Bjarnafjarðará
Bjarnarfjarðará
Falleg og eftirsótt sjóbleikjuá í nágrenni Hólmavíkur!
Þessi á hefur lengi haft sinn áhangendahóp og vissulega hefur veiðin í henni verið upp og niður í gegnum árin. Sl. sumar var þó með þeim betri í langan tíma og mörg dæmi um að menn fengju góðan afla. Þá var bleikjan mjög væn og stórir fiskar innanum.

Staðsetning: Bjarnarfjörður á Ströndum, 35 mín. akstur frá Hólmavík. Veiðisvæði: Um 7 km með 25 merktum veiðistöðum. Vatnasvæði árinnar er mjög fallegt og býður upp á fjölbreytt veiðisvæði. Bjarnarfjarðará er ein eftirsóttasta sjóbleikjuá landsins, þar veiðast einnig nokkrir laxar á hverju sumri.

Tímabil: 21. júní – 21. september.
Daglegur veiðitími:
7–13 og 16–22 (20. jún.–20. ág.)
7–13 og 15–21 (21. ág.–10. sept.)
Leyfilegt agn: Fluga, maðkur og spónn.
Veiðitæki: Einhenda 9-10”, lína 5-7.
Bestu flugur: Ýmsar tegundir af straumflugum, þurrflugum og púpum.
Staðhættir og aðgengi: Gott, hægt er að aka að flestum veiðistöðum.
Stangarfjöldi: 4 stangir

Veiðihús: Nei, en Hótel Laugarhóll býður upp á góða gistingu við árbakkann. Þar er sundlaug, heitir pottar og veitingasala. Tjaldsvæði er á bænum Klúku og við Laugarhól.
Skyldugisting: Nei.
Veiðikort: Er hægt að nálgast með því að smella hér:kort eða fara á www.agn.is.
Veiðibók: Á hótel Laugarhóli. Veiðimönnum er skylt að skrá allan afla daglega.
Bókanir: Netsala smella hér
Nánari upplýsingar á skrifstofu Lax-á s: 557 6100 og í gegnum tölvupóst: lax-a@lax-a.is og stefan@lax-a.is
