Norðurá í Skagafirði
Norðurá í Skagafirði
Norðurá er ein af verðveittustu silungsveiðiám á Íslandi með nokkuð góðri laxavon þegar líður á september. Besti veiðitíminn er ágúst og september, þegar bleikjan gengur upp úr Héraðsvötnunum til þess að hrygna í Norðurá. Töluvert af laxi safnast í ármótin þegar hausta tekur og fréttum við af mörgum sem kræktu í laxa sl. sumar.
Í Norðurá í Skagafirði eru leyfðar 6 stangir.
Silungur á
Þá er bara að ná honum á land
Staðsetning: Norðvesturland.
Stangarfjöldi: 6
Tímabil: 1. júlí – 20. september.
Daglegur veiðitími: 7–13 og 16–22 (15.jún.–20. ág.) 7–13 og 15–21 (21. ág.–15. sept.)
Leyfilegt agn: Fluga
Veiðitæki: Einhenda 9-10”, lína 5-7.
Veiðisvæðið í Norðurá í Skagafirði nær frá ós við Héraðsvötn að brú á þjóðvegi 1 við Heiðarsporð
Bestu flugur silungur: Heimasæta, Appelsínugulur nobbler, Queen, Muddler Minnow, Dentist, einnig eru púpur t.d. Peter Ross, Blóðormur og Peacock góðar. Við sum tækifæri eru þurrflugur góð lausn t.d. March Brown, Evrópa og Black Gnat.
Bestu flugur lax: Black Brahan, Frances, Snælda og hefbundar Laxaflugur.
Staðhættir og aðgengi: Mjög gott þó er dálítill gangur á hluta veiðisvæðisins.
Bókanir: Skrifstofa Lax-á, s: 557 6100, og í gegnun tölvupóst stefan@lax-a.is og lax-a@lax-a.is. Netsala smella hér
