Svartfugl
Komdu á Svartfugls veiðar með Lax-á

Veiðitíminn er frá 1. September til 10.mai ár hvert, en þá er mikilvægt að búa sig vel og kaffisopi með veiðifélögum frammi í stýrishúsi er nauðsynlegur hluti veiðidagsins. En það getur líka verið rjómablíða og báturinn varla haggast á spegilsléttum sjónum..

Veiðin sjálf er merkilegt fyrirbæri eins og þeir þekkja til sem kunna á Svartfuglsveiðar. Oftar en ekki veiða menn vel þó aldrei sé á vísann að róa. Svartfuglaveiði er talsvert eftirsótt meðal erlendra gesta okkar, sem taka dag og dag í þessa veiði samhliða annarri veiði sem þeir koma hingað til að prófa..

Við bjóðum að sjálfsögðu einnig innlenndum skotveiðimönnum að koma með okkur, en báturinn okkar er gerður út frá Keflavík og þess má geta, að vel má hugsa sér að taka saman svartfugl og sjóstangaveiði því gríðarlega öflug fiskimið eru á svartfuglsslóðinni. Afli dagsins getur því orðið býsna fjölbreytilegur og farið vel í frystikistu. Það er skrýtin tilhugsun að þorskur og ýsa geti verið villibráð, en það mun þó rétt vera..þegar þau eru veidd á stöng..
Annars er aflinn að stórum hluta langvía, en einnig álka, teista og skarfar. Með örlitlu fráviki er hægt að komast í talsvert af lunda, en aftur á móti er stuttnefja fremur sjaldgæf í Faxaflóa. Meira af henni norðar. Á vissum árstíma er ekki útilokað að hávella og duggönd geti bæst í pokann. Algengt er að veiðimenn nái 10 til 50 fuglum á dag..

Svartfuglsveiði á vaxandi vinsældum að fagna eins og aðrar skotveiðar á Íslandi. Að fara með okkur er frábær leið til að kynnast þessu frábæra sporti.
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Lax-á fyrir frekari upplýsinga hjá
Árna Baldursson s. 531 6100 arnibald@lax-a.is
Stefán Sigurðsson s. 531 6100 stefan@lax-a.is
