Blanda II

blanda2kropp

Blanda II

Frábært veiðisvæði fyrir alvöru veiðimenn.

Svæði 2 er eitt af þeim veiðisvæðum sem er stórt, mikið vatn og margir veiðistaðir, sem þýðir að menn verða að vera duglegir að fara á milli staða og leita.

Öll svæði í Blöndu verða seld sér sumarið 2011.


DSC00243

Svæði II í Blöndu nær frá dæluhúsi í landi Breiðavaðs að fremsta grjótgarði úti í Blöndu, við heimreið að Æsustöðum að austan. Að vestan ræður merki sem þar hefur verið sett niður og er nokkru framar. Sömu mörk og sl. 6 ár.

Stangarfjöldi: 6 stangir.
Tímabil: 20. júní - 20. sept.

Svæðaskipting: Á svæði 2 eru 6 stangir og skiptist svæðið þannig:

2 stangir eru á svæðinu frá laxastiga að Strjúgsstöðum (veiðistaðir 200 að 247)

2 stangir eru á svæðinu ofan Strjúgsstaða að Vík, neðan Vaðstrengs (veiðistaðir 250 að 270)

2 stangir eru á svæðinu frá Vaðstreng og uppfyrir Svarthyl ( veiðistaðir 271 að 277)

Veitt er í 3 tíma á hverju svæði í senn.

Veiðimenn verða að mæta í veiðihúsið Hólahvarf til að draga um skiptingar áður en veiðitími hefst.

Komist allar stangir að samkomulagi um aðra skiptingu en þá sem hér er lýst

skal sú skipting gilda fyrir það holl.

Seld holl/dagar:
Seldar eru saman tvær og tvær stangir.

Daglegur veiðitími: 7–13 og 16–22 (20. jún.–20. ág.) 7–13 og 15–21 (21. ág.–20. sept.

Veiðitölur 2009: 2.413
Veiðitölur 2010: 2.777

Meðalvigt: 8 pund.

Hentugustu veiðitæki: Tvíhenda 13-15” fyrir línu 9-11. Lax-á hvetur veiðimenn til að sleppa stórlaxi í öllum tilfellum, einnig þar sem það er ekki skylt.

Bestu flugur: Gárutúbur, Sunrise Shadow, Munroe Killer og Francis.

Jack White með 22 punda
Sumarið 2006 veiddist 22 punda lax í Blöndu á svæði II. Það var Bandaríkjamaður að nafni Jack White sem veiddi hann í Svarthyl. Laxinn veiddist á flugu eða nánar tiltekið á Sunshine Hitch túpu Nr. 14 og tók viðureignin heila tvo tíma.

Staðhættir og aðgengi: Aðgengi að Blöndu II er víðast mjög gott. Menn geta ferðast um svæðið á nánast hvaða bíl sem er. Betra er þó að vera á 4WD bílum ef aðstæður eru slæmar.

DSC00115

Neðarlega á svæði II

DSC00054

Neðarlega í Svarthyl

RIMG0002

Þýsk snælda

IMG_0440

Slakað á í setustofunni

Blanda_anglers
Kiddi og Alli leiðsögumenn í pásu

Veiðikort: Er hægt að nálgast á agn.is, einnig er hægt að nálgast veiðikort með því að smella hér:kort1 -kort 2

Veiðibók: Er í veiðihúsinu Hólahvarfi. Veiðimönnum er skylt að skrá allan afla daglega.

Sími í veiðihúsi: 451 4070

Bókanir og nánari upplýsingar:
Stefán Sigurðsson, skrifstofa Lax-á, s: 531 6100 eða stefan@lax-a.is
Netsala smella
hér


SKOÐIÐ FLEIRI MYNDIR AF ÁNNI UNDIR MYNDAALBÚM EFST Á SÍÐUNNI




Til baka Senda grein Prenta greinina

 

Blanda II


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

1

28.3.2012 : Vorljóð frá Sveini á Galtalæk

Vinur okkar og landeigandi á Galtalæk Sveinn Sigurjónsson sendi okkur fallegt vorljóð sem varð til í gærkvöldi. Afar skemmtilegt ljóð í tilefni vorkomu og þess að veiði hefst í Galtlæk eftir einungis nokkra daga.

Lesa meira
 
DSC00337

19.3.2012 : Kúba - Paredon 21-28. apríl

Eigum lausar tvær stangir á besta tíma á Kúbu fyrir Tarpon, Bonefish og Permit veiðar. Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Árna arnibald@lax-a.is eða í GSM 898 3601.

Lesa meira
 
Axeló á Hreindýri8

20.2.2012 : 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða

Umhverfisstofnun hefur borist 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða. Endanlegur fjöldi er ekki enn ljós þar sem einhverjar umsóknir gætu verið á leiðinni í pósti. Heimilt verður að veiða 1009 dýr. Þegar allar umsóknir verða komnar í hús verður farið yfir þær með tilliti til hvort allir sem sækja um leyfi hafi tilskilin réttindi. Dregið verður úr gildum umsóknum í lok febrúar.

Lesa meira
 
4

16.2.2012 : Laxasetur Íslands óskar eftir aðstoð

Laxasetur Íslands opnar í sumar. Af því tilefni vantar okkur gamla muni sem tengjast lax- og silungsveiði á Íslandi. Munirnir verða til sýnis á setrinu ásamt upplýsingum um uppruna og sögu. Við leitum eftir munum ýmist gefins eða að láni.

Nánari upplýsingar veita verkefnastjórar sýningarinnar, Helga og Kristín hjá mekt.menningarmidlun@gmail.com

Lesa meira
 
RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 
kertasnikir[1]

28.12.2011 : Vinningshafar í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á

Búið er að draga úr seldum gjafabréfum í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á en þrír stórir vinningar voru í boði ásamt fimm ársáskriftum að Sportveiðiblaðinu. Góð sala var á gjafabréfum fyrir Jól og voru því mörg nöfn í pottinum. Búið er að hafa samband við vinningshafa og þökkum við öllum fyrir þáttökuna og óskum vinningshöfum innilega til hamingju.

Lesa meira
 
p15

19.12.2011 : Að hamfletta rjúpur

Nú styttist í Jólin og margir eflaust búnir að skjóta sér rjúpur jólamatinn. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga góða að til að kenna þeim handtökin við að hamfletta rjúpurnar. Til að stytta mönnum tímann við að leita að leiðbeiningum ákváðum við að safna saman nokkrum tenglum þar sem þessi handtök eru kennd.

Lesa meira
 
pottaskefill[1]

15.12.2011 : Jólastemning hjá Lax-á

Jóla-Gjafabréfaleikur Lax-á er í fullum gangi og gjafabréfin rjúka út eins og heitar lummur þessa daganna. Mögulegt er að kaupa gjafabréf frá 5000 til 500.000 og fylgja góðar gjafir með gjafabréfunum ásamt því að þú átt möguleika á að vinna veglega vinninga.

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar