Litlaá
Litlá í Kelduhverfi
Einn af betri kostum í sjóbirtingsveiði
Fæst engöngu á www.agn.is
til að sjá laus veiðileyfi kíkið á http://www.agn.is/buylicence.asp?cat_id=900&aid=1062
Litlá er bergvatnsá, sem rennur úr Skjálftavatni í Kelduhverfi sem myndaðist í Kröflueldum 1976, og er vatnið því óvenju heitt, og meðalhiti þess 12°C. Vaxtahraði fiska í Litlá er mikill undir þessum kringumstæðum og er sjóbirtingsstofn árinnar því einn sá stærsti hér á landi..

Auk sjóbirtings veiðist einnig nokkuð magn af sjóbleikju og nokkrir laxar í Litlá. Frábær veiði var í ánni á vertíðinni 2009, mikið af sjóbirtingi, staðbundnum urriða og sjóbleikju..
Stærsti sjóbirtingur landsins veiddist í ánni fyrir nokkrum árum, 23 punda ferlíki. Er mál manna að nokkrir slíkir hafi haldið til í ánni, jafnvel stærri. Svo virðist sem veiða-sleppa fyrirkomulagið hafi skilað skjótri uppsveiflu, því veiðin hefur verið stigvaxandi þau ár sem kerfið hefur verið við lýði..

Áin er staðsett á Norðausturlandi, aðeins steinsnar frá Ásbyrgi í Kelduhverfi u.þ.b. 70 km frá Húsavík. Sex veiðisvæði eru í ánni sem skiptast á 5 stangir. Stærstu sjóbirtingana er að fá á efstu svæðunum þar sem áin er vatnslítil. Í Litlá er bæði að finna fallegar flúðir og hólma..
Svæði eitt nær frá Flóðinu og niður að sameiginlegum ósi með Bakkahlaupi. Svæði tvö liggur sitt hvoru megin við Arnarnesvatn, auk vatnsins sjálfs. Á svæði þrjú er áin orðin straumþung og er það svæði í raun einn samfeldur strengur. Svæði fjögur er þó nokkuð lygnara. Aðeins er veitt á 5 veiðistöðum í einu þannig að eitt svæðanna er alltaf í hvíld..
Það eru 5 stangir seldar í ánni dag hvern og hægt er að kaupa stakar stangir eða heil holl, öll sala á veiðileyfum fer fram á söluvef Lax-á www.agn.is . Tímabilið er með því lengra sem gerist hér á klakanum eða frá 1 mai til 10 octóber. Daglegur veiðitími er 7–13 og 16–21..

Eingöngu er veitt á flugu við Litluá og er skylduslepping á öllum afla, það hentar best að veiða á einhendu í ánni, stærð 5-7. Vinsælustu flugurnar undanfarinn ár eru Black Ghost, Dentist, Heimasæta, Ýmsir Nobblerar, Púpur, Lirfueftirlíkingar og Þurrflugur..

Gott aðgengi er við ánna, Veiðistaðirnir eru flestir vel aðgengilegir en betra er að hafa jeppa á neðri svæðunum. Veiðihús er í Keldunesi, það fylgir þó ekki veiðileyfunum, það þarf að panta það aukalega hjá Báru í Keldunesi, en frá gistihúsinu í Keldunesi þarf ekki einu sinni að keyra út á þjóðveg til að fara að Litluá. Þarna má finna heitan pott, 6 tveggja manna herbergi með uppábúnum rúmum..

Notaleg borðstofa og sjónvarpsstofa ásamt mjög góðri eldunaraðstöðu. Valkostur er að kaupa tilbúnar máltíðir. Einnig eru nokkur stök smáhýsi hluti af ferðaþjónustunni í Keldunesi. Í félagsheimilinu Skúlagarði er einnig rekin ferðaþjónusta með gistingu og veitingum. Í sveitinni er auk þess bændagisting á nokkrum bæjum..
Veiðileyfi skal bera á sér við veiðarnar og sýna veiðiverði, sé þess óskað. Eingöngu er leyft að veiða á flugu samkvæmt veiða/sleppa aðferð. Óheimilt er að aka bifreiðum utan vegaslóða, yfir gróið land, eða þar sem skemmdir geta hlotist af. Öll meðferð skotvopna er stranglega bönnuð..
Þegar tveir eru um stöng, skulu þeir vera á sama veiðisvæði og einungis annar má veiða í einu. Sé brotið gegn einhverri af framangreindum reglum, eða óleyfilegt agn notað, varðar það tafarlausum brottrekstri úr ánni, bótalaust..
Allar frekari upplýsingar má nálgast á skrifstofu Lax-á í síma 531-6100 og hægt er að versla veiðileyfi beint inná www.agn.is

