Miðfjarðará - silungasvæði
Miðfjarðará - silungasvæði
Mjög eftirsótt bleikjuveiði á Norðurlandi!
Þarna var afar líflegt á köflum í sumar, bleikjuveiðin "kom og fór" eins og títt er með sjóbleikju, flott skot hvað eftir annað, en svo dautt á milli. Eins og vant er þegar mikill lax gengur í Miðfjarðará, þá veiddist talsvert af laxi þarna neðra, einn daginn veiddust t.d. sjö laxar og fjölmargar bleikjur.
Staðsetning: Norðvesturland, við Laugarbakka um 220 km frá Reykjavík.
Veiðisvæði: Ofan við brú á þjóðvegi 1 niður að árósum. (Vel merkt).
Stangarfjöldi: 3 stangir seldar saman.
Tímabil: 15. júní – 25. september.
Daglegur veiðitími:
7–13 og 16–22 (15.jún.–20. ág.)
7–13 og 15–21 (21. ág.–15. sept.)
Leyfilegt agn: Fluga, maðkur og spónn.
Veiðitæki: Einhenda 9-10”, lína 5-7.
Bestu flugur: Heimasæta, Appelsínugulur nobbler, Queen, Muddler Minnow, Dentist, einnig eru púpur t.d. Peter Ross, Blóðormur og Peacock góðar. Við sum tækifæri eru þurrflugur góð lausn t.d. March Brown, Evrópa og Black Gnat.
Staðhættir og aðgengi: Mjög gott þó er dálítill gangur á neðsta hluta veiðisvæðisins.

Veiðihús: Er staðsett við ármót Vesturár og Miðfjarðarár eða við réttirnar sem eru á vinsti hönd þegar keyrt er áleiðis að Laxahvammi.

Eldhúsið er ágætlega búið og er með það helsta sem þarf að vera fyrir 6 manns, einnig er uppþvottalögur og uppþvottabusti. Gasgrill er á staðnum en taka þarf með sér: svefnpoka/rúmföt og baðhandklæði, tuskur, viskastykki.
Húsið er með 12 volta rafmagni og flest gengur fyrir gasi, s.s. ísskápur, hitarar ofl. Húsið er mjög rúmgott og snyrtilegt. Það er pláss fyrir 6 manns í einbreiðum kojum.
Lyklar: Eru í húsinu og biðjum við veiðimenn að skilja þá efir á hanka við útihurð þegar húsið er yfirgefið.

Umsjónarmaður: Skrifstofa Lax-á s: 557 6100 eða Laxahvammur 451-2800.
Veiðikort: Er hægt að nálgast á www.agn.is
Einnig er hægt að nálgast veiðikort með því að smella hér:kort
Veiðibók:
Í merktum kassa við veg á silungasvæði og í veiðihúsi. Mikilvægt er að veiðimenn skrái allan afla daglega.
Bókanir: Skrifstofa Lax-á, s: 557 6100, og í gegnun tölvupóst stefan@lax-a.is og lax-a@lax-a.is. Netsala smella hér.
