjónamaður: Valgeir Ásgeirsson, s: 696 1834
Veiðikort: Lax-á mun gefa út kort sem hægt verður að nálgast í Útivist og veiði sumarið 2004.
Veiðibók: Liggur í litlum veiðikofa merktum Lax-á, sem er staddur fyrir neðan þjóðveginn. Veiðimönnum er skylt að skrá allan afla daglega.
Bókanir: Skrifstofa Lax-á, s: 557 6100, netsala smella hér
