Hvannadalsá
Hvannadalsá
Í Hvannadalsá sumarið 2012 má veiða á flugu, maðk og spún frá opnun 21.júní til hádegis 1. ágúst. Frá og með hádegi 1.ágúst má eingöngu veiða á flugu. Hvannadalsá hefur verið að gefa nokkuð magn af stórlaxi síðustu ár og viljum við hvetja veiðimenn að fara sparlega með prestinn á þá.
Á undanförnum árum hafa verið öflugar sleppingar gönguseiða í Hvannadalsá sem hafa lyft henni í hóp áhugaverðari 2-3 stanga laxveiðiáa landsins.
Hvannadalsá rennur í Ísafjarðardjúp samhliða Langadalsá og eiga þær sameiginlegt ósasvæði. Veiðisvæði Hvannadalsár er frekar stutt upp að Stekkjarfossi en áin er mun vatnsmeiri og straumþyngri í samanburði við systur sína Langadalsá.
Frá Djúpafossi.
Frá Árdalsfljóti, einum gjöfulasta veiðistað Hvannadalsár.
Horft niður ána frá brúnni.
Frá Réttarhyl.
Hvanndalsá er kjörin til að nota Portlands bragðið " Riffling Hitch "
Frá Imbufljóti.
Það er okkur mikil ánægja að bjóða þennan kost í flóru okkar, því ljóst er að þeir um svæðið hafa farið hafa horft löngunaraugum til ánnar sem er í um 350 kílómetra vegalengd frá Reykjavík.
Kvöldsól við Árdalsfljót.
Staðsetning: Ísafjarðardjúp, um 350 km frá Reykjavík. Hólmavík er í um 40. mín akstursfjarlægð.
Veiðisvæði: Geysifallegt. Hvannadalsá öll að Stekkjarfossi. Á ósasvæðinu má fá góða sjóbleikjuveiði í kringum sjávarföll.
Stangarfjöldi: 3 stangir
Holl/dagar: Seldir eru 2 eða 3 dagar í senn.
Frá seiða sleppingum.
Hvannadalsá er blá tær og hækt að sjá laxinn í mörgum hyljum, en fara verður varlega, laxinn er styggur í þessu tæra vatni.
Tímabil: 21. júní til 22. september.
Daglegur veiðitími:
7–13 og 16–22 (20. jún. – 20. ág.)
7–13 og 15–21 (21. ág. – 20. sept.)
Leyfilegt agn: Engöngu fluguveiði
Skylt er að sleppa öllum stórlaxi - stórlax er lax yfir 70cm að lengd.
Veiðitæki: Einhenda, lína 7-9.
Veiði 2007: 176 laxar
Veiði 2008: 327 laxar
Veiði 2009: lokatölur vantar
Veiði 2010: 465 laxar
Bestu flugur: Gárutúbur, Frances, Microtúbur og Collie Dog.
Staðhættir og aðgengi: Gangur er að efstu veiðistöðum.
Veiðihús: Veiðihúsið sm notað var við Langadalsá fylgir núna Hvannadalsá. Húsið er lítið með 4 herbergjum sem í eru efri og neðri koja. Aðgerðarhús er sér og það er rúmgott og nóg pláss fyrir veiðibúnað.
Leiðarlýsing í veiðihúsið: Húsið er staðsett í Langadal en þangað eru um 50km frá Hólmavík. Frá Hólmavík er ekinn vegur nr 61 og skilti vísar á Ísafjörð. Ekið er yfir Steingrímsfjarðarheiði þangð til komið er að skilti merktu með veganúmeri 635 á hægri hönd. Farið er framhjá þessu skilti og ekið nokkra metra áfram og þá er upplýsingastopp (bílaplan með bekk og upplýsingaskilti) á vinstri hönd. Næsti afleggjari þar við er malarvegurinn inn í Langadal. Þessi malarvegur er ekinn inn dalinn og framhjá nokkrum sumarhúsum á vinstri hönd og eftir 4 km er veiðihúsið við Langadalsá staðsett á hægri hönd en til að komast í Hvannardalsárhúsið er ekið framhjá Langadalsárhúsinu og um 2 km lengra og þá er Hvannadalsrárhúsið á vinstri hönd, hvítt að lit. Ekki þarf að fara yfir brúna yfir Langadalsá til að fara í Hvannadalsárhúsið.
Umgegnisreglur: Veiðimenn mega koma í húsið 1 klst fyrir veiðitíma og skal húsið rýmt einni klst eftir að veiðitíma líkur. Munið að ræsta og hreinsa rusl.

Allur aðbúnaður er til staðar í húsinu.
Veiðikort: Fáanlegt á www.agn.is
Veiðibók: Er í veiðihúsinu.
Bókanir og nánari upplýsingar:
Stefán Sigurðsson, skrifstofa Lax-á, s: 531 6100 eða stefan@lax-a.is
Netsala smella hér
SKOÐIÐ FLEIRI MYNDIR AF ÁNNI UNDIR MYNDAALBÚM EFST Á SÍÐUNNI
