Flash skjal

Grænland

Komdu með Lax-á á framandi slóðir - Villt og óspillt náttúra Grænlands

Lax-á býður upp á marga kosti í til veiða í Grænlandi, t.d. má þar nefna hina sívinsælu bleikjuveiði í öllum regnbogans litum. Við bjóðum upp á marga spennandi valkosti í Suður Grænlandi, fjöldann allan af vötnum og ám sem gríðarlega spennandi er að veiða í. Einnig veiðist vel í sjónum þegar þurrkar steðja að en veiðimenn fara oft að veiða þorsk sér til skemmtunar með bleikjuveiðinni..

bleikjuveiði 2008

Hreindýra veiðar eru stórkostleg skemmtun og ef eitthvað er mun skemmtilegri en hér heima á klakanum. Mikið er af dýrum á Grænlandi og veiðisvæðið annsi spennandi. Farið er til veiða á bátum og svo er læðst að dýrunum þegar búið er að finna þau frá sjó.  Dýrin eru stór og falleg, gaman er að eiga stund með frændum vorum á kvöldin og kynnast siðum þeirra og háttum. Skoðaðu fleiri upplýsingar undir hreindýr hér til hliðar..

axelo

Sauðnauts veiðar eru sennilega hvað mest spennandi, og þó, dæmi hver fyrir sig með það.  Þau geta verið frá 315 kg til 480 kg, sem sagt engin smásmíði og það er óborganlegt að fá að taka þátt í slíkum veiðum.  Farið er á bát á veiðarnar og leitað frá sjó en svo tekur skemmtilegur og spennandi feluleikur við..

axelo_saudnaut_1

En þar þurfa veiðimenn að tjalda öllu sínu besta til og komast í skotfæri, í lok dags snæða menn svo Sauðnauts lifur "sashimi" og steikja líka á pönnu með brúnni sósu, þá getur verið gott að eiga til pela af Íslensku Brennivíni og skála að víkingasið..

axelo_saudnaut_12

Grænland er stórfenglegt land og náttúran þar lætur engan ósnortin. Þó að Grænland sé okkar nágranni og stutt á milli, þá er ásjóna landsins vægt til orða tekið ólík. Það gerir helst, að ríkjandi bergtegundir eru ekki gamla forna blágrýtið eins og á Vest- og Austfjörðum, og móberg í miðjunni, heldur ákveðnar tegundir djúpbergs eins og gabbró, granófýr og granít. Fjöll úr djúpbergi eru tindóttari, skarpari og oft hærri en gömlu þéttu og reglulegu blágrýtirfjöllin sem við þekkjum..

 bátur 2008

Á einum stað hér á landi hafa menn þó smjörþef af þessu, en það er í nágrenni Hafnar í Hornafirði þar sem Eystra og Vestara Horn setja svip sinn á nánasta umhverfið. Þetta gerir umhverfi Grænlands svo tröllslegt sem raun ber vitni. Þá er sjórinn ómengaður, grænn og blár og djúpur, menn sigla innan um ísjaka, hlíðar dalanna eru kjarri vaxnar og dalbotnar umvafðir eyrarrós og öðru blómskrúði. Alger paradís..

Brattahlíð 2008

Allur aðbúnaður á Grænlandi er til fyrirmyndar og auðvitað pínulítið hrár en öll aðstaða er mjög góð.  Matur er framandi, svolítið danskur fílingur en skilar manni ávallt söddum og glöðum í koju.  Við bjóðum uppá mismunandi gistimöguleika eða allt frá gistiskálum þar sem menn sjá um sig sjálfir upp í fínustu aðstöðu á hóteli með öllu inniföldu.. 

þorskveidi 2008

Lítið er um vegi á Grænlandi svo allt ferðasnið er á bátum sem taka 4-6 pers, því er gott að miða stærð hópa við það.  Leigubílar ganga allan sólarhringinn í þorpunum en þeir eru álíka dýrir og samsvarandi þjónusta í stórborgum Evrópu..

Brattahlíð 2008

Veðurfar getur verið misjafnt en á veiðitíma sem er frá miðjum Júlí fram í miðjan september er yfirleitt gott hitastig og temprað veðurfar.  Það er samt ávallt gott að hafa með sér meira af fatnaði heldur en minna og erfitt getur reynst að verða sér út um slíkt þegar komið er á veiðislóð.  Öll verð á Grænlandi er í dýrari kantinum á fatnaði, mat, drykkjum, gistingu og áfengi..

bleikjuveiði 2008

Gott símasamband fyrir Gsm kerfi er  til staðar í þorpunum flestum en lítið er um tölvusamband svo ef þú þarft að vera tengdur á meðan dvöl þinni stendur þá er gott að láta okkur vita af því fyrirfram..

92700016

Allar frekari upplýsingar eru að fá á skrifstofu Lax-á.. Góða ferð..

Axel Óskarsson  axelo@lax-a.is

Tel: 531-6100

 

Árni  Baldursson  arni@lax-a.is

Tel: 531-6100

 

 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 
p7

12.1.2012 : Ungfugl tveir þriðju af veiðinni

Náttúrufræðistofnun hefur aldursgreint tæpar tvöþúsund rjúpur sem veiddar voru á síðasta tímabili. Flestar þeirra komu á Norðausturlandi, 682 talsins, svo Norðvesturlandi 417 en minnst af Suðurlandi 91. Alls veiddust 1295 ungfuglar en 651 fullorðnir.

Lesa meira
 
kertasnikir[1]

28.12.2011 : Vinningshafar í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á

Búið er að draga úr seldum gjafabréfum í Jóla-Gjafabréfaleik Lax-á en þrír stórir vinningar voru í boði ásamt fimm ársáskriftum að Sportveiðiblaðinu. Góð sala var á gjafabréfum fyrir Jól og voru því mörg nöfn í pottinum. Búið er að hafa samband við vinningshafa og þökkum við öllum fyrir þáttökuna og óskum vinningshöfum innilega til hamingju.

Lesa meira
 
p15

19.12.2011 : Að hamfletta rjúpur

Nú styttist í Jólin og margir eflaust búnir að skjóta sér rjúpur jólamatinn. Það eru ekki allir svo heppnir að eiga góða að til að kenna þeim handtökin við að hamfletta rjúpurnar. Til að stytta mönnum tímann við að leita að leiðbeiningum ákváðum við að safna saman nokkrum tenglum þar sem þessi handtök eru kennd.

Lesa meira
 
pottaskefill[1]

15.12.2011 : Jólastemning hjá Lax-á

Jóla-Gjafabréfaleikur Lax-á er í fullum gangi og gjafabréfin rjúka út eins og heitar lummur þessa daganna. Mögulegt er að kaupa gjafabréf frá 5000 til 500.000 og fylgja góðar gjafir með gjafabréfunum ásamt því að þú átt möguleika á að vinna veglega vinninga.

Lesa meira
 
AtlanticSalmonFront

1.12.2011 : Atlantic Salmon Magic

Bókin Atlantic Salmon Magic tekur á spurningum sem hafa nagað laxveiðimenn um langan tíma. Bókin, sem hefur fengið frábæra dóma, gefur góða innsýn inní hegðun laxins en höfundur reynir að svara spurningum eins og afhverju tekur laxinn fluguna? og hvað sér laxinn? Nú er hægt að nálgast hana á vefnum í gegnum vefverslun FishandFly.com en DVD diskur fylgir með hverri bók. Hluti af hverju seldu eintaki rennur hluti til NASF (North Antlatic Salmon Fund).

Lesa meira
 
RIMG0002

7.11.2011 : Laxasetur Íslands opnar á Blönduósi

Laxasetur Íslands, sýningar- og fræðasetur um íslenska laxinn verður opnað á Blönduósi í sumar. Undirbúningur fyrir opnunina er nú í fullum gangi.

Í Laxasetri Íslands verður hægt að finna ýmislegt efni er tengist íslenskum laxfiskum. Þar verða til að mynda upplýsingar um laxveiðiár, sögu laxveiða og rannsóknir.

Lesa meira
 

1.11.2011 : Fyrirlestur um stíflur í ám og áhrif þeirra á fiskistofna

Fyrirlestur um stíflur í ám og tilraunir til að greiða för sjógöngufiska á áhrifasvæðum stíflumannvirkja verður haldinn í Háskólabíói, Sal 2, kl. 11:50 – 13.20, fimmtudaginn 3. nóvember 2011.

Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, Stofnunar Sæmundar fróða og NASF, Verndarsjóðs villtra laxastofna.

Lesa meira
 
minkurinn

19.10.2011 : Pólverjar sækja í smiðju Íslendinga varðandi þekkingu á mink

Nýverið sótti pólskur minka sérfræðingur Náttúrustofuna heim í þeim tilgangi að afla gagna um rannsóknir, löggjöf, veiðistjórnun, veiðar og ræktun minka á Íslandi. Um var að ræða líffræðinginn Jakub Skorupski, sem starfar við Tækniháskóla Vestur-Pommern í Szczecin í Póllandi og er jafnframt verkefnastjóri hjá samtökunum Baltic Green Belt.. Axelo axelo@lax-a.is

Lesa meira
 
labrador

12.9.2011 : Góðir veiðihundar til sölu

Hreinræktaðir brúnir og svartir labradorhvolpar tilbúnir til afhendingar. Frábærir í veiðina, fallegir brúnir og svartir....

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar