Sog - Syðri Brú

Syðri Brú

Syðri Brú

Sogið er vatnsmesta bergvatnsá landsins og ein þekktasta laxveiðiáin. Sogið á upptök sín í Þingvallavatni og rennur þaðan um Úlfljótsvatn og síðan í Álftavatn skammt neðan við Þrastarskóg. Mikill uppgangur hefur verið í laxveiði í Soginu á undanförnum árum og hefur svæði Syðri Brúar ekki síst átt stóran þátt í því, svæðið var til að mynda með bestu hlutfall veiddra laxa per stöng í ánni í síðasta sumar.

Sog_5026

Landaklöpp, fengsælasti veiðistaður Sogsins - mynd. Rafn Hafnfjörð

Áin er seld nokkrum hlutum og er Syðri brú eitt af þekktari svæðum árinnar. Syðri-Brú er efsta laxveiðisvæði árinnar. Svæðið er stutt og með fáa en gjöfula veiðistaði. Þar ber helst að nefna Landaklöpp, sem gefur ótrúlega veiði. Athygli er vakin á því að frá og með sumrinu 2011 er skylt að sleppa öllum stórlaxi á Syðri Brú.

Syðri Brú er skemmtilegt og fjölskylduvænt laxveiðisvæði í aðeins 45 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík.

Stangarfjöldi:

Veitt er á eina stöng fyrir landi Syðri Brúar

Holl/dagar:

Seldir eru stakir dagar frá morgni til kvölds.

Tímabil:

20. júní til 24. september.

Daglegur veiðitími:

7–13 og 16–22 (20. jún. – 20. ág.)
7–13 og 15–21 (21. ág. – 20. sept.)

Leyfilegt agn:

Fluga - skylt að sleppa öllum laxi yfir 70 cm.

Veiðitæki:

Einhenda, lína 7-9.

Veiði 2009: 141 laxar

Veiði 2010: 212 laxar

Bestu flugur: Gárutúbur, Black Sheep, Microtúbur og Collie Dog.

SB_stofa_2

Nýtt og glæsilegt veiðihús
er við árbakkann. Húsið er mjög rúmgott og frábær aðstaða fyrir veiðimenn og þeirra gesti. Í húsinu eru þrjú 2ja manna svefnherbergi (eitt með hjónarúmi) auk þess sem það er svefnpokapláss í undir risi á efri hæð í húsinu.  Útsýnið úr húsinu yfir ána er glæsleg og það á eftir að fara vel um gesti í þessu húsi. Í húsinu eru rúm fyrir 6 manns og tvær aukadýnur á svefnlofti.  Sængur eru fyrir 4 gesti. Frystikista er í húsinu og gasgrill á verönd.  Uppþvottavél er í eldhúsi.

SB_bordstofa

Allur aðbúnaður og aðstaða er glæsileg.

SB_eldhus

Eldhúsið og borðstofan.

  SB_badherbergi                    SB_svefnherbergi

Baðherbergið og svefnherbergin í húsinu eru rúmgóð og björt.

 

SB_utanhuss

Umgegnisreglur:

Veiðimenn mega koma í húsið 1 klst fyrir veiðitíma og skal húsið rýmt einni klst eftir að veiðitíma líkur. Munið að ræsta og hreinsa rusl.

Gestir eru minntir á að ganga vel um húsið og ræsta vel eftir dvöl og taka með sér allt rusl.

Hvað þarf að taka með sér: Rúmfatnað, svefnpoka, handklæði, sápur.

 

 

Umsjónarmaður:  Steinar Árnason s: 862-0512. Það má einnig hafa samband við hann vegna leigu á húsinu yfir vetrartímann.

Leiðarlýsing í veiðihúsið: Ekið er frá Reykjavík framhjá Hveragerði áleiðis til Selfoss á þjóðvegi 1, rétt áður en komið er að Selfossi er ekið upp afleggjara til vinstri í áttina að Grímsnesi og Þrastarlundi. Þessi vegur er ekinn framhjá Þrastalundi inní Þrastaskóg. Þegar komið er að Þingvallavegi (vegnúmer 36) þá er beygt inná þann veg og hann ekinn 8 km í gegnum sumarhúsabyggð þangað til komið er að stóru mastri og þá er beygt af Þingvallavegi inná malarvel. Fyrsta beygja til hægri er valin þar og þá valinn annar afleggjari til vinstri og ekið í átt að Soginu og þar er húsið við ána. Veiðihúsið er 10 km frá Veitingastaðnum Þrastalundi og ca 12 km frá veiðihúsinu við Tannastaðatanga.

Hvað þarf að taka með sér:  Rúmfatnað, svefnpoka, handklæði, sápur.

Skyldugisting: Veiðihús innifalið í verði.

Veiðivörður: Þorfinnur Snorrason s: 893-1004.

Veiðibók: Í veiðihúsi. Veiðimönnum er skylt að skrá allan afla daglega.

Bókanir og nánari upplýsingar:
Stefán Sigurðsson, skrifstofa Lax-á, s: 531 6100 eða stefan@lax-a.is
Netsala smella
hér



agnminniforweb

 

Til baka Senda grein Prenta greinina

 

 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

1

28.3.2012 : Vorljóð frá Sveini á Galtalæk

Vinur okkar og landeigandi á Galtalæk Sveinn Sigurjónsson sendi okkur fallegt vorljóð sem varð til í gærkvöldi. Afar skemmtilegt ljóð í tilefni vorkomu og þess að veiði hefst í Galtlæk eftir einungis nokkra daga.

Lesa meira
 
DSC00337

19.3.2012 : Kúba - Paredon 21-28. apríl

Eigum lausar tvær stangir á besta tíma á Kúbu fyrir Tarpon, Bonefish og Permit veiðar. Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Árna arnibald@lax-a.is eða í GSM 898 3601.

Lesa meira
 
Axeló á Hreindýri8

20.2.2012 : 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða

Umhverfisstofnun hefur borist 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða. Endanlegur fjöldi er ekki enn ljós þar sem einhverjar umsóknir gætu verið á leiðinni í pósti. Heimilt verður að veiða 1009 dýr. Þegar allar umsóknir verða komnar í hús verður farið yfir þær með tilliti til hvort allir sem sækja um leyfi hafi tilskilin réttindi. Dregið verður úr gildum umsóknum í lok febrúar.

Lesa meira
 
4

16.2.2012 : Laxasetur Íslands óskar eftir aðstoð

Laxasetur Íslands opnar í sumar. Af því tilefni vantar okkur gamla muni sem tengjast lax- og silungsveiði á Íslandi. Munirnir verða til sýnis á setrinu ásamt upplýsingum um uppruna og sögu. Við leitum eftir munum ýmist gefins eða að láni.

Nánari upplýsingar veita verkefnastjórar sýningarinnar, Helga og Kristín hjá mekt.menningarmidlun@gmail.com

Lesa meira
 
RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 
kertasnikir[1]

28.12.2011 : Vinningshafar í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á

Búið er að draga úr seldum gjafabréfum í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á en þrír stórir vinningar voru í boði ásamt fimm ársáskriftum að Sportveiðiblaðinu. Góð sala var á gjafabréfum fyrir Jól og voru því mörg nöfn í pottinum. Búið er að hafa samband við vinningshafa og þökkum við öllum fyrir þáttökuna og óskum vinningshöfum innilega til hamingju.

Lesa meira
 
p15

19.12.2011 : Að hamfletta rjúpur

Nú styttist í Jólin og margir eflaust búnir að skjóta sér rjúpur jólamatinn. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga góða að til að kenna þeim handtökin við að hamfletta rjúpurnar. Til að stytta mönnum tímann við að leita að leiðbeiningum ákváðum við að safna saman nokkrum tenglum þar sem þessi handtök eru kennd.

Lesa meira
 
pottaskefill[1]

15.12.2011 : Jólastemning hjá Lax-á

Jóla-Gjafabréfaleikur Lax-á er í fullum gangi og gjafabréfin rjúka út eins og heitar lummur þessa daganna. Mögulegt er að kaupa gjafabréf frá 5000 til 500.000 og fylgja góðar gjafir með gjafabréfunum ásamt því að þú átt möguleika á að vinna veglega vinninga.

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar