Stóra Laxá
Stóra Laxá

Stóra Laxá í Hreppum skipar sérstakann sess í hugum og hjörtum flestra veiðimanna á Íslandi, enda vart hægt að finna fegurri á hérlendis og þó víðar væri leitað.
Stóra Laxá á upptök sín á suðurlandshálendinu og rennur í Hvítá við bæinn Iðu, rétt neðan samruna við Litlu Laxá. Áin skiptist í 4 svæði en svæði 1 og 2 eru seld saman og deila húsi, sér veiðihús fylgir með leyfum á svæði 3 og eins er með svæði 4.
Fyrir sumarið 2011 voru gerðar nokkrar breytingar á veiðifyrirkomulagi í þessari fallegu á og er það von okkar að þær muni stuðla að vexti og viðgangi laxastofns árinnar, sérstaklega er okkur umhugað um að verja stórlaxinn í ánni. Munu þær áfram gilda fyrir næsta sumar 2012.
Eingöngu verður leyfilegt að veiða á flugu á öllum svæðum árinnar og er skylduslepping á öllum laxi umfram 70 cm, særður lax skal njóta vafans. Veiðmönnum er heimilt að hirða einn smálax á dag á stöng á svæðum 1, 2 og 3 - en öllum laxi skal sleppt á svæði 4.
Veiði í Stóru Laxá undanfarinn ár:
2011 - 795 laxar
2010 - 760 laxar
2009 - 637 laxar
Veiðitímabilið 2012 verður sem hér segir:
Svæði I&II: 20. júní - 30. september (4 stangir)
Svæði III: 20. júní - 30. september (2 stangir)
Svæði IV: 20. júní - 30. september (4 stangir)
Veiðikort eru aðgengileg á www.agn.is
Svæði I&II
Svæðið nær frá ármótum Litlu Laxár að austan og landamerkjum jarðarinnar Iðu að vestan og til og með veiðistaðnum Rauðuskriður.
Veitt er á 4 stangir frá 7 júlí til 30 september. Eingöngu er veitt á flugu.



Veiðihús fyrir svæði I&II er í landi Skarðs sunnan árinnar. Gistirými er fyrir 8 manns í húsinu. Veiðimönnum er heimilt að mæta í hús klukkutíma áður en veiði þeirra hefst og er skylt að skila húsinu hreinu klukkutíma eftir að veiði þeirra lýkur.

Veiðihús fyrir svæði I&II
Svæði III
Svæðið nær frá Sveinsskeri að Undirgangi, að báðum veiðistöðum meðtöldum. Veitt er á 2 stangir frá 7 júlí - 30 september. Eingöngu veitt á flugu.

Heljarþrem á svæði III -

Veiðihús fyrir svæði III er í landi Hlíðar og er gistirými fyrir 4 veiðimenn í 2 svefnherbergjum. Veiðimönnum er heimilt að mæta í hús klukkutíma áður en veiði þeirra hefst og er skylt að skila húsinu hreinu klukkutíma eftir að veiði þeirra lýkur. Athygli er vakin á því að veiðimenn leggja sjálfir til sængur og sængurföt í húsinu.

Veiðihús fyrir svæði III

Eldhús og stofa á svæði III
Svæði IV
Svæðið nær frá og með Bláhyl að ármótum Skillandsár. Veitt er á 4 stangir frá 7 júlí - 30 september - eingöngu er veitt á flugu. Skylt er að sleppa öllum laxi á svæðinu og skal særður lax njóta vafans.




Bláhylur á svæði IV
Veiðihúsið á svæði 4 var allt tekið í gegn vorið 2011 og tókust endurbætur mjög vel. Svefnherbergi voru stækkuð og húsið mikið endurnýjað, þar á meðal eldhús, svefnálma og stofa. Einnig var grindverk lagað á verönd og útihúsgögn komin á veröndina. Frábært hús með 5 herbergjum fyrir 9 manns.
Endurnýjað eldhús í veiðihúsinu á svæði 4
Veiðimönnum er heimilt að mæta í hús klukkutíma áður en veiði þeirra hefst og er skylt að skila húsinu hreinu klukkutíma eftir að veiði þeirra lýkur. Athygli er vakin á því að veiðimenn leggja sjálfir til rúmföt en sænugr eru í húsinu.
