Ytri Rangá Heiði

westkropp

Ytri Rangá - Heiði og Bjallalækur

Laxveiðisvæðið Heiði og Bjallalækur í Ytri Rangá er núna 8 stanga svæði en hluti af Réttanessvæðinu fellur nú undir þetta svæði. Veiðisvæðið nær frá Grjótneshyl og upp að Réttarnesi. Þar með eru vinsælustu veiðistaðir Réttarness; Kríueyrar og Kletthólmi komnir undir veiðisvæði Heiði Bjallalæk.

Veiðibók: Veiðifélagið mun auka eftirlit með skráningu sumarið 2010 . Veiðibækur verða staðsettar að austanverðu á Kaldbak. Viðar Steinarsson Sími: 8621957 og vestanverðu sér Finnur Egilsson um skráningu í Mið -Seli sími: 8933585 eða 8984790 .

Veiðihús: Hægt er að leigja nýtt og glæsilegt veiðihús í Heklubyggð en það fylgir ekki með veiðileyfinu.

Heklubyggd

Heklubyggðarhúsið er í landi Svínhaga í Rangárþingi ytra. Húsið er rúmgott með svefnpláss fyrir 6 manns í tveimur herbergjum og svefnsófa í stofu. Gufubað og vöðlugeymsla í sér húsi.

Heklubbygð Stofa                                                                     

Leiðarlýsingí húsið: Ekið er að Hellu og um 2 km austan við Hellu er beygt til vinstri inná Rangárvallarveg, merkt Gunnarsholt á skilti - vegur nr 264 og hann ekinn um 7 km og þá er beygt til vinstri inná Þingskálaveg, merkt Næfurholt á skilti - vegur 268. Sá vegur er  ekinn um 18 km að upplýsingaskilti um Heklubyggð.  Ekið er inn í hverfið og við fyrstu "gatnamót" er ekið til hægri, ekið framhjá nokkrum húsum/lóðum áður en komið er að veiðihúsinu en það er á vinstri hönd og sést ekki frá veginum, en það er blátt skilti við afleggjarann sem á stendur Veiðihús.  Veiðihúsið er um 110 km frá Reykjavík.    Heklubyggð Eldhus

 Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Lax-á til að athuga hvort húsið er laust s: 531-6100.

 

Í Mið-Seli er boðið einnig möguleiki á gistingu í nýuppgerðu sumarhúsi, upplýsingar um húsið í Mið-Seli. Á efri hæð er gistiaðstaða fyrir þrjá, salerni og sturta. Á neðri hæð er gistiaðstaða fyrir 3-4, salerni, eldhúskrókur og borðstofukrókur+stofa. Fylgihlutir; góð rúm, sængur, koddar, borðbúnaður fyrir 10 manns, eldavél með bakarofni, örbylgjuofn, sjónvarp, útvarp, cd spilari, ísskápur og útigrill

Bókanir: Á www.agn.is og á skrifstofu Lax-á s: 531 6100 og í gegnum tölvupóst: lax-a@lax-a.is og stefan@lax-a.is  


 




 

 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

1

28.3.2012 : Vorljóð frá Sveini á Galtalæk

Vinur okkar og landeigandi á Galtalæk Sveinn Sigurjónsson sendi okkur fallegt vorljóð sem varð til í gærkvöldi. Afar skemmtilegt ljóð í tilefni vorkomu og þess að veiði hefst í Galtlæk eftir einungis nokkra daga.

Lesa meira
 
DSC00337

19.3.2012 : Kúba - Paredon 21-28. apríl

Eigum lausar tvær stangir á besta tíma á Kúbu fyrir Tarpon, Bonefish og Permit veiðar. Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Árna arnibald@lax-a.is eða í GSM 898 3601.

Lesa meira
 
Axeló á Hreindýri8

20.2.2012 : 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða

Umhverfisstofnun hefur borist 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða. Endanlegur fjöldi er ekki enn ljós þar sem einhverjar umsóknir gætu verið á leiðinni í pósti. Heimilt verður að veiða 1009 dýr. Þegar allar umsóknir verða komnar í hús verður farið yfir þær með tilliti til hvort allir sem sækja um leyfi hafi tilskilin réttindi. Dregið verður úr gildum umsóknum í lok febrúar.

Lesa meira
 
4

16.2.2012 : Laxasetur Íslands óskar eftir aðstoð

Laxasetur Íslands opnar í sumar. Af því tilefni vantar okkur gamla muni sem tengjast lax- og silungsveiði á Íslandi. Munirnir verða til sýnis á setrinu ásamt upplýsingum um uppruna og sögu. Við leitum eftir munum ýmist gefins eða að láni.

Nánari upplýsingar veita verkefnastjórar sýningarinnar, Helga og Kristín hjá mekt.menningarmidlun@gmail.com

Lesa meira
 
RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 
kertasnikir[1]

28.12.2011 : Vinningshafar í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á

Búið er að draga úr seldum gjafabréfum í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á en þrír stórir vinningar voru í boði ásamt fimm ársáskriftum að Sportveiðiblaðinu. Góð sala var á gjafabréfum fyrir Jól og voru því mörg nöfn í pottinum. Búið er að hafa samband við vinningshafa og þökkum við öllum fyrir þáttökuna og óskum vinningshöfum innilega til hamingju.

Lesa meira
 
p15

19.12.2011 : Að hamfletta rjúpur

Nú styttist í Jólin og margir eflaust búnir að skjóta sér rjúpur jólamatinn. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga góða að til að kenna þeim handtökin við að hamfletta rjúpurnar. Til að stytta mönnum tímann við að leita að leiðbeiningum ákváðum við að safna saman nokkrum tenglum þar sem þessi handtök eru kennd.

Lesa meira
 
pottaskefill[1]

15.12.2011 : Jólastemning hjá Lax-á

Jóla-Gjafabréfaleikur Lax-á er í fullum gangi og gjafabréfin rjúka út eins og heitar lummur þessa daganna. Mögulegt er að kaupa gjafabréf frá 5000 til 500.000 og fylgja góðar gjafir með gjafabréfunum ásamt því að þú átt möguleika á að vinna veglega vinninga.

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar