Gæsaskytterí
500 hektarar af kornökrum með reyndum leiðsögumönnum skilar árangri...
Stangveiðifélagið Lax-á er búið að undirrita samning um allan gæsaveiðirétt til næstu fimm ára í Gunnarsholti á Rangárvöllum. Um er að ræða hátt í 500 hektara af kornökrum og mun Lax-á hafa fyrirkomulagið á veiðinni svipað og gert er á stórum veiðibúgörðum í USA og Kanada til þess að tryggja að allir sem koma að veiða munu fá besta mögulega veiði og frábæra þjónustu. Axel Gissurarson veiðimaður frá Selfossi hefur gengið til liðs við okkur og mun stýra allri veiði á svæðinu en Axel er sennilega einn af reyndari gæsveiðimönnum sunnanlands.
Fyrirkomulag veiðanna verður með þeim hætti að menn mæta deginum fyrir veiði og hitta leiðsögumann sem fylgir veiðimönnum í ferðinni. Með honum er farið yfir hvernig veiði skal háttað næsta morgunn ásamt því að skoða veiðilendurnar og kortleggja veiðistaðinn. Eftir það er haldið upp í veiðihús þar sem menn geta slakað á í heitum potti og fengið sér gott að borða. Morguninn eftir er farið á fætur klukkutíma fyrir birtingu, borðaður morgunmatur og haldið af stað til veiða. Leiðsögumaðurinn stillir upp gervigæsum og kemur mönnum fyrir í tilbúnum byrgjum. Veitt er allan morguninn og fram til hádegis en veiðidegi lýkur með hádegismat niðri veiðihúsi þar sem menn geta farið yfir veiði dagsins og undirbúið næsta morgun eða heimferð.
Kvóti eru 12 gæsir á hverja byssu hvern dag en hámark fjórar byssur eru leyfðar á svæðinu. Boðið eru uppá að kaupa tveggja daga veiðiholl eða staka morgna en leiðsögumaður fylgir öllum seldum byssum. Veiðimenn gista í veiðihúsinu við Eystri Rangá þar sem boðið uppá afbragðs þjónustu og góðan mat. Stefán Sigurðsson sölustjóri Lax-á mun stýra bókunum fyrir gæsaveiðina á næsta ári og geta menn leitað til hans fyrir frekari upplýsinga eða bókanir á stefan@lax-a.is.

Þetta er rakið tækifæri fyrir bæði vana veiðimenn til að komast inn á betri veiðisvæði en þeir hafa átt kost á til þessa og byrjendur sem skortir ekki viljann en vantar baklandið til að komast inn á góð svæði með reynslumiklum leiðsögumönnum.

Uppsetning og skipulagning gæsaveiðitúra okkar er algerlega fyrsta flokks frá upphafi til enda og ráðgjöfin kemur eingöngu frá þrautreyndum veiðimönnum. Hvaða hlaupvíddd fer best, hvernig fatnaður og hvernig á að bera sig að í alla staði.

Gæsaveiðimönnum fjölgar ár frá ári, það verður alltaf snúnara að finna ný og góð svæði. Undir verndarvæng okkar eru engin slík vandamál.

Ekki draga það lengur að taka upp símann og hringja í okkur, eða senda okkur tölvupóst, því þetta eru vinsælar veiðiferðir og seljast fljótt og vel. Verðið á líka eftir að koma ykkur skemmtilega á óvart, sérstaklega þegar í ljós kemur hvað er innifalið í pakkanum.

Við vonumst til þess að veiðimenn geti fyllt kvótann sinn í hverri veiðiferð en kvótinn eru 15 gæsir á dag. Tegundir sem í boði eru grágæs, heiðagæs og helsingi.

Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Lax-á fyrir frekari upplýsingar:
Árni Baldurson s.531 6100 arnibald@lax-a.is
Stefán Sigurðsson s. 531 6100 stefán@lax-a.is
Jóhann Torfi Ólafsson s. 531 6100 johann@lax-a.is
