Sog - Tannastaðatangi
Sog - Tannastaðatangi
Tilvalin fjölskylduveiði rétt fyrir utan Reykjavík!
Þetta er fornfrægur veiðistaður og þekktur fyrir stóra laxa. Þetta er líka skemmtilegur kostur vegna nálægðar við höfuðborgarsvæðið. Tannastaðatangi er þekktastur fyrir laxveiðina og hún fer þar batnandi er líður á sumar og framundir haust. Þó er alltaf veiðivon fyrr og vel mættu veiðimenn athuga, að ofarlega á svæðinu er oft skemmtileg bleikjuveiði bæði á vorin og framan af sumri. Þar er á ferðinni þessi landsþekkta stórbleikja sem Sogið er þekkt fyrir.
Staðsetning: Suðurland um 50 km frá Reykjavík. Ekið er frá Reykjavík framhjá Hveragerði áleiðis til Selfoss, áður en komið er að Selfossi er ekið upp afleggjara til vinstri í áttina að Grímsnesi og Þrastarlundi. Þessi vegur er ekinn í fáeinar mínútur þar til komið er að bænum Tannastöðum, gulur sveitabær með burstum. Afleggjarinn niður að veiðisvæðinu er til hægri rétt ofan við Tannastaðabæinn, á hliði er merki frá Lax-á.
Veiðisvæði: Um 3 km þar sem tært árvatn Sogs blandast Hvítá í Árnessýslu. Á tanganum liggur mikið af laxi er líða tekur á sumarið. Ármótin eru kjörin til fluguveiða.
Stangarfjöldi: 2 stangir - seldar saman.
Tímabil: 1.apríl -14. júní
Daglegur veiðitími:
7–13 og 16–22 (14. jún.–20. ág.)
7–13 og 15–21 (21. ág.–28. sept.)
Meðalvigt: 8 pund.
Leyfilegt agn: Fluga, maðkur og spónn.
Veiðitæki: Einhenda 9 –10”, flotlína 7-9. Tvíhenda 13-15”, flotlína 9-11.
Bestu flugur: Black and Blue, Sunrise Shadow, Collie Dog, Francis og Snælda.
Staðhættir og aðgengi: Mjög gott. Dálítill gangur í efstu og á neðstu hylji á veiðisvæðinu.
Veiðihús: 50 fm veiðihús er við Tannastaði. Þar eru tvö tveggja manna herbergi með 2 einbreiðum rúmum og tveimur sem er ein og hálf breidd, engar aukadýnur. Eldhús/setustofa og baðherbergi. Eingöngu er boðið upp á svefnpokagistingu. Verönd með gasgrilli og heitum potti.
Umgengnisreglur: Veiðimenn mega koma í hús 1 klst. fyrir veiðitíma en brottfarardag skulu þeir rýma hús 1 klst. eftir að veiðitíma lýkur. Munið ávallt að ræsta hús og hirða rusl.
Skyldugisting: Veiðihúsið Tannastöðum er innifalið í verði.
Hvað þarf að taka með: svefnpoka/sæng, handklæði, tuskur, viskastykki. Þrifefni og gólftuskur eru á staðnum. Gestir eru hvattir til að ganga vel um og skilja við húsið í góðu standi og taka með sér allt rusl.
Umsjónarmaður/veiðivörður: Jón H. Gíslason s. 482 1413/891 7403
Veiðikort: Hægt er að nálgast veiðikort með því að smella hér:kort
Veiðibók: Í veiðihúsi. Veiðimönnum er skylt að skrá allan afla daglega.
Bókanir: Skrifstofa Lax-á, s: 531 6100, stefan@lax-a.is, lax-a@lax-a.is
Netsala smella hér
SKOÐIÐ FLEIRI MYNDIR AF ÁNNI UNDIR MYNDAALBÚM EFST Á SÍÐUNNI
