Skjálfandafljót - Lax/Silungur
Skjálfandafljót Lax og Silungssvæði
Frábær silungaveiði með góðri laxavon
Silunga- og laxveiðisvæði Skjálfandafljóts er ódýr og góður kostur fyrir þá sem vilja veiða silung með laxavon. Silungasvæðin ofan brúar voru lengd upp á gömlu laxasvæðin og fylgja nú hyljir sem gefa góða silungsveiði og að öllu jöfnu þó nokkra laxa á ári hverju. Veiðisvæðin eru tvö og eru tvær stangir á hverju svæði og eru þau staðsett á sitthvorum bakka ofan þjóðvegsbrúar á leið til Húsavíkur. Silungsveiðin í Skjálfandafljóti er að meðaltali 600 bleikjur og sjóbirtingar síðastliðin fimm ár.
Eins og menn vita er Skjálfandafljót jökulá en náttúran á svæðinu er afar falleg og stórbrotin og jafnvel hrikaleg á köflum. Skjálfandafljót getur því verið hættulegt ef menn fara ekki varlega en Lax-á vill biðja veiðimenn að fara með aðgát á veiðistöðum.
Veiði á silungasvæði Skjálfandafljóts undanfarinn 5 ár
| Bleikja & Sjóbirtingur | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 5 ára meðaltal |
| Samtals | 130 | 888 | 781 | 641 | 746 | 637,2 |
Veiði á laxasvæði Skjálfandafljóts undanfarinn 5 ár:
| Lax | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 5 ára meðaltal | |
| 18.jún | 25.jún | 1 | 24 | 9 | 24 | 6 | 12,8 |
| 26.jún | 3.júl | 11 | 53 | 11 | 49 | 28 | 30,4 |
| 4.júl | 11.júl | 19 | 61 | 15 | 94 | 62 | 50,2 |
| 12.júl | 19.júl | 47 | 97 | 85 | 115 | 98 | 88,4 |
| 20.júl | 27.júl | 67 | 87 | 116 | 44 | 95 | 81,8 |
| 28.júl | 4.ágú | 146 | 16 | 102 | 33 | 51 | 69,6 |
| 5.ágú | 12.ágú | 135 | 82 | 66 | 25 | 73 | 76,2 |
| 13.ágú | 20.ágú | 92 | 92 | 70 | 7 | 84 | 69 |
| 21.ágú | 28.ágú | 63 | 30 | 35 | 81 | 55 | 52,8 |
| 29.ágú | 5.sep | 22 | 23 | 35 | 57 | 10 | 29,4 |
| 6.sep | 13.sep | 5 | 31 | 7 | 5 | 19 | 13,4 |
| 14.sep | 15.sep | 1 | 2 | 0 | 1 | 8 | 2,4 |
| 609 | 598 | 551 | 535 | 589 | 576,4 |
Veiðisvæðin eru eftirfarandi:
Austubakki silungur-lax 2 stangir
Vesturbakki silungur-lax 2 stangir
Austurbakki silungur-lax
2 stangir, frá landamerkjagirðingu í Fossselskógi og niður að þjóðvegarbrú.
Veiðisvæðið er mjög fjölbreytt. Áin rennur í sandi og á það til breyta sér mikið á milli ára. Því er nauðsyn að reyna eyjar og kvíslar því nýir veiðistaðir geta myndast á milli ára.
Helstu veiðistaðir: Vaðseyja, Sényver, Syðri Börð, Ytri Börð og Miðbakki.
Oft veiðist lax á Vaðseyju og Börðunum en víða má finna silung. Miðkvísl ræður þar ríkjum sem skiptir milli austur- og vesturbakka.
Helstu flugur: Nobblerar og flugur í skærum litum. Snælda og Frances í lax.
Veiðitími: 7-13 & 16-22. 18 júní til 10 ágúst. 7-13 & 15-21. 11 ágúst til 31 ágúst, 7-13 og 14-20. 1sept -15 sept.
Veiðitímabil: 18 júní – 15 september.
Veiðivörður: Vésteinn Garðarsson Vaði s: 4643198
Skylt er að skrá allan afla. Veiðibók liggur inn að Vaði
Nauðsynlegt er að fara varlega þegar kemur að því að vaða í Skjálfandafljóti.
Hér má sjá veiðikort af Skjálfandafljóti
