Fyrir safnara
Skotveiði fyrir safnara - Öll flóran í ferð með Lax-á

Lax-á hefur lengi boðið upp á sérsniðnar skotveiðiferðir fyrir fuglasafnara. Erlend eftirspurn eftir slíkum ferðum er töluverð en okkur kæmi ekki á óvart þó að innanlands leyndust einstaklingar sem hafa gaman af því að safna fuglshömum og vantar í safnið tegundir sem hægt er að afla með löglegum skotveiðum. Lúri þjóðin á slíkum einstaklingum, lýsum við hér með eftir þeim.

Það eru glettilega margar tegundir sem hægt er að næla sér í fyrir safnið og við höfum sett saman skotveiðitúr sem býður uppá að menn nái allt að 20 tegundum. Veiðitíminn stendur frá 1.september til 15.mars og er ýmist skotið á hefðbundnum gæsatúnum, í tjörnóttu votlendi eða á sjó.

Ef við skoðum þær tegundir sem um ræðir þá eru það gæsategundirnar, helsingi, heiðagæs og grágæs. Nokkrar andategundir, rauðhöfðaönd, stokkönd, urtönd, skúfönd, duggönd og toppönd og sjófuglar eins og langvía, stuttnefja, álka, teista, lundi, toppskarfur og dílaskarfur.

Ekki má gleyma, að á umræddu veiðitímabili er ennfremur hægt að skjóta ýmsar máfategundir sem teljast réttdræpir, t.d. sílamáf og svartbak, einnig kjóa sem er fráleitt allur farinn til suðurhafa þann 1.september. Og ekki má gleyma rjúpunni, hver vill ekki eiga eina slíka á trjágrein innan um fuglasafnið.

Drottningin rjúpan í sínu alflottasta umhverfi, en það getur verið ansi erfitt að ná henni stundum, mikið labb.
Hikið ekki við að hafa samband og leita upplýsinga um skotveiðiferðir fyrir hamsafnara.
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Lax-á fyrir frekari upplýsingar:
Árni Baldursson s. 531 6100 arnibald@lax-a.is
Stefán Sigurðsson s. 531 6100 stefan@lax-a.is
