Galtalækur
Galtalækur
VEITT OG SLEPPT!
Lítil á sem kemur á óvart! Möguleiki á stórurriðaveiði
Þarna fengu ýmsir gríðarlega skemmtilega veiði í vor og sumar, en þetta er krefjandi lítil spræna, urriðinn dyntóttur, styggur og á stundum hreinlega leiðinlegur! En finni menn réttu aðferðina eða réttu fluguna, þá gleyma menn stund og stað. Þarna eru afar vænir fiskar í bland.

Staðsetning: Suðurland, um 100 km frá Reykjavík.
Stangarfjöldi: 2 stangir, seldar saman.
Veiðisvæði: Frá brú neðan við bæinn Galtalæk niður undir ármót Galtalækjar og Ytri Rangár. Skylt er að sleppa öllum fiski.
Tímabil: 1. apríl - 20. sept.
Daglegur veiðitími: 7–13 og 16–22 (23 júní - 20 ágúst.) 7–13 og 15–21 (21. ág. – 20 sept.)
Meðalvigt: 3 pund
Leyfilegt agn: Fluga
Veiðitæki: Einhenda 9-10”, lína 6-8.
Bestu flugur: Black Ghost, Nobblerar svartur/olive, Flæðamús svört og Rektor. Einnig eru púpur og ninfur t.d. Peacock, Pheasant Tail og Killer. Í góðu veðri er gott að nota þurrflugur t.d. Black Gnat, Evrópa og flestar cdc flugur.
Staðhættir og aðgengi: Hægt er að aka að flestum veiðistöðum á 4WD bílum.

Fallegi veiðistaðir í ánni.

Galtalækur er lítil á því þarf að fara með aðgát að ánni.

Fallegir hyljir eru víða í ánni.
Veiðihús: Hægt er að leigja nýtt og glæsilegt veiðihús í Heklubyggð en það fylgir ekki með veiðileyfinu. Heklubyggðarhúsið er í landi Svínhaga í Rangárþingi ytra. Húsið er rúmgott með svefnpláss fyrir 6 manns í tveimur herbergjum og svefnsófa í stofu. Gufubað og vöðlugeymsla í sér húsi.
Leiðarlýsing í húsið: Ekið er að Hellu og um 2 km austan við Hellu er beygt til vinstri inná Rangárvallarveg, merkt Gunnarsholt á skilti - vegur nr 264 og hann ekinn um 7 km og þá er beygt til vinstri inná Þingskálaveg, merkt Næfurholt á skilti - vegur 268. Sá vegur er ekinn um 18 km að upplýsingaskilti um Heklubyggð. Ekið er inn í hverfið og við fyrstu "gatnamót" er ekið til hægri, ekið framhjá nokkrum húsum/lóðum áður en komið er að veiðihúsinu en það er á vinstri hönd og sést ekki frá veginum, en það er blátt skilti við afleggjarann sem á stendur Veiðihús. Veiðihúsið er um 110 km frá Reykjavík.
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Lax-á til að athuga hvort húsið er laust s: 531-6100.
Veiðikort: Fáanlegt á www.agn.is
Einnig er hægt að nálgast veiðikort með því að smella hér:kort1 -kort 2
Veiðibók: Vinsamlegast skráið allan afla í veiðibók sem er staðsett á sveitabænum Galtalæk eða hafið samband við Svein og Sigurbjörgu í síma 861-6528 eða 894-4460.
Bókanir: Skrifstofa Lax-á, s: 531 6100, stefan@lax-a.is og lax-a@lax-a.is. Netsala smella hér
