Tungufljót

bru

Tungufljót - Laxasvæði

Laxasvæðið í Tungufljóti nær frá fossinum Faxa fram hjá Reykholti og niður í Ósa Tungufljóts og Hvítá. Þetta veiðisvæði hefur verið í ræktun síðustu ár þar sem seiðasleppingar hafa tekist með eindæmum vel og mun í framtíðinni vera eitt af aðal laxveiðisvæðum Lax-á.

Tung601

Fallegur dagur við Faxa í Júlí.

Staðsetning: Suðurland, um 100 km frá Reykjavík nálægt Reykholti í Biskupstungum

Veiðisvæði: Veitt er á 2-3 veiðisvæðum. 2 stangir á svæði

Stangarfjöldi: 6 stangir

Seld holl/dagar:
Tveir eða fleiri dagar seldar saman, frá hádegi til hádegis.

Daglegur veiðitími: 7–13 og 16–22 (24. jún. – 20. ág.) 7–13 og 15–21 (20. ág. – 20 sept.) 7-13 og 14-20 (20 sept- 10 okt)

2005: ca 90 laxar
2006: ca 200 laxar
2007: 590 laxar
2008: ca 2500 laxar
2009: 1500 laxar
2010: 805 laxar

Leyfilegt agn: Aðeins fluguveiði 

Hentugustu veiðitæki: Tvíhenda 13-15”, lína 9-11. Mælt er með sökktaum.

Bestu flugur:  Frances , Snælda, Black & blue, Sunray shadow og Willie Gun.

Staðhættir og aðgengi: Gott, bílfært að langflestum veiðistöðum.

Veiðihús: Glæsilegir sumarbústaðir fylgja hverjum tveimur keyptum stöngum og sjá menn um sig sjálfir. Muna að taka rúmföt með sér.  Gestir eru hvattir til að ganga vel um og skilja vel við húsin og taka með sér rusl.

Umgengnisreglur: Veiðimenn mega koma í hús 1 klst. fyrir veiðitíma en brottfarardag skulu þeir rýma hús 1 klst. eftir að veiðitíma lýkur.

Umsjónarmaður/veiðivörður: Veiðimenn eru beðnir um að hringja í Snorra Ólafsson s: 898 5820 og skila inn veiðitölum að loknum veiðidegi.

Veiðikort: Hægt er að nálgast veiðikort á www.agn.is

 Bókanir og nánari upplýsingar: Stefán Sigurðsson, skrifstofa Lax-á, s: 531 6100 eða stefan@lax-a.is

T1

Helgi Guðbrands leiðsögumaður með fallega 12 punda hrygnu úr Faxa.

Tung600

Peter Ariowitsch að veiðum í neðri gljúfrum.

Tung610

Frá Faxa

Veiðisvæðið er frá og með fossinum Faxa niður að brú sem liggur að bænum Bræðratungu.

Tung604

Staðsetning: Suðurland, Biskupstungum, um 100 km frá Reykjavík.

Tung606

Hoppað út á steinnin fræga við Faxa, frá steininum nærðu út á besta tökustaðinn.

Tung604

Falleg á

Tungu612

Niður við Eyju.

Tung200721

Snorri veiðivörður við teljarann

Tungufljot20071

Veiði Tímabil: 24 Júní til  20. Október.

tungu1

Daglegur veiðitími:
7–13 og 16–22 (1. apríl–20. ág.)
7–13 og 15–21 (21. ág.–20. Október.)

lotta

Leyfilegt agn: Eingöngu fluga

Tung2

Hentugustu Veiðitæki: Tvíhenda 12-14” lína 9-10

Tung200710

Bestu flugur: Frances, snælda, Sunray Shadow,

Tung20078

Staðhættir og aðgengi: Hægt er að aka víða að veiðistöðum, en vatnasvæðið er geysivíðfeðmt. Ef menn ætla að komast um það allt er ekki um annað að ræða en að ganga.

tungu614

Veiðihús: Með hverjum tveimur stöngum fylgir eitt hús en húsin eru staðstett í fallegu umhverfi rétt ofan við fossinn Faxa.

Tung620

Í húsunum sem eru um 55 fm að stærð er allur aðbúnaður fyrir 6 manns og gist er í tveimur herbergjum. Annað herbergið er með hjónaherbergi og hitt með 4 kojum.

Tung20071

Í rúmgóðri stofu er sjónvarp og útvarp einnig gasgrill á verönd og örbylgjuofn og bakaraofn í eldhúsi. Baðherbergið er flísalagt og með sturtu. 

Tung622

Úti á veröndinni er heitur pottur.

Tung2007

Staðsetning húsanna er um 8 km frá Reykholti/Aratungu en þaðan er ekið framhjá Faxa og ekið áfram um kílómeter og þá er beygt til hægri þar sem skilti vísa á Knoðrabúðir og Sveitasetrið. Þar er beygt til hægri og svo vinstri á öðrum afleggjara. Þar eru sumarhúsin merkt tölustöfum og þið fáið að vita á skrifstofu Lax-á númer hvað ykkar hús er.
  bru

Veiðibók:  Er í veiðihúsi (sumarhúsunum við fossinn Faxa)

Veiðivörður: Snorri veiðivörður í síma   898 5820  

Tungufljót - Ingi 07 2

Hann er á í Faxa síðla hausts.

Tungufljot20074

Yfir 2000 laxar fóru upp laxastigann í sumar.....

Tungufljot20077

Suma daga var svo mikið af fiski í laxastiganum að hægt var að ná laxinum með höndunum........
                    Tungufljót - Ingi 07 3

Við fossinn Faxa

Tung20078

Bókanir og nánari upplýsingar:
Stefán Sigurðsson, skrifstofa Lax-á, s:   531 6100  ,stefan@lax-a.is.

Netsala smella hér.

 

Til baka Senda grein Prenta greinina

 

Tungufljót


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 
kertasnikir[1]

28.12.2011 : Vinningshafar í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á

Búið er að draga úr seldum gjafabréfum í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á en þrír stórir vinningar voru í boði ásamt fimm ársáskriftum að Sportveiðiblaðinu. Góð sala var á gjafabréfum fyrir Jól og voru því mörg nöfn í pottinum. Búið er að hafa samband við vinningshafa og þökkum við öllum fyrir þáttökuna og óskum vinningshöfum innilega til hamingju.

Lesa meira
 
p15

19.12.2011 : Að hamfletta rjúpur

Nú styttist í Jólin og margir eflaust búnir að skjóta sér rjúpur jólamatinn. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga góða að til að kenna þeim handtökin við að hamfletta rjúpurnar. Til að stytta mönnum tímann við að leita að leiðbeiningum ákváðum við að safna saman nokkrum tenglum þar sem þessi handtök eru kennd.

Lesa meira
 
pottaskefill[1]

15.12.2011 : Jólastemning hjá Lax-á

Jóla-Gjafabréfaleikur Lax-á er í fullum gangi og gjafabréfin rjúka út eins og heitar lummur þessa daganna. Mögulegt er að kaupa gjafabréf frá 5000 til 500.000 og fylgja góðar gjafir með gjafabréfunum ásamt því að þú átt möguleika á að vinna veglega vinninga.

Lesa meira
 
AtlanticSalmonFront

1.12.2011 : Atlantic Salmon Magic

Bókin Atlantic Salmon Magic tekur á spurningum sem hafa nagað laxveiðimenn um langan tíma. Bókin, sem hefur fengið frábæra dóma, gefur góða innsýn inní hegðun laxins en höfundur reynir að svara spurningum eins og afhverju tekur laxinn fluguna? og hvað sér laxinn? Nú er hægt að nálgast hana á vefnum í gegnum vefverslun FishandFly.com en DVD diskur fylgir með hverri bók. Hluti af hverju seldu eintaki rennur hluti til NASF (North Antlatic Salmon Fund).

Lesa meira
 
RIMG0002

7.11.2011 : Laxasetur Íslands opnar á Blönduósi

Laxasetur Íslands, sýningar- og fræðasetur um íslenska laxinn verður opnað á Blönduósi í sumar. Undirbúningur fyrir opnunina er nú í fullum gangi.

Í Laxasetri Íslands verður hægt að finna ýmislegt efni er tengist íslenskum laxfiskum. Þar verða til að mynda upplýsingar um laxveiðiár, sögu laxveiða og rannsóknir.

Lesa meira
 

1.11.2011 : Fyrirlestur um stíflur í ám og áhrif þeirra á fiskistofna

Fyrirlestur um stíflur í ám og tilraunir til að greiða för sjógöngufiska á áhrifasvæðum stíflumannvirkja verður haldinn í Háskólabíói, Sal 2, kl. 11:50 – 13.20, fimmtudaginn 3. nóvember 2011.

Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, Stofnunar Sæmundar fróða og NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna.

Lesa meira
 
minkurinn

19.10.2011 : Pólverjar sækja í smiðju Íslendinga varðandi þekkingu á mink

Nýverið sótti pólskur minka sérfræðingur Náttúrustofuna heim í þeim tilgangi að afla gagna um rannsóknir, löggjöf, veiðistjórnun, veiðar og ræktun minka á Íslandi. Um var að ræða líffræðinginn Jakub Skorupski, sem starfar við Tækniháskóla Vestur-Pommern í Szczecin í Póllandi og er jafnframt verkefnastjóri hjá samtökunum Baltic Green Belt.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar