Sauðnaut

moxkropp

Komdu að veiða Sauðnaut með Lax-á í Grænlandi

Við bjóðum upp á tvennskonar veiðiferðir á Sauðnaut til Grænlands fyrir tímabilið 2011. Annarsvegar að sumarlagi og þá á suður Grænlandi við Ivigtut.  Hinsvegar að vetrarlagi og þá á vesturströndinni í námunda við Kangerlussuag. Veiðitíminn er í seinnipart Júlí og fram í Ágúst en í Mars yfir veturinn.

axelo_saudnaut_1

Framboð veiðileyfa er ekki mikið og þar sem margir sækja í þessa óvenjulegu skotveiði ættu menn að sjá að sér og hafa samband sem allra fyrst. Að skjóta Sauðnaut er ógleymanleg stund og frábær skemmtun, settu þig í samband strax.

axelo_saudnaut_10

Veiðileyfið er fyrir eitt dýr og undantekningarlítið eða -laust þá næst dýrið. Þá nýta margir tækifærið til að skreyta Grænlandsferðina með allskonar útúr snúningum en auðvelt er að komast í frábæra silungsveiði í nágrenninu og margir leggjast auk þess einfaldlega í gönguferðir og útsýnisferðir enda landslag og náttúra þarna með þeim hætti að orð fá því tæpast lýst..

 brattahlíð 2008

Þegar veiðimenn fara til Veiða í Grænlandi eru þeir að setja sig í spor frumbyggja þessa ósnortna lands og upplifa frumstæða menningu sem og aðstæður. Eins og menn vita þá fóru Víkingar forðum eins og Eiríkur Rauði og Leifur heppni á þessar slóðir..

Brattahlíð 2008

Hægt er að sjá frá ferðum þeirra í Bröttuhlíð, hvar og hvernig þeir bjuggu en Árni Jónssen Þingmaður kom þar af stað kynningar verkefni sem þúsundir ferðamanna heimsækja ár hvert..

m3

Veiðiferðirnar eru tvennskonar, annarsvegar gisting í svefnpoka plássum nú eða fulla ferð áfram með allri þjónustu og þá er gist í hinu geysi skemmtilega bæjarfélagi Qaqartoq, eða Juliennehob.  Þar er öll þjónusta til staðar, góðir veitingastaðir og skemmtilegt líf..

axelo_saudnaut_5

Má þar nefna fisk markaðinn þar sem má fá allskonar ferskar afurðir úr sjónum, skinnaverksmiðjuna við höfnina og svo hina klassísku túristaverslun, tourist kontor en þar er gott að versla sér minjagripi úr afurðum villtrar náttúru Grænlands..

 sauðnaut 2008

Ferðin hefst á flugferð frá Reykjavík til Grænlands, þar eru veiðimenn sóttir og þeim keyrt niður á höfn þar sem þeir hitta fyrir bátinn sem þeir nota alla ferðina en alla daganna er ferðast á bát með reyndum skipstjóra og leiðsögumanni.  Frá flugvellinum er um 6 klst sjóferð til Ivigtut þar sem veiðin fer fram..

 m4

Gott er að nota tímann um borð að skoða sig vel um nú og eða hvíla sig eftir flugið. Veiðin fer svo fram næsta dag, og ekki er aftur snúið fyrr en búið er að fella öll dýrin sem átti að ná. það er ávallt 100% árangur á Sauðnautaveiðum.. 

sauðnaut 2008

Það er gott að undirbúa sig vel fyrir svona ferð og því er ekki úr vegi að setja sig í samband sem fyrst við okkur hér á skrifstofunni og fá upplýsingar um túrinn. Veðurfarið er svipað og á Íslandi, en mun stórbrotnari náttúra, allt fullt af ísjökum í kring og eiginlega frekar frumstæðar aðstæður..

 sauðnaut 2008

Það er bráðnauðsynlegt að lifa sig alla leið inn í veiðina eins og sjá má á meðfylgjandi myndum, bera dýrið sjálfur niður úr fjalli á herðunum og fá sér vænan bita af Sauðnauta "sashimi" úr lifrinni og snæða afganginn steiktan á pönnu í brúnni sósu. þá er nauðsynlegt að hafa með sér fleyg af Íslensku Brennivíni til að skola góðmetinu niður að ógleymdum bjórnum..

axelo_saudnaut_12

Og það sama gildir um vetrarveiðitúrana og sumartúranna, að framboð veiðileyfa er ekki mikið og stundum komast færri að en vilja og því er rétt að hafa í huga að hafa samband við okkur hér á skrifstofunni fyrr heldur en seinna..

axelo_saudnaut_13

Þetta er magnaður veiðiskapur í stórkostlegu umhverfi og ekki á hverjum degi sem svona veiðiferð stendur mönnum til boða..

Musk Ox

Allar frekari upplýsingar eru að fá á skrifstofu Lax-á hjá..

 

Axel Óskarsson  axelo@lax-a.is

sími:  531-6100

 

Árni Baldursson  arnibald@lax-a.is

sími: 531 6100

Til baka Senda grein Prenta greinina

 

Sauðnaut


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 
kertasnikir[1]

28.12.2011 : Vinningshafar í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á

Búið er að draga úr seldum gjafabréfum í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á en þrír stórir vinningar voru í boði ásamt fimm ársáskriftum að Sportveiðiblaðinu. Góð sala var á gjafabréfum fyrir Jól og voru því mörg nöfn í pottinum. Búið er að hafa samband við vinningshafa og þökkum við öllum fyrir þáttökuna og óskum vinningshöfum innilega til hamingju.

Lesa meira
 
p15

19.12.2011 : Að hamfletta rjúpur

Nú styttist í Jólin og margir eflaust búnir að skjóta sér rjúpur jólamatinn. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga góða að til að kenna þeim handtökin við að hamfletta rjúpurnar. Til að stytta mönnum tímann við að leita að leiðbeiningum ákváðum við að safna saman nokkrum tenglum þar sem þessi handtök eru kennd.

Lesa meira
 
pottaskefill[1]

15.12.2011 : Jólastemning hjá Lax-á

Jóla-Gjafabréfaleikur Lax-á er í fullum gangi og gjafabréfin rjúka út eins og heitar lummur þessa daganna. Mögulegt er að kaupa gjafabréf frá 5000 til 500.000 og fylgja góðar gjafir með gjafabréfunum ásamt því að þú átt möguleika á að vinna veglega vinninga.

Lesa meira
 
AtlanticSalmonFront

1.12.2011 : Atlantic Salmon Magic

Bókin Atlantic Salmon Magic tekur á spurningum sem hafa nagað laxveiðimenn um langan tíma. Bókin, sem hefur fengið frábæra dóma, gefur góða innsýn inní hegðun laxins en höfundur reynir að svara spurningum eins og afhverju tekur laxinn fluguna? og hvað sér laxinn? Nú er hægt að nálgast hana á vefnum í gegnum vefverslun FishandFly.com en DVD diskur fylgir með hverri bók. Hluti af hverju seldu eintaki rennur hluti til NASF (North Antlatic Salmon Fund).

Lesa meira
 
RIMG0002

7.11.2011 : Laxasetur Íslands opnar á Blönduósi

Laxasetur Íslands, sýningar- og fræðasetur um íslenska laxinn verður opnað á Blönduósi í sumar. Undirbúningur fyrir opnunina er nú í fullum gangi.

Í Laxasetri Íslands verður hægt að finna ýmislegt efni er tengist íslenskum laxfiskum. Þar verða til að mynda upplýsingar um laxveiðiár, sögu laxveiða og rannsóknir.

Lesa meira
 

1.11.2011 : Fyrirlestur um stíflur í ám og áhrif þeirra á fiskistofna

Fyrirlestur um stíflur í ám og tilraunir til að greiða för sjógöngufiska á áhrifasvæðum stíflumannvirkja verður haldinn í Háskólabíói, Sal 2, kl. 11:50 – 13.20, fimmtudaginn 3. nóvember 2011.

Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, Stofnunar Sæmundar fróða og NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna.

Lesa meira
 
minkurinn

19.10.2011 : Pólverjar sækja í smiðju Íslendinga varðandi þekkingu á mink

Nýverið sótti pólskur minka sérfræðingur Náttúrustofuna heim í þeim tilgangi að afla gagna um rannsóknir, löggjöf, veiðistjórnun, veiðar og ræktun minka á Íslandi. Um var að ræða líffræðinginn Jakub Skorupski, sem starfar við Tækniháskóla Vestur-Pommern í Szczecin í Póllandi og er jafnframt verkefnastjóri hjá samtökunum Baltic Green Belt.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar