Brynjudalsá
Brynjudalsá
Lítil en gjöful laxveiðiperla í nágrenni Reykjavíkur
Það er helst að menn kvarti yfir fáum veiðistöðum í Brynjudalsá, en hvílík sjón á þessum stöðum! Brynjudalsá er afar falleg á og getur verið glettilega gjöful. Hún er ekta á til að skreppa í dag og dag, eða part úr degi. Enda nota menn hana mikið þannig og oft er hægt að fá lausa daga með litlum fyrirvara. Hún er því mikilvæg til að "fylla upp í eyður" á veiðisumrinu, brúa bilið þegar menn fara að iða í skinninu og átta sig á því að þeir hafa haft allt of langt á milli veiðitúra.
Staðsetning: Hvalfjörður um 45 km frá Reykjavík.
Veiðisvæði: 1,5 km neðan fossa. 8 km ofan fossa.
Stangarfjöldi: 2 stangir – seldar saman.
Tímabil: 24. júní – 25. september.
Daglegur veiðitími:
7–13 og 16–22 (24. jún.–20. ág.)
7–13 og 15–21 (21. ág.– 25. sept.)
Meðalveiði: 140 sl. 4 ár
Meðalvigt: 5 pund.
Leyfilegt agn: Fluga og maðkur.
Veiðitæki: Einhenda 9–10”, flotlína 6-8.
Bestu flugur: Gárutúbur, Blue Charm, Hairy Mary og Munroe Killer.
Staðhættir og aðgengi: Brynjudalsá er lítil og viðkvæm á og þurfa veiðimenn að fara mjög varlega að henni eigi góður árangur að nást. Fólksbílafært er að öllum bestu veiðisvæðum árinnar.
Veiðihús: Lítill, mjög gamall kofi sem geymir eingöngu veiðibókina.
Umsjónarmaður: Friðrik D. Stefánsson, s. 661 4500.
Veiðikort: Fáanlegt á www.agn.is
Veiðibók: Í litla kofanum. Veiðimenn eru beðnir um að skrá afla daglega.
Bókanir og nánari upplýsingar:
Stefán Sigurðsson, skrifstofa Lax-á, s: 531 6100 eða stefan@lax-a.is
Netsala smella hér

Fallegar myndir frá Brynjudalsá

Bókanir og nánari upplýsingar:
Stefán Sigurðsson, skrifstofa Lax-á, s: 531 6100 eða stefan@lax-a.is
Netsala smella hér
SKOÐIÐ FLEIRI MYNDIR AF ÁNNI UNDIR MYNDAALBÚM EFST Á SÍÐUNNI
