Hróarslækur
Hróarslækur
Hróarslækur rennur í Ytri Rangá skammt neðan Ægissíðufoss og er talsvert vatnsfall, áhöld eru um hvort orðið lækur eigi við. Raunar heitir hann Selalækur þar sem rennur í Ytri, veiðimenn þaðan kannast eflaust við Selalækjarós. Ósinn við Ytri Rangá fylgir veiðileyfum í Hróarslæk en þar hefur oft verið mjög góð veiði. Veiðimörk eru kyrfilega merkt og er eingöngu leyfilegt að veiða með flugu í ósnum.

Hentar einstaklega vel fyrir einhenduna
Hróarslækur er lindá og heldur því nokkuð jöfnu vatni allt sumarið, en vatnið er kalt – eins og í Ytri. Í Hróarslæk veiðast urriði, bleikja og lax, í mismiklum mæli þó. Undanfarin ár hefur laxveiði í læknum verið á uppleið, árleg veiði verið frá 250 löxum og upp í rúmlega 400 laxa. Eins veiðist eitthvað af urriða í Hróa og rígvænar bleikjur inn á milli. Fjórar stangir eru í ánni og fylgir húsið að Selalæk með leyfum sem veiðihús.
Mynd tekin í mars 2012
Hróarslækur (10.júlí-15.október)
Veiðisvæði: Öll áin þar með talinn ós Hróarslækjar og Rangár að veiðimörkum. Áin er um 8 km löng.
Tímabil: 10.07 – 20.10 Daglegur veiðitími: 10. júlí – 15. ágúst kl. 7-13 og 16-22 daglega, 16. ágúst – 30. september kl. 7-13 og 15-21. Í október má veiða frá klukkan 08.00 - 20.00. Fjöldi stanga:4
Leyfilegt agn: Fluga og maðkur og spónn, eingöngu fluga við ósa Ytri Rangá Veiðifyrirkomulag: Allt agn leyfilegt nema við ós Ytri Rangár, þar má eingöngu veiða á flugu.
Vinsælar flugur: Rauð og svört Frances, Blue Charm, Snælda
Veiðihús: Veiðihúsið er gamli bærinn að Selalæk, rétt ofan við ármót Hróarslækjar og Ytri Rangár. Í húsinu eru 4 svefnherbergi og svefnpláss fyrir 10 manns
Hvað þarf að taka með sér: Svefnpoka/rúmföt og baðhandklæði, tuskur, viskastykki.
