Blanda IV

Blanda svæði 4 er eitt besta geymda leyndarmálið í laxveiði. - Breytt fyrirkomulag fyrir 2011 - Eingöngu fluga frá 10. júlí fram að yfirfalli.

BLANDA SVÆÐI IV

B47

Blanda Svæði 4 er lítil bergvatnssá sem á í raun ekkert sameiginlegt með sjálfri Blöndu nema að renna í gamla árfarveigi hennar. Þangað til Blanda fer á yfirfall þá rennur hluti Blöndu í gamla árfarveiginum. Blanda svæði 4 geymir glæsilega veiðistaði í bæði hröðu vatni og stórum hyljum með hægara rennsli.

B48

Veiðisvæði Blöndu 4 nær frá stíflu og niður að til og með Litlaklifi, veiðistað númer 1. Svæðið frá stíflu að Rugludalshyl sem er númer 18 er ómerkt og lítt kannað en veiðimerkingar hefjast við Rugludalshyl.

Blanda sv 4 Ingi

Staðsetning: Norðvesturland. Blanda rennur í gegnum Blönduós, um 270 km frá Reykjavík.

Veiðitæki: Fluga, maðkur og spúnn til 10 júlí og Engöngu fluga frá 11 júlí Fram að yfirfalli. Lax-á hvetur veiðimenn til að sleppa stórlaxi í öllum tilfellum, einnig þar sem það er ekki skylt.

Veiðitími: 20. júní - 20. sept.

Stangarfjöldi: 3

Veiðikort: Hægt að nálgast á www.agn.is

Veiðibók: Í veiðihúsinu á Eiðstöðum

B416

Veiðihús: Eiðsstaðir. Húsið er mjög rúmgott með tveimur stofum og eldhúsi á neðri hæð og fjórum herbergjum með 6 rúmum á efri hæð. Gasgrill er á staðnum.

B414

Umgegnisreglur: Veiðimenn mega koma í húsið 1 klst fyrir veiðitíma og skal húsið rýmt einni klst eftir að veiðitíma líkur. Munið að ræsta og hreinsa rusl.

Hvað þarf að taka með sér: Svefnpoka/sængur, baðhandklæði, tuskur og viskastykki.

Umsjónarmaður: Skrifstofa Lax-á ehf s: 531 6100.


Bókanir og nánari upplýsingar:

Stefán Sigurðsson, skrifstofa Lax-á, s: 531 6100 eða stefan@lax-a.is
Netsala smella hér

RIMG0002

Veiðistaðir í Blöndu IV:

(samkvæmt bókinni Blanda og Svartá eftir Gísla Pálsson ofl. 2003)

 

18)  Rugludalshylur:  Þarna getur safnast saman nokkuð af silungi og þarna er afbragðs fluguveiðistaður.

17)  Fálkahylur:  Nettur hylur sem lætur lítið yfir sér.

16)  Stykilhylur:   Sérkennilegt berg rís upp úr hylnum að austanverðu og gerir hylinn dulúðugan.

15)  Kirkjuhylur í Þramarlandi:   Fallegur hylur í stórbrotnu landslagi.

Athugasemd

14)  Hvammahylur að austan:   Þetta er stór hylur og er tökustaður ofantil þar sem gróft grjót er í botninum.

13)  Nefhylur:  Lax hefur sést liggja við stein neðan við sjálfan hylinn.

12)  Langhylur:   Langhylur er djúpur hylur, með þrengingu í miðjunni.  Nokkuð er um silung í þessum hyl.

11)  Hvítaneshylur:  Lax heldur sig upp með kanti sem er undir yfirborðinu upp hylinn að norðanverðu en silungurinn heldur heldur sig í pottinum að sunnanverðu.  Hylurinn er skammt sunnan við túnið á Eldjárnstöðum.

10)  Krókur:  Hylur í krók neðan hvítaneshyls.

9)   Þegjandi: Hylur við túnfótinn á Eldjárnstöðum sunnanverðan.

8)  Stekkjarhamrahylur austan: Einn fallegasti hylurinn í Blöndu, fjölbreyttur og vandveiddur. Getur geymt mikið af fiski án þess að maður verði hans var.

7)   Klifhylur: Farið er aðf veginum miðja leið niður til Eldjárnsstaða. Bratt klif er í skarði niður að ánni, en hægt að fara neðra  og upp með ánni.

6)   Bjarghylur: Áin rennur með bjari að austanverðu og myndar hyl.

5)   Kálfhagahylur austan: Djúpur hylur upp með kletti.

4)   Brík efti og neðri (Einbúi): Gjöfulir á lax og silung, nokkuð djúpir og vandveiddir.

3)   Brot: Fiskur í göngu stoppar þarna, lítill hylur við austanmegin

2)   Breiðan: Straumlítill hylur en stór, hentugt að nota flugu með léttsökkvandi línu.

1)   Litlaklif: viðkvæmur staður og hentugur fyrir fluguveiði með flotlínu.

 

Bókanir og nánari upplýsingar:
Stefán Sigurðsson, skrifstofa Lax-á, s: 531 6100 eða stefan@lax-a.is
Netsala smella hér

 

 

 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

1

28.3.2012 : Vorljóð frá Sveini á Galtalæk

Vinur okkar og landeigandi á Galtalæk Sveinn Sigurjónsson sendi okkur fallegt vorljóð sem varð til í gærkvöldi. Afar skemmtilegt ljóð í tilefni vorkomu og þess að veiði hefst í Galtlæk eftir einungis nokkra daga.

Lesa meira
 
DSC00337

19.3.2012 : Kúba - Paredon 21-28. apríl

Eigum lausar tvær stangir á besta tíma á Kúbu fyrir Tarpon, Bonefish og Permit veiðar. Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Árna arnibald@lax-a.is eða í GSM 898 3601.

Lesa meira
 
Axeló á Hreindýri8

20.2.2012 : 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða

Umhverfisstofnun hefur borist 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða. Endanlegur fjöldi er ekki enn ljós þar sem einhverjar umsóknir gætu verið á leiðinni í pósti. Heimilt verður að veiða 1009 dýr. Þegar allar umsóknir verða komnar í hús verður farið yfir þær með tilliti til hvort allir sem sækja um leyfi hafi tilskilin réttindi. Dregið verður úr gildum umsóknum í lok febrúar.

Lesa meira
 
4

16.2.2012 : Laxasetur Íslands óskar eftir aðstoð

Laxasetur Íslands opnar í sumar. Af því tilefni vantar okkur gamla muni sem tengjast lax- og silungsveiði á Íslandi. Munirnir verða til sýnis á setrinu ásamt upplýsingum um uppruna og sögu. Við leitum eftir munum ýmist gefins eða að láni.

Nánari upplýsingar veita verkefnastjórar sýningarinnar, Helga og Kristín hjá mekt.menningarmidlun@gmail.com

Lesa meira
 
RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 
kertasnikir[1]

28.12.2011 : Vinningshafar í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á

Búið er að draga úr seldum gjafabréfum í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á en þrír stórir vinningar voru í boði ásamt fimm ársáskriftum að Sportveiðiblaðinu. Góð sala var á gjafabréfum fyrir Jól og voru því mörg nöfn í pottinum. Búið er að hafa samband við vinningshafa og þökkum við öllum fyrir þáttökuna og óskum vinningshöfum innilega til hamingju.

Lesa meira
 
p15

19.12.2011 : Að hamfletta rjúpur

Nú styttist í Jólin og margir eflaust búnir að skjóta sér rjúpur jólamatinn. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga góða að til að kenna þeim handtökin við að hamfletta rjúpurnar. Til að stytta mönnum tímann við að leita að leiðbeiningum ákváðum við að safna saman nokkrum tenglum þar sem þessi handtök eru kennd.

Lesa meira
 
pottaskefill[1]

15.12.2011 : Jólastemning hjá Lax-á

Jóla-Gjafabréfaleikur Lax-á er í fullum gangi og gjafabréfin rjúka út eins og heitar lummur þessa daganna. Mögulegt er að kaupa gjafabréf frá 5000 til 500.000 og fylgja góðar gjafir með gjafabréfunum ásamt því að þú átt möguleika á að vinna veglega vinninga.

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar