Laugardalsá
Laugardalsá
Meðal betri laxveiðiáa á landinu af þessari stærðargráðu
Staðsetning árinnar utarlega við Ísafjarðardjúp, gerir hana eftirsótta fyrir þá sem kjósa að veiða útaf fyrir sig, fjarri mannabyggðum því í dalnum eru fáir bæir í byggð.
Staðsetning: Ísafjarðardjúp, um 420 km frá Reykjavík. Ísafjörður í um 1 klst. akstursfjarlægð.
Veiðisvæði: 6 km með 18 hyljum.
Stangarfjöldi: Tvær stangir fyrri og seinni hluta sumars en þrjár um miðbik.
Tímabil: 12. júní – 15. sept.
Daglegur veiðitími:
7–13 og 16–22 (12. jún.–20. ág.)
7–13 og 15–21 (21. ág. – 31.ág.)
Veiði 2003: 350 laxar
Veiði 2004: 557 laxar
Veiði 2005: 397 laxar
Veiði 2006: 302 laxar
Veiði 2008: 415 laxar
Veiði 2009: 501 laxar
Veiði 2010: 548 laxar
Meðalvigt: 6,5 pund.
Leyfilegt agn: Fluga og maðkur.
Veiðitæki: Einhenda 9-10”, flotlína 6-8.
Bestu flugur: Green but, Microtúbur, Gárutúbur og Blue Rat.
Staðhættir og aðgengi: Aðgengi er ágætt. Þó er dálítill gangur frá bílastæðum að veiðihyljum á efri hluta árinnar.
Veiðihús: Veiðihúsið er rúmgott 7 manna hús sem var byggt 1971 en hefur staðið vel tímans tönn og er sjarmerandi með ýmsu sem minnir á gamla tíma svosem veggsíma og heimagerðum húsgögnum. Í húsinu er 3 herbergi og í einu þeirra eru 3 rúm en í hinum tveimur eru tvö rúm í hvoru. Húsið er snyrtilegt og rúmgott og eingöngu er boðið uppá svefnpokagistingu. Blástursofn, eldavél og öll helstu eldhúsáhöld, verönd með grilli. Aðgerðaraðstaða er í sérhúsi og fín aðstaða þar.
Leiðarlýsing í veiðihúsið: Húsið er um 60 km frá Langadalsá og því um 110km frá Hólmavík. Frá Hólmavík er ekinn vegur nr 61 og skilti elt sem vísar á Ísafjörð. Ekið er yfir Steingrímsfjarðarheiði þangð og áfram veg 61, framhjá Langadalsá og inn í Ísafjörð og þaráeftir Mjóafjörð. Það er bundið slitlag alla leið og leiðin um Ísafjörð og Mjóafjörð er mjög skemmtileg og falleg og í Mjóafirði er nýleg brú fyir fjörðinn. Best að fylgja skilti sem vísar á Ísafjörð. Þegar komið er að vegi og skilti merkt Laugardalur 632 er beygt til vinstri inn dalinn. Ekið er meðfram ánni framhjá Hagakoti og svo næsta beygja til vinstri er veiðihúsið en það stendur við Tvísteina.
Hvað þarf að taka með sér: handklæði, sápur og svefnpoka.
Umgengnisreglur: Veiðimenn mega koma í hús 1 klst. fyrir veiðitíma en brottfarardag skulu þeir rýma hús 1 klst. eftir að veiðitíma lýkur. Munið ávallt að ræsta hús og hirða rusl.
Skyldugisting: Veiðihús innifalið í verði.
Umsjónarmaður/veiðivörður: Sigurjón Samúelsson á Hrafnabjörgum s. 456 4811.
Veiðikort: Fáanlegt á www.agn.is
Veiðibók: Í veiðihúsi. Veiðimönnum er skylt að skrá allan afla daglega.
Bókanir og nánari upplýsingar: Stefán Sigurðsson, skrifstofa Lax-á, s: 531 6100 eða stefan@lax-a.is. Netsala smella hérnetsala smella hér
SKOÐIÐ FLEIRI MYNDIR AF ÁNNI UNDIR MYNDAALBÚM EFST Á SÍÐUNNI
