Langadalsá
Langadalsá
Einstök náttúrufegurð og kyrrð fjarri skarkala höfuðborgarinnar.
Góður kostur til að þjappa saman fjölskyldu- og/eða vinahópum í stóru og rúmgóðu veiðihúsi. Eingöngu er veitt á flugu allt tímabilið.

Staðsetning: Ísafjarðardjúp, um 350 km fjarlægð frá Reykjavík. Hólmavík í um 40 mín. akstursfjarlægð.
Veiðisvæði: Lygn og falleg fluguveiðiá. Veiðisvæði um 18 km með 37 hyljum, lítið um fossa.
Stangarfjöldi: 3-4 stangir
Tímabil: 21. júní – 19. sept.
Daglegur veiðitími:
7–13 og 16–22 (21. jún.–20. ág.)
7–13 og 15–21 (21. ág. – 21. sept.)
Veiði 2006: 329 laxar
Veiði 2007: 226 laxar
Veiði 2008: 369 laxar
Veiði 2009: 363 laxar
Veiði 2010: 256 laxar
Veiði 2011: 263 laxar
Meðalvigt: 7 pund.

Leyfilegt agn: Eingöngu fluga.
Skylt er að sleppa öllum stórlaxi - stórlax er lax yfir 70cm að lengd.
Veiðitæki: Einhenda 9–10”, flotlína 7-9.
Bestu flugur: Gárutúbur, svartur og rauður Francis, Black Sheep, Microtúbur og Collie Dog.
Staðhættir og aðgengi: Vel fært á fólksbíl meðfram ánni.
Veiðihús: Rúmgott og fallegt veiðihús sem samanstendur af tveimur skálum sem tengdir eru saman með stórri verönd. Í öðrum skálanum er setustofa og eldhús en í hinum eru 8 rúmgóð tveggja manna herbergi. Svefnpokagisting en einnig hægt að fá uppábúið en þá þarf að hafa samband tímanlega við skrifstofu Lax-á í síma 531-6100 og ganga frá því. Aðgerðarhús og gufa á veröndinni, einnig heitur pottur og kolagrill. Frábær aðstaða fyrir veiðimenn og fjölskyldur þeirra.
Leiðarlýsing í veiðihúsið: Húsið er staðsett í Langadal en þangað eru um 47km frá Hólmavík. Frá Hólmavík er ekinn vegur nr 61 og skilti elt vísar á Ísafjörð. Ekið er yfir Steingrímsfjarðarheiði þangð til komið er að skilti merktu með veganúmeri 635 á hægri hönd. Farið er framhjá þessu skilti og ekið nokkra metra áfram og þá er upplýsingastopp á vinstri hönd. Næsti afleggjari þar við er malarvegurinn inn í Langadal. Þessi malarvegur er ekinn inn dalinn og framhjá nokkrum sumarhúsum á vinstri hönd og eftir 4 km er veiðihúsið staðsett við ána á hægri hönd.
Hvað þarf að taka með sér: Svefnpoka, handklæði, sápur, kol, uppkveikilög.
Umgengnisreglur: Veiðimenn mega koma í hús 1 klst. fyrir veiðitíma en brottfarardag skulu þeir rýma hús 1 klst. eftir að veiðitíma lýkur. Munið ávallt að ræsta hús og hirða rusl.
Skyldugisting: Veiðihús innifalið í verði.
Umsjónarmaður/veiðivörður: Sigurður Marinó Þorvaldsson 821-8080
Veiðikort: Fáanlegt á www.agn.is eða smella hér:kort1 -kort 2
Veiðibók: Í veiðihúsi. Veiðimönnum er skylt að skrá allan afla daglega.
Bókanir og nánari upplýsingar:
Stefán Sigurðsson, skrifstofa Lax-á, s: 531 6100 eða stefan@lax-a.is
Netsala smella hér
SKOÐIÐ FLEIRI MYNDIR AF ÁNNI UNDIR MYNDAALBÚM EFST Á SÍÐUNNI
