Hreindýr

Komdu að veiða Hreindýr á Grænlandi með Lax-á

Grænland er sannkölluð veiðiparadís og hefur Lax-á nú tryggt sér einkarétt á hreindýraveiði á suðvesturströnd Grænlands til næstu 20 ára. Veiðisvæðið er gríðarlega stórt, dýrin dreyfast á um 500 ferkílómetra svæði og fylgir stangveiði í ám og vötnum með. Hreindýrakvótinn okkar er allt að 300 dýr á sumri og mikið er af stórum og fallegum törfum á svæðinu. Flogið er frá Reykjavík til Narsassuaq en þaðan er veiðimenn fluttir sjóleiðis í veiðibúðir okkar.

6Agust2012

Hér má sjá nýjar veiðibúðirLax-á - fyrstu varanlegu veiðibúðir á Grænlandi

Sumarið 2012 reisti Lax-á glæsilegar veiðibúðir á miðju veiðisvæði okkar. Búðirnar samanstanda af 12 svefnskálum, Matarskála og eldhúsi, salernis og strutuhúsum, bryggju og svo mætti áfram telja. Þetta eru fyrstu veiðimannabúðir af þessum toga í Grænlandi og var vandað vel til verka. Leiðsögumenn og bátar eru til taks í búðunum og flytja veiðimenn á milli eyja og fjarða, bæði til skot- og stangveiða.

Veiðimenn geta síðan tekið með sér kjöt tilbaka að fengnu leyfi frá Sjávarútvegs- og Landbúnaðarráðuneytinu og uppfylltum skilyrðum Tollyfirvalda og mun Lax-á annast milligöngu um það sé eftir því óskað. Fyrir hvert dýr fá veiðimenn 10 kíló af besta kjötinu (læri, lundir og hryggvöðvar), stimplað og vottað – tilbúið til innflutning til Íslands. Taka skal fram að veiðimenn þurfa að tollafgreiða 7kg og borga af þeim gjöld.

1Agust2012

5Agust2012

Veiðimöguleikar á Grænlandi eru gríðarmiklir, fyrir utan hreindýrin má nefna sauðnaut, seli, æðarfugla ásamt bleikjuveiði og strandveiði. Upplagt er fyrir veiðimenn að grípa í veiðistöngina þegar hreindýraveiði er lokið dag hvern, það er aldrei langt í næsta frábæra hyl. Vaxandi áhugi er fyrir bogveiði hérlendis, en því miður eru slíkar veiðar ekki leyfðar á Íslandi – á Grænlandi hefur bogveiði einnig verið bönnuð en fyrir þjóðþingi liggur nú frumvarp sem heimilar bogveiði, vonir standa til að frumvarið fari í gegn veturinn 2012-2013. Mikið af gljúfrum, klettum og gjótum sem nota má sem felustaði eða laumast að bráð.

2Agust2012

groenÁ þessum stóru veiðilendum okkar eru óteljandi ár og vötn sem hreinlega fyllast af bleikju yfir sumartímann. Bleikjan byrjar að safnast í árósana í byrjun júlí og um miðjan mánuðinn byrjar hún að ganga upp í árnar. Besta veiðin er jafnan í ám sem tengja vötnin við sjó og í vötnunum sjálfum en einnig getur verið fantagóð veiði meðfram strandlengjunni allri.

13Agust2012

4Agust2012

10Agust2012

Veiðimenn sjá um sig sjálfir að miklu leyti í Grænlandi, elda sér sjálfir mat og koma með sína eigin svefnpoka/sængur og sængurföt. Gera má ráð fyrir því að uppistaðan í hráefni til matargerðar verði fengin á staðnum (bleikja, sjávarfang) en ráðlegt er að taka með sér einhverjar vistir frá Narsaq/Qaqortoq. Á staðnum er þó e-ð meðlæti sem veiðimenn hafa aðgang að (hrísgrjón, kartöflur o.s.frv.) Leiðsögumenn og bátar verða að sjáfsögðu á staðnum og leiðsegja mönnum í skotveiðinni og flytja á milli staða.

Hafið samband við sölumenn Lax-á til að fá frekari upplýsingar.

Stefán Páll Ágústsson - spall@lax-a.is

sími: 531 6100


Til baka Senda grein Prenta greinina

 

 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

DEE511

1.11.2012 : Dádýraveiði í Skotlandi

Við Hjá lax-á getum núna boðið uppá Roebuck veiði í Skotlandi en Roebuck eru lítil dádýr sem eru stygg og mjög skemmtileg að veiða. Veiðitímabilið byrjar í Apríl og endar í Oktober með einhverjum stefan@lax-a.is Lesa meira
 
DSC01863

30.10.2012 : Grænland 2013

Töluvert er um að menn séu byrjaðir að skoða Grænland fyrir næsta sumar en Grænland sló rækilega í gegn í fyrrasumar. Nýja veiðihúsið er hið glæsilegasta og hefur vakið mikla kátínu Lesa meira
 
Heklubyggd1(7)

13.7.2012 : Sumarhús í Heklubyggð til leigu

Við erum með tvö glæsilega sumarhús til leigu í Heklubyggð, landi Svínhaga við Ytri Rangá. Bústaðirnir eru byggðir á árunum 2004 til 2008 og eru mjög vel útbúnir. Báðir bústaðir eru vel útbúnir. Lesa meira
 
1

28.3.2012 : Vorljóð frá Sveini á Galtalæk

Vinur okkar og landeigandi á Galtalæk Sveinn Sigurjónsson sendi okkur fallegt vorljóð sem varð til í gærkvöldi. Afar skemmtilegt ljóð í tilefni vorkomu og þess að veiði hefst í Galtlæk eftir einungis nokkra daga.

Lesa meira
 
DSC00337

19.3.2012 : Kúba - Paredon 21-28. apríl

Eigum lausar tvær stangir á besta tíma á Kúbu fyrir Tarpon, Bonefish og Permit veiðar. Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Árna arnibald@lax-a.is eða í GSM 898 3601.

Lesa meira
 
Axeló á Hreindýri8

20.2.2012 : 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða

Umhverfisstofnun hefur borist 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða. Endanlegur fjöldi er ekki enn ljós þar sem einhverjar umsóknir gætu verið á leiðinni í pósti. Heimilt verður að veiða 1009 dýr. Þegar allar umsóknir verða komnar í hús verður farið yfir þær með tilliti til hvort allir sem sækja um leyfi hafi tilskilin réttindi. Dregið verður úr gildum umsóknum í lok febrúar.

Lesa meira
 
4

16.2.2012 : Laxasetur Íslands óskar eftir aðstoð

Laxasetur Íslands opnar í sumar. Af því tilefni vantar okkur gamla muni sem tengjast lax- og silungsveiði á Íslandi. Munirnir verða til sýnis á setrinu ásamt upplýsingum um uppruna og sögu. Við leitum eftir munum ýmist gefins eða að láni.

Nánari upplýsingar veita verkefnastjórar sýningarinnar, Helga og Kristín hjá mekt.menningarmidlun@gmail.com

Lesa meira
 
RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar