Eldvatn
Eldvatn
Lax-á hefur ásamt bændum í Meðallandi staðið fyrir miklu ræktunarstarfi í Eldvatni. Eldvatn er á Suðurlandi, um 270 km frá Reykjavík, 15 mín. akstur frá Kirkjubæjarklaustri. Ekið er áleiðis til Kirkjubæjarklausturs og farið yfir brúna á Kúðafljóti síðan fljótlega tekinn afleggjari til suðurs/hægri niður í Meðalland. Ekið er þar til komið er að brúnni á Eldvatni, veiðihúsið stendur 300 metrum ofan við brúna á norður bakka Eldvatns. Meðallandsafleggjarinn er hringvegur, og endar hann upp við brýrnar á Skaftá. Það má einnig aka alla leið til Kirkjubæjarklausturs og fara niður Meðallandsafleggjarann þeim megin niður í Eldvatn.
Veiðisvæði: Vatnasvæði Eldvatns er um 20 km með um 40 merktum veiðistöðum.
Stangarfjöldi: 6 stangir og fylgir 1 herbergi hverri stöng. Ef allar 6 stangirnar eru keyptar saman fylgir allt veiðihúsið með (8 herbergi).
Tímabil: 20. júní – 10. október.
Daglegur veiðitími:
7–13 og 16–22 (1. júl.–20. ág.)
7–13 og 15–21 (21. ág.–10. okt.)
Meðalvigt: 4,5 pund.
Leyfilegt agn: Fluga, maðkur og spónn.
Veiðitæki: Einhenda 9-10”, lína 6-9.
Bestu flugur: Flæðamús, Kötturinn, Tveir á kamrinum, Nobblerar svartur/ appelsínugulur, annars er líka mikið notaðar kúlupúpur þá helst í náttúrulegum litum t.d. svartar, brúnar og gráar.
Staðhættir og aðgengi: Erfitt aðgengi. Einungis 4WD bílfært.
Umgengnisreglur: Veiðimenn mega koma í hús 1 klst. fyrir veiðitíma en brottfarardag skulu þeir rýma herbergi/ hús 1 klst. eftir að veiðitíma lýkur. Munið ávallt að ræsta hús og hirða rusl.
Skyldugisting: Nei.
Umsjónarmaður: Hávarður Ólafsson, s. 487 4722 / 853 2547/893 2547
Veiðikort: Fáanlegt á skrifstofu Lax-á.
Veiðibók: Í veiðihúsinu. Veiðimönnum er skylt að skrá allan afla daglega.
Eldvatns sjóbirtingur sem er yfir meter að lengd!
Nobblerar, Wholly Buggers, og púpur virka vel í Eldvatni.
Frá vestari kvísl, fullt af góðum stöðum þarna uppfrá.
Horft upp ána, frábært útsýni til jökulsins.

Veiðihús: Fyrsta flokks, 8 tveggja manna herbergi sem deila fjórum baðherbergjum. Eldhús og setustofa eru í sérhúsi, sem og aðgerðarhús með þvottavél, þurrkara og geymslu fyrir veiðitæki. Heitur pottur og gufubað í hraunbolla fyrir aftan húsin. Öll aðstaðan tengist með stórri verönd með útihúsgögnum og gasgrilli.
Borðsalurinn í veiðihúsinu.
Gott að slaka á eftir veiðidaginn í heita pottinum.
Og hvíla lúin bein í gufunni góðu.
Alltaf gott íslenska lambið á grillinu.
Oftar en ekki er besti veiðitíminn seint á haustin, þá getur verið kalt og er betra að vera vel klæddur við veiðarnar.

Bolti úr Eldvatni

Og annar....
Þessi Eldvatns bolti var yfir 20 pund!
Bókanir: Skrifstofa Lax-á, s: 557 6100, netsala smella hér , einnig á netföngum lax-a@lax-a.is og stefan@lax-a.is.
