Helstu fréttir
Risa opnun í Blöndu í morgun - 12 stórlaxar á land!!
Laxveiðin í Blöndu hófst með pomp og prakt í morgun. Eins og undanfarin ár voru Stefán Sigurðsson og Tóti Tönn með í för og því ekki að spyrja að því að veiðin sé góð enda hörkuveiðimenn þar á ferð. Þeir sáu laxa í gærkvöldi skríða inn í damminn og hljóðið var gott í þeim þegar ég kíkti á þá í gær. En að veiðinni í morgun.. Það eru komnir 12 laxar á land, allir á bilinu 10-14 pund, sannkölluð Risaopnun og í raun frábært framhald af metsumrinu í fyrra, við munu fylgjast vel með og láta lesendur vita um leið og eitthvað meira gerist..
Fyrir þá sem hafa beðið með eftirvæntingu hvernig Blanda færi af stað, þá bendi ég á www.agn.is nú er bara að drífa sig af stað og ná sér í daga en örfáar stangir eru lausar í Júní!!
Kveðja
Axelo axelo@lax-a.is
