Tungufljót
Tungufljót
Vatnsmikil á og spennandi, á söguslóðum.
Góð veiðivon er einnig í aðliggjandi þverám.
Staðsetning: Suðurland, Biskupstungum, um 100 km frá Reykjavík.
Veiðisvæði: Silungur: Fyrir ofan fossinn Faxa (Vatnsleysufoss) og upp fyrir brú á þjóðvegi 35 við Geysi. Einnig þverár Tungufljóts, Einholtslækur, Laugá, Beiná og Almenningsá. Veiðisvæðið er mjög fallegt, allt frá stórum straumhörðum hyljum til lítilla lygnubakka í þveránum. Urriðinn getur orðið mjög vænn og þeir sem best þekkja til geta oft sett í skemmtilega veiði. Laxasvæði: er frá og með fossinum Faxa niður að brú sem liggur að bænum Bræðratungu.
Stangarfjöldi: 8 stangir
Tímabil: 1. apríl – 20. sept
Daglegur veiðitími:
7–13 og 16–22 (1. apríl–20. ág.)
7–13 og 15–21 (21. ág.–20. sept.)
Leyfilegt agn: Fluga, maðkur og spónn
Veiðitæki: Einhenda 9-10”, lína 5-7.
Bestu flugur: Black Ghost, Dentist, Rektor, Svartur Nobbler, Olive Nobbler og Þingeyingur.
Staðhættir og aðgengi: Hægt er að aka víða að veiðistöðum, en vatnasvæðið er geysivíðfeðmt. Ef menn ætla að komast um það allt er ekki um annað að ræða en að ganga.
Veiðihús: Nei.
Umsjónarmaður: Skrifstofa Lax-á s. 531 6100.
Veiðibók: Liggur frammi á skrifstofu Lax-á, Akurhvarfi 16. Veiðimönnum er skylt að tilkynna allan afla þangað í lok veiðiferðar.
Bókanir: Skrifstofa Lax-á, s: 531 6100, og í gegnun tölvupóst stefan@lax-a.is og lax-a@lax-a.is. Netsala smella hér
