Krossá

Krossá í Bitrufirði

Krossá í Bitrufirði er lítil 2ja stanga laxveiðiá sem gefur að jafnaði í kringum 100 laxa á sumri, en sumarið 2010 gaf þessi magnaða á rúmlega 160 laxa veiði.

Veiðisvæðið er um 8 kílómetrar að lengd, með 22 merktum veiðistöðum, nánara frá Svartfossi niður að Neðri Brú. Ágætis veiðihús fylgir Krossá sem er með 2 svefnherbergjum og tveimur svefnloftum svo það er nóg pláss í húsinu. Gasgrill er á staðnum og öll helstu eldhúsáhöld ásamt ískáp, eldhúshellum ofl.

hylur

Í sumum hyljum getur safnast gríðarlegt magn af laxi.

Í Krossá er leyfilegt að veiða með flugu og maðk frá 1. júli til 20. júlí og er hámarkskvóti 2 laxar per stöng per dag, eftir það má eingöngu veiða og sleppa noti menn flugu. Eftir 20. júlí er eingöngu leyfilegt að veiða með flugu og daglegur kvóti áfram 2 laxar á dag. Einnig eru veiðimenn beðnir um að sleppa öllum stórlaxi.

Þessi ráðstöfun er gerð í samvinnu með landeigendum - enda er þeim afar annt um þess fallegu litlu á.

Krossá er blátær og hægt að sjá laxinn í mörgum hyljum, en fara verður varlega, laxinn er styggur í þessu litla tæra vatni.

_MG_1638

Víða eru kjöraðstæður fyrir gárutúbuna

_MG_1649

Laglegur septemberlax

Veiðihúsið er rúmgott og notalegt.

Picture_045

Veiðihúsið er notalegt og vistlegt

Picture_047

Staðsetning: Bitrufjörður, Mitt á milli Staðarskála og Hólmavíkur, um 250 km frá Reykjavík. Hólmavík er í um 40. mín akstursfjarlægð.

Veiðisvæði: Geysifallegt og nær frá Svartfossi niður að Neðri Brú en þar gætir sjávarfalla.

Stangarfjöldi: 2 stangir í senn, Seldir eru 2 eða 3 dagar saman.

Tímabil: 1. júlí til 20. september.

Daglegur veiðitími: 7–13 og 16–22 (30. jún. – 15. ág.) 7–13 og 15–21 (15. ág. – 20. sept.)

Leyfilegt agn: 1.júlí - 20.júlí Fluga og maðkur. 21.júlí - 20.sept Eingöngu fluguveiði. Kvóti 2 laxár á stöng.

Veiðitæki: Einhenda, lína 5-8.

Veiði 2011: 76 laxar
Veiði 2010: 162 laxar
Veiði 2009: 99 laxar
Veiði 2008: 82 laxar

Bestu flugur: Gárutúbur, Frances, Microtúbur og Collie Dog.

Staðhættir og aðgengi: Nokkuð gott aðgengi, bílfært að flestum stöðum 

Veiðihús: Veiðihúsið er rúmgott og snyrtilegt með svefnpláss fyrir 9 manns á tveimur svefnloftum og tveimur herbergjum með efri og neðri koju hvort. Í kringum veiðihúsi er fín verönd og í húsinu er gasgrill og frystikista. Gott kort er af veiðisvæðinu í húsinu en veiðistaðir eru 22 talsins. Hafa þarf með sér sæng/svefnpoka, handklæði, tuskur og viskastykki. Í húsinu næst ekki gsm samband.

Leiðarlýsing í veiðihúsið: Ekið er frá Reykjavík að Borganesi og þaðan yfir Holtavörðuheiði og að Staðarskála. Við Staðarskála er valin leiðin til Ísafjarðar/Hólmavíkur. (Vegur 68, var áður númer 61 og er merktur þannig á eldri kortum). Frá Staðarskála er um 50km akstur vestur í Bitrufjörð en þessi leið er að mestu malbikuð, en farið er framhjá Borðeyri og Hrútafjörður ekinn til enda og þá er komið í Bitrufjörð. Ekið er inn Bitrufjörð þar til komið er að skilti vinstra megin við veginn sem á stendur Krossárdalur, vegur nr 641. Veiðihúsið er um 5 km frá vegi 68 en Krossárdalurinn er ekinn sem leið liggur, yfir brú og framhjá bænum Gröf. Þá er næsti bær á hægri hönd Árdalur og þar beint á móti stendur veiðihúsið( hvítt með grænu þaki) við ána.

Umgegnisreglur: Veiðimenn mega koma í húsið 1 klst fyrir veiðitíma og skal húsið rýmt einni klst eftir að veiðitíma líkur. Munið að ræsta og hreinsa rusl.

Veiðikort: Er í veiðihúsinu.

Veiðibók: Er í veiðihúsinu.

Bókanir og nánari upplýsingar: Stefán Sigurðsson, skrifstofa Lax-á, s: 531 6100 eða stefan@lax-a.is  Netsala á www.agn.is

 

 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

1

28.3.2012 : Vorljóð frá Sveini á Galtalæk

Vinur okkar og landeigandi á Galtalæk Sveinn Sigurjónsson sendi okkur fallegt vorljóð sem varð til í gærkvöldi. Afar skemmtilegt ljóð í tilefni vorkomu og þess að veiði hefst í Galtlæk eftir einungis nokkra daga.

Lesa meira
 
DSC00337

19.3.2012 : Kúba - Paredon 21-28. apríl

Eigum lausar tvær stangir á besta tíma á Kúbu fyrir Tarpon, Bonefish og Permit veiðar. Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Árna arnibald@lax-a.is eða í GSM 898 3601.

Lesa meira
 
Axeló á Hreindýri8

20.2.2012 : 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða

Umhverfisstofnun hefur borist 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða. Endanlegur fjöldi er ekki enn ljós þar sem einhverjar umsóknir gætu verið á leiðinni í pósti. Heimilt verður að veiða 1009 dýr. Þegar allar umsóknir verða komnar í hús verður farið yfir þær með tilliti til hvort allir sem sækja um leyfi hafi tilskilin réttindi. Dregið verður úr gildum umsóknum í lok febrúar.

Lesa meira
 
4

16.2.2012 : Laxasetur Íslands óskar eftir aðstoð

Laxasetur Íslands opnar í sumar. Af því tilefni vantar okkur gamla muni sem tengjast lax- og silungsveiði á Íslandi. Munirnir verða til sýnis á setrinu ásamt upplýsingum um uppruna og sögu. Við leitum eftir munum ýmist gefins eða að láni.

Nánari upplýsingar veita verkefnastjórar sýningarinnar, Helga og Kristín hjá mekt.menningarmidlun@gmail.com

Lesa meira
 
RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 
kertasnikir[1]

28.12.2011 : Vinningshafar í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á

Búið er að draga úr seldum gjafabréfum í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á en þrír stórir vinningar voru í boði ásamt fimm ársáskriftum að Sportveiðiblaðinu. Góð sala var á gjafabréfum fyrir Jól og voru því mörg nöfn í pottinum. Búið er að hafa samband við vinningshafa og þökkum við öllum fyrir þáttökuna og óskum vinningshöfum innilega til hamingju.

Lesa meira
 
p15

19.12.2011 : Að hamfletta rjúpur

Nú styttist í Jólin og margir eflaust búnir að skjóta sér rjúpur jólamatinn. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga góða að til að kenna þeim handtökin við að hamfletta rjúpurnar. Til að stytta mönnum tímann við að leita að leiðbeiningum ákváðum við að safna saman nokkrum tenglum þar sem þessi handtök eru kennd.

Lesa meira
 
pottaskefill[1]

15.12.2011 : Jólastemning hjá Lax-á

Jóla-Gjafabréfaleikur Lax-á er í fullum gangi og gjafabréfin rjúka út eins og heitar lummur þessa daganna. Mögulegt er að kaupa gjafabréf frá 5000 til 500.000 og fylgja góðar gjafir með gjafabréfunum ásamt því að þú átt möguleika á að vinna veglega vinninga.

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar