Laxá á Ásum
.
Helmings aukning frá árinu áður en árið 2009 veiddust 1142 laxar í þessari fallegu á!
Laxá á Ásum er ein af víðfrægustu perlum laxveiðinnar. Laxá á Ásum hefur í gegnum áranna rás gefið þvílíka óhemju veiði að leitun hefur verið að öðru eins. Nú seinustu ár hefur hún verið að rísa upp eftir lægð þegar gengið var of nærri laxastofninum seint á níunda áratugnum. Nú er aðeins fluguveiði leyfð og hefur verið þannig seinustu ár, enda eru fáar ár sem bera fluguna jafn vel og Ásarnir.
Áin er lítil og frekar viðkvæm en þrátt fyrir það gengur gríðar mikið magn af laxi í hana ár hvert og ef skilyrðin eru eðlileg geta menn lent í svakalegum ævintýrum. Það er ekki að ástæðu lausu að hróður hennar hefur borist víða. Í ánni hafa veitt bæði konungsbornir jafnt sem heimsfrægir veiðimenn og listamenn, enda er fegurð árinnar og umhverfisins óviðjafnanleg og menn koma aftur og aftur ár eftir ár.
ATHUGIÐ AÐ Í SEPTEMBER ER SKYLT AÐ SLEPPA ÖLLUM FISKI.

Staðsetning: Norðvesturland. Um 270 km frá Reykjavík.
Veiðisvæði: 14 km um 30 veiðistaðir.
Stangarfjöldi: Tvær stangir.
Tímabil: 30 júní – 10. sept. 2010 - Í SEPTEMBER ER SKYLT AÐ SLEPPA ÖLLUM FISKI.
Daglegur veiðitími:
7–13 og 16–22 (30 júní. – 20. ág.)
7–13 og 15–21 (20. ág. – 10. sept.)
Veiði 2006: 361
Veiði 2007: 537
Veiði 2008: 503
Veiði 2009: 1142
Veiði 2010: 763
Meðalvigt: 6,5 pund.
Leyfilegt agn: Fluga.
Veiðitæki: Einhenda 9-10”, flotlína 6-8.
Bestu flugur: Green But, Microtúbur, Gárutúbur og Blue Rat.
Staðhættir og aðgengi: Aðgengi er ágætt. Þó er dálítill gangur að veiðihyljum á miðsvæði árinnar. Mælt er með 4WD bílum á slóðum á efri hluta árinnar þ.e. frá Klapparkvörn í Langhyl.

Veiðihús: Þrjú svefnherbergi, eldhús, stofa og baðherbergi. Eingöngu er boðið upp á svefnpokagistingu. Verönd með grilli, heitur pottur.
Umgengnisreglur: Veiðimenn mega koma í hús 1 klst. fyrir veiðitíma en brottfarardag skulu þeir rýma hús 1 klst. eftir að veiðitíma lýkur. Munið ávallt að ræsta hús og hirða rusl.
Skylt er að sleppa öllum stórlaxi - stórlax er lax yfir 70cm að lengd.
Skyldugisting: Veiðihús innifalið í verði.
Veiðikort: Hægt að nálgast á www.agn.is
Veiðibók: Í veiðihúsi. Veiðimönnum er skylt að skrá allan afla daglega.
Bókanir: Skrifstofa Lax-á, s: 531 6100, netsala smella hér
Ullarstrengur
Holtskvörn
Kóki
Ullarbreiða

George Pearson með aflann
Bókanir og nánari upplýsingar: Stefán Sigurðsson, skrifstofa Lax-á, s: 531 6100 eða stefan@lax-a.is.
Netsala smella hér
SKOÐIÐ FLEIRI MYNDIR AF ÁNNI UNDIR MYNDAALBÚM EFST Á SÍÐUNNI
