Hreindýr
Hreindýraveiðar á Austurlandi með Lax-á
Það er erfitt að afla hreindýraveiðileyfa á Íslandi, en við reynum eins og við getum og nælum jafnan í nokkur. Vertíð er frá 1.ágúst til 15.september. Hafi menn áhuga á því að komast á hreindýraveiðar á Austurhálendinu þarf að hafa samband eins fljótt og auðið er því þetta eru eftirsóttir bitar sem eru fáir og stoppa stutt.
.jpg)
Hér má sjá fallegt dýr í valnum, ánægður veiðimaður og leiðsögumaður stilla sér upp til vitnisburðar..
.jpg)
Hér er veiðimaður með fullvaxinn Tarf, hornin eru flauelsvaxinn, engin smásmíði, sómir sér vel á vegg.
Vaskur hópur veiðimanna með fallegt dýr, sjáið spjaldið í miðjunni, þetta er stund sem aldrei gleymist..

Glæsileg horn, eitt skot beint í bóginn..
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Lax-á fyrir frekari upplýsingar:
Árni Baldursson s. 531 6100 arnibald@lax-a.is
Stefán Sigurðsson s. 531 6100 stefan@lax-a.is
