Ferjukotseyrar
.
Ódýr og frábær kostur fyrir þá sem vilja skreppa stutt frá Reykjavík
Þeir eru ófáir laxarnir sem ganga í gegnum ferjukotseyrarnar, en allur laxinn sem gengur í Grímsá, Norðurá, Þverá/Kjarrá, Gljúfurá ofl. straujar í gegnum Ferjukotseyrarnar áður en þeir ná leiðarenda. Því er býsna góð von á þeim silfraða. Besti veiðitíminn er í kringum stóru straumana þegar mest af laxinum gengur. Þegar líður á júlí fer einnig að bera á sjóbirtingi.
Staðsetning: Borgarfjörður 85 km frá Reykjavík.
Veiðisvæði: Vesturbakki Hvítár í landi Ferjukots, frá brú og upp að veiðimörkum Strauma (vel merkt).
Stangarfjöldi: 2 stangir, seljast saman.
Tímabil: 1. júní – 30. september
Daglegur veiðitími:
7–13 og 16–22 (1. jún. – 20. ág.)
7–13 og 15–21 (21. ág. – 31. ág.)
Leyfilegt agn: Fluga, maðkur og spónn.
Veiðitæki: Einhenda 9 –10”, flotlína 6-8. Tvíhenda 13-15”, flotlína 9-11.
Bestu flugur: Gárutúbur, Blue Charm, Hairy Mary, rauður og svartur Francis, Black Sheep og Munroe Killer.
Staðhættir og aðgengi: Mjög gott, fólksbílafært.
Veiðihús: Nei.
Umsjónarmaður/veiðivörður: Þorkell Fjeldsted í Ferjukoti s. 437 0082.
Veiðikort: Fáanlegt á www.agn.is
Veiðibók: Veiðimenn eru beðnir um að koma daglega við í Ferjukoti og hjá Þorkeli Fjeldsted til að skrá allan afla.
Bókanir og nánari upplýsingar: Smella hér
SKOÐIÐ FLEIRI MYNDIR AF ÁNNI UNDIR MYNDAALBÚM EFST Á SÍÐUNNI
