Eystri-Rangá
.
Eystri Rangá

Veiðimenn ATH
Veiðimenn eru vinsamlega beðnir um að sleppa öllum 2 ára hrygnum í þartilgerðar klakkistur í ánni.
Staðsetning: Suðurland, um 100 km frá Reykjavík.
Veiðisvæði: Veitt er á 9 svæðum.
Stangarfjöldi: 18 stangir
Tímabil á vegum Lax-á: 4. júlí - 3. sept.
Seld holl/dagar: Tveir eða fleiri dagar seldar saman, frá hádegi til hádegis.
Daglegur veiðitími:
7–13 og 16–22 (10. jún. – 15. ág.)
7–13 og 15–21 (15. ág. – 10. sept.)
Veiði 2004: 3155 laxar
Veiði 2005: 4222 laxar
Veiði 2006: 2475 laxar
Veiði 2007: 7525 laxar
Veiði 2008: 7013 laxar
Veiði 2009: 4229 laxar
Veiði 2010: 6280 laxar
Meðalvigt: 8 pund.
Leyfilegt agn: Fluga, maðkur og spónn.
Veiðimenn eru Vinsamlega beðnir um að sleppa öllum 2 ára hrygnum lifandi í Laxakistur á tilgerðum veiðisvæðum og að launum fá hálfa þyngd laxsinns af reyktum laxi frá Reykofninum.
Klakkistur
Félagið hefur sett upp klakkistur við helstu veiðistaði og eru stórlaxar keyptir af veiðimönnum. Er miðað við hrygnur sem eru stærri en 75 cm og hængar sem eru stærri en 85 cm. Veiðimenn fá 50 % af þyngd laxsins sem þeir setja í klakkistur í formi reykts stórlax úr Þjórsá og Hvítá.
Meðferð á klakfiski
Fullþreyta þarf fisk sem setja á í klakkistu,nota þarf hnútalausan háf og forðast allt hreisturslos. Alls ekki má stranda laxi sem setja á í kistu. Ef fiskur er tekin á maðk má klippa á girni í stað þess að reyna að losa öngul sem er djúpt tekinn. Auðvelt er að flytja hrygnur lifandi í klakkistu ef hrygnan er flutt í laxaplasti með hausinn niður og laxaplastpokinn hafður hálffullur af vatni. Gott er ef flytja á hrygnur um lengri veg að hafa plastið tvöfalt.
Hentugustu veiðitæki: Tvíhenda 13-15”, lína 9-11. Mælt er með sökktaum.
Bestu flugur: Pool fly, Snælda, Black & blue, Sunray shadow, Collie Dog og Willie Gun.
Staðhættir og aðgengi: Gott, bílfært að langflestum veiðistöðum.
Veiðihús: Veiðihúsið er staðsett fyrir ofan svæði 5. Þar eru 18 tveggja manna herbergi öll með sérbaðherbergi. Góður veitingasalur og setustofa með bar. Við húsin eru tveir heitir pottar, aðgerðarhús og vöðlugeymsla.
Umgengnisreglur: Veiðimenn mega koma í hús 1 klst. fyrir veiðitíma en brottfarardag skulu þeir rýma herbergi/hús 1 klst. eftir að veiðitíma lýkur.
Skyldugisting með fæði: 6. júlí – 4. sept.
Umsjónarmaður/veiðivörður: Einar Lúðvíksson s. 894 1118.
Veiðikort: Hægt er að nálgast veiðikort á www.agn.is
Veiðibók: Liggur frammi í húsi umsjónarmanns við Veiðihús Eystri Rangár. Skylt er að skrá allan afla daglega og tilkynna merkta laxa til umsjónarmanns.
Sími í veiðihúsi: 487 6680
Bókanir og nánari upplýsingar:
Stefán Sigurðsson, skrifstofa Lax-á, s: 531 6100 eða stefan@lax-a.is
Netsala smella hér
Fallegar myndir frá Eystri (Mynd: Pétur K. Hlöðversson)
Eystri Rangá (Mynd: Pétur K. Hlöðversson)

Góður afli

Við árbakkann

Níls Jörgensen leiðsögumaður og ánægður veiðimaður
Aflinn bíður á bakkanum
Óli yfirleiðsögumaður leggur í´ann með veiðimann (Mynd:Pétur K. Hlöðversson)
Veiðihúsið við Eystri Rangá

Rúmgóð setustofa og bar
Kátir veiðimenn í lok veiðidags
Einstök upplifun í sveitinni. (Mynd: Pétur K. Hlöðversson)
Bókanir og nánari upplýsingar:
Stefán Sigurðsson, skrifstofa Lax-á, s: 531 6100 eða stefan@lax-a.is
Netsala smella hér
