Rjúpnaveiði
Rjúpnaveiði eins og hún gerist best - á svæðum Lax-á
Líkt og með gæsaveiðina, þá hefur Lax-á tryggt sér einkaafnot af öruggum, fjölbreyttum og stórskemmtilegum rjúpnaveiðisvæðum. Svæðum sem bjóða upp á allt það skemmtilegasta við þennan veiðiskap, m.a. að skjóta á flugi í birkiskógum.

Ef þið viljið komast á virkilega GÓÐ veiðisvæði í staðinn fyrir að arka um almenninga með aðra veiðimenn á báðar hendur, hafið þá samband við skrifstofu Lax-á og við greiðum úr málinu fyrir ykkur.

Hér arka veiðimenn á góðri slóð, rjúpan er mikið í birkinu.
Flottar aðstæður til að leyta að rjúpu, gott dæmi um veiðilendur Lax-á.

Hér má sjá veiðimann í dauðafæri, 2 stk steinliggja við topp aðstæður.

Oft þurfa veiðimenn að leggja á sig mikið labb við veiðar, þess vegna er gott að veiða með reyndu starfsfólki Lax-á sem fara með þig á réttar slóðir.

Hér má sjá Stefán Sigurðsson Sölustjóra Lax-á en hann er með reyndari veiðimönnum landsins og þá sjaldan að hann komi tómhentur heim eftir erfiðan dag á veiðum.

Leiðsögumenn Lax-á er ávallt á vel útbúnum bifreiðum því oft þarf að strögglast yfir snjó og urð til að spara sporin.

Og ekki er slæmt að fá sér alvöru T-Bone á grillið eftir langan dag. Hér má sjá Stefán Sigurðsson og Árna Baldursson gera sig klára með steikurnar en þeir eru með þeim færari á grillinu sem sögur fara af....
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Lax-á fyrir frekari upplýsingar:
Árni Baldursson s. 531 6100 arnibald@lax-a.is
Stefán Sigurðsson s. 531 6100 stefan@lax-a.is
