Steinsmýrarvötn
Steinsmýrarvötn
Gjöfult veiðisvæði í næsta nágrenni Eldvatns.
Tilvalið fyrir stóra hópa sem eru að veiða í Eldvatni að bæta við stöngunum í Steinsmýrarvötnum. Uppsveifla hefur verið í sjóbirtingsveiði í Steinsmýrarvötnum tvær síðustu vertíðir.
Staðsetning: Suðurland um 270 km frá Reykjavík, um 15 mín. akstur til Kirkjubæjarklausturs, 5 mínútur frá Eldvatni. Ekið er áleiðis til Kirkjubæjarklausturs og farið yfir brúna á Kúðafljóti síðan fljótlega tekinn afleggjari til suðurs/ hægri niður í Meðalland. Ekið er yfir brúna á Eldvatni, áleiðis til Kirkjubæjarklausturs, eftir um það bil 5 mínútna keyrslu er komið að bænum Króki. Ekið er heim að Króki og gengið þaðan niður að veiðisvæðinu. Meðallandsafleggjarinn er hringvegur, og endar hann upp við brýrnar á Skaftá. Það má einnig aka alla leið til Kirkjubæjarklausturs og fara niður Meðallandsafleggjarann þeim megin niður í Steinsmýrarvötn.
Veiðisvæði: Vatnasvæði Steinsmýrarvatna er mjög stutt en gjöfult, bestu veiðistaðirnir eru beint fyrir neðan bæinn Krók. Eingöngu má landa þremur sjóbirtingum á stöng á dag eftir það má einungis veiða og sleppa.
Stangarfjöldi: 2 stangir og eru þær seldar saman.
Tímabil: 1. júlí – 10. október.
Daglegur veiðitími: 7–13 og 16–22 (1. júl. – 20. ág.)
7–13 og 15–21 (21. ág. – 10. okt.)
Leyfilegt agn: Eingöngu fluguveiði.
Veiðitæki: Einhenda 9-10”, lína 6-9.
Bestu flugur: Black Ghost, Kötturinn, Flæðamús,Tveir á Kamrinnum og Iða. Mikið er notast við kúlupúpur t.d. Peacock, Watson Fancy, Móbúto, ofl.
Staðhættir og aðgengi: Ágætt, ekið er að bænum Króki, þaðan er steinsnar niður að bestu veiðistöðunum.
Veiðihús: Nei, en möguleiki á gistingu í veiðihúsinu við Eldvatn. Sjá nánar undir Eldvatn.
Skyldugisting: Nei.
Umsjónarmaður: Hávarður Ólafsson, s. 487 4722, 893 2547.
Hægt er að nálgast veiðikort með því að smella hér:kort
Veiðibók:Veiðibók fyrir Steinsmýrarvötn liggur frammi í veiðihúsinu við Eldvatn. Veiðimönnum er skylt að skrá allan afla daglega.
Bókanir: Skrifstofa Lax-á, s: 557 6100, og í gegnun tölvupóst stefan@lax-a.is og lax-a@lax-a.is. Netsala smella hér
