Helstu fréttir
Hörkuveiði í Eystri Rangá
Vel hefur veiðst í Eystri Rangá undanfarna daga þó ástundun hafi ekki verið verið mikil. Í gær komu til að mynda 23 laxar á land og greinlega töluverð laxgengd í Eystri. Það má því gera ráð fyrir því að júlíbyrjun verði afar fjörleg í báðum Rangánum.

Nokkrar stangir eru lausar í Eystri í næstu viku, upplýsingar um verð má sjá á www.agn.is eða með því að hafa samband við skrifstofu.
