Blanda I
.
Vatnsmikil stórlaxaá!
Blanda hefur skipað sér öruggt sæti sem ein af bestu vorveiði laxveiðiám Íslands með sérstaklega öflugar stórlaxagöngur fyrri hluta sumars. Júní og júlí eru sérstaklega öflugur tími og er vart fundin önnur laxveiðiá á Íslandi sem gefur jafn mikið af laxi og þá sérstaklega stórlaxi.
Dammurinn og Breiðan á svæði 1 er sjóðheit nánast allt tímabilið og eru fáir veiðistaðir sem gefa þeim eftir. Blanda er vatnsmikil stórlaxaá og oft nefnd veiðimannaá því hún er krefjandi, vatnsmikil og getur haft marga veiðistaði á einum veiðistað.
Veiðireglur í Blöndu
Maðkur er einungis leyfður í Dammi norðan og sunnan (Dammur og Bugur) og í Holu efst á svæðinu. Fyrir neðan Damm, er eingöngu leyfð fluga. Spúnn er bannaður á öllu svæðinu! Einnig er 12 laxa kvóti á stöng á dag.
Þessi tilhögun er í gildi frá opnun og fram til 5. ágúst. Eftir 5. ágúst eru ekki hömlur á agni - en sami kvóti er þó áfram á hverja stöng.
Áfram verða öll svæði seld sérstaklega, þ.e.a.s. Blanda 1 og 2 eru ekki seld saman eins og lengi hefur verið.

Staðsetning: Norðvesturland. Blanda rennur í gegnum Blönduós, um 250 km frá Reykjavík.
Tímabil: 5. júní-5.sept.
Stangarfjöldi: 4 stangir, tvær á hvorum bakka.
Seld holl/dagar: Seldar eru holl og stakir dagar, 1 - 4 stangir í einu.

Daglegur veiðitími:
7–13 og 16–22 (20. jún.–20. ág.)
7–13 og 15–21 (21. ág.–20. sept.)
Veiðitölur 2009: 2.413 laxar
Veiðitölur 2010: 2.777 laxar
Veiðitölur 2011: 2.032 laxar
Meðalvigt: 8 pund.
Hentugustu veiðitæki: Tvíhenda 13-15” fyrir línu 9-11.
Leyfilegt agn: Fluga og maðkur í Dammi og Holu, eingöngu fluga á Breiðu og neðar. Lax-á hvetur veiðimenn til að sleppa stórlaxi í öllum tilfellum, einnig þar sem það er ekki skylt.
Bestu flugur: Gárutúbur, Sunrise Shadow, Munroe Killer, Francis, Snældur ofl.
Staðhættir og aðgengi: Aðgengi að Blöndu er víðast gott. Menn geta ferðast
um svæðið á nánast hvaða bíl sem er. Betra er þó að vera á 4WD bílum ef aðstæður
eru slæmar. Ekið er upp á svæði 1 frá Blönduósi að vestanverðu við Blöndu, upp að og í gegnum hesthúsabyggð þar sem vegurinn liggur að Blöndu og endar á bílastæði. Þaðan er örstuttur gangur að ánni. Þeir sem eiga veiði á austurbakkanum fara sömu leið og komast þeir yfir göngubrú beint fyrir neðan bílastæðið. Blanda er mjög vatnsmikil og straumhörð á, því hvetjum við veiðimenn til að fara mjög varlega og nota vaðstaf og björgunarvesti við veiðar.
Veiðihús: Glæsilegt veiðihús er risið ofarlega á svæði 2. Þar eru 12 gestaherbergi, öll tveggjamanna með baði. Rúmgóð borðstofa og björt og stór setustofa. Tveir heitir pottar eru á verönd og gufubað er í húsinu. Aðgerðaherbergi með stórum frysti og aðstaða öll til fyrirmyndar.
Veiðikort: Fáanlegt á www.agn.is
Einnig er hægt að nálgast veiðikort með því að smella hér:kort1 -kort 2
Veiðibók: Er í Hólahvarfi fram til 20. ágúst, en í Kúagerði (á svæði 1) eftir það.
Sími í veiðihúsi: 451 4070
Bókanir og nánari upplýsingar: Stefán Sigurðsson, skrifstofa Lax-á, s: 531 6100 eða stefan@lax-a.is

Dammur

Einn góður af Breiðunni að norðan
Náttúrufegurð Langadals
Neðst á Breiðunni

Rúmgóð setustofa
Gestaherbergi

Baðherbergi er í hverju herbergi

Veitingasalur

Leiðsögumenn í pásu
Bókanir og nánari upplýsingar:
Stefán Sigurðsson, skrifstofa Lax-á, s: 531 6100 eða stefan@lax-a.is
Netsala smella hér
