Helstu fréttir

Island

Við erum ekkert á kafi í ösku!

3.6.2010

Þann 3. júní verður efnt til þjóðarátaks í tengslum við “Inspired by Iceland”, markaðsátak ferðaþjónustunnar á erlendum mörkuðum Ætlunin er að virkja íslenskan almenning og fá fólk til þess að vekja jákvæða athygli á Íslandi undir heitinu Þjóðin býður heim. Átakið minnir á að nú er einmitt  rétti tíminn til að heimsækja landið því það hafi aldrei verið eins lifandi og síbreytilegt.

Tölvupósturinn virkjaður
Skorað er á fólk að senda tölvupóst á vini, kunningja, fjölskyldu og viðskiptafélaga erlendis með slóð á glænýtt og skemmtilegt myndband sem sýnir Ísland sem spennandi áfangastað. Fólk er hvatt til þess sérstaklega að senda tölvupóstinn milli kl. 13.00-14.00 að íslenskum tíma. Þeir sem ekki hafa tök á því að taka þátt á þeim tíma geta samt sem áður sent tölvupóstinn hvenær sem er dagsins og áfram næstu vikurnar! Hægt verður að nálgast tölvupóstinn á www.inspiredbyiceland.is.

Jungle Drum Emiliönu Torrini
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra upplýsti á fréttamannafundi í dag að myndbandið sem fólk yrði hvatt til þess að senda í þjóðarátakinu samanstæði af hressilegum og skemmtilegum myndum af fólki sem dansaði við Jungle Drum, lag og söng Emilíönu Torrini, við ólíkar aðstæður á Íslandi. Þar fléttast saman glettnar svipmyndir og myndskeið frá mörgum fallegustu stöðum landsins. Myndbandið er fjörugt og glaðlegt og til þess fallið að leiðrétta ranghugmyndir um land og borg sem er öskuþakin. Mikilvægt er að koma þeim skilaboðum á framfæri að landið sé opið og aðgengilegt, viðskipti ganga fyrir sig með eðlilegum hætti og þess vegna sé það  rétti tíminn nú um stundir að heimsækja land og þjóð. Hún sagði að myndbandið væri af því tagi að fólk myndi langa til að senda það áfram á Netinu til vina og kunningja í útlöndum.

Hvatt verður til þess af hálfu ríkisstjórnarinnar að fyrirtæki og stofnanir gefi starfsfólki sínu svigrúm, til að áframsenda skilaboðin og slóðina á myndbandið á sína tengiliði þennan dag.

Mikilvægi átaksins
Verkefni af þessu tagi eru fáheyrð og líklega ekki framkvæmanleg víða. Á Íslandi er á hinn bóginn hefð fyrir þjóðarsamstöðu gagnvart náttúruham-förum. Tilgangurinn með þjóðarátakinu er að fjölga ferðamönnum til Íslands, auka gjaldeyristekjur þjóðarbúsins og lágmarka þann skaða sem eldgosið í Eyjafjallajökli olli aðilum hérlendis í ferðaþjónustu og tengdum greinum. Það er því ákaflega mikilvægt að þjóðin taki höndum saman.

Kynningarmál
Til kynningar á verkefninu Þjóðin býður heim – myndbandinu og samskiptum Íslendinga í kjölfarið við sína tengiliði  í framhaldinu – mun Kastljósið á RÚV vera með umfjöllun um átakið miðvikudaginn 2. júní nk. Þar verður átakið og myndbandið kynnt, útskýrt hvernig á að senda það á vini og kunningja erlendis, og viðtöl verða fléttuð inn til að brjóta þáttinn upp. Þar með er átakið sjálft hafið og þjóðin tekur til við að bjóða heim.

Fimmtudaginn 3. júní mun síðan Stöð 2 (Ísland í dag) fylgja átakinu eftir með umfjöllun og viðtölum við fólk og forsvarsmenn fyrirtækja sem hafa sent út myndbandið.

Á allra næstu dögum verður haft samband við lykilaðila innan starfsmanna- og stéttarfélaga, ásamt öðrum félagasamtökum, í þeim tilgangi að virkja félagsmenn til að taka þátt og leggja verkefninu lið. Með þessu móti næst að hámarka þátttöku Íslendinga og í framhaldinu hámarka ávinning átaksins. Miklar gjaldeyristekjur eru í húfi og því í þágu okkar allra að vel takist þegar að því kemur að Þjóðin bjóði heim

 

Kveðja

 

emil@lax-a.is 



Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Póstlistaskráning


Fréttasafn

Arni.

24.5.2013 : 9 góðar ástæður fyrir að fara að veiða

hérna eru 9 góðar ástæður fyrir að skella sér út að veiða.. |nl| |nl|1. Vinnan þín bindur þig inni á skrifstofu allan daginn og þú ert örvæntingafull/ur að komast út í náttúruna, finna hlýju goluna á sumrin og engin betri leið til að gera það en að skella sér út að veiða. Lesa meira
 
DEE511

1.11.2012 : Dádýraveiði í Skotlandi

Við Hjá lax-á getum núna boðið uppá Roebuck veiði í Skotlandi en Roebuck eru lítil dádýr sem eru stygg og mjög skemmtileg að veiða. Veiðitímabilið byrjar í Apríl og endar í Oktober með einhverjum stefan@lax-a.is Lesa meira
 
DSC01863

30.10.2012 : Grænland 2013

Töluvert er um að menn séu byrjaðir að skoða Grænland fyrir næsta sumar en Grænland sló rækilega í gegn í fyrrasumar. Nýja veiðihúsið er hið glæsilegasta og hefur vakið mikla kátínu Lesa meira
 
Heklubyggd1(7)

13.7.2012 : Sumarhús í Heklubyggð til leigu

Við erum með tvö glæsilega sumarhús til leigu í Heklubyggð, landi Svínhaga við Ytri Rangá. Bústaðirnir eru byggðir á árunum 2004 til 2008 og eru mjög vel útbúnir. Báðir bústaðir eru vel útbúnir. Lesa meira
 
1

28.3.2012 : Vorljóð frá Sveini á Galtalæk

Vinur okkar og landeigandi á Galtalæk Sveinn Sigurjónsson sendi okkur fallegt vorljóð sem varð til í gærkvöldi. Afar skemmtilegt ljóð í tilefni vorkomu og þess að veiði hefst í Galtlæk eftir einungis nokkra daga.

Lesa meira
 
DSC00337

19.3.2012 : Kúba - Paredon 21-28. apríl

Eigum lausar tvær stangir á besta tíma á Kúbu fyrir Tarpon, Bonefish og Permit veiðar. Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Árna arnibald@lax-a.is eða í GSM 898 3601.

Lesa meira
 
Axeló á Hreindýri8

20.2.2012 : 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða

Umhverfisstofnun hefur borist 4.320 umsóknir um leyfi til hreindýraveiða. Endanlegur fjöldi er ekki enn ljós þar sem einhverjar umsóknir gætu verið á leiðinni í pósti. Heimilt verður að veiða 1009 dýr. Þegar allar umsóknir verða komnar í hús verður farið yfir þær með tilliti til hvort allir sem sækja um leyfi hafi tilskilin réttindi. Dregið verður úr gildum umsóknum í lok febrúar.

Lesa meira
 
4

16.2.2012 : Laxasetur Íslands óskar eftir aðstoð

Laxasetur Íslands opnar í sumar. Af því tilefni vantar okkur gamla muni sem tengjast lax- og silungsveiði á Íslandi. Munirnir verða til sýnis á setrinu ásamt upplýsingum um uppruna og sögu. Við leitum eftir munum ýmist gefins eða að láni.

Nánari upplýsingar veita verkefnastjórar sýningarinnar, Helga og Kristín hjá mekt.menningarmidlun@gmail.com

Lesa meira
 
RISE

7.2.2012 : RISE Kvikmyndahátíð haldin í annað sinn

RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í annað sinn 10. mars næstkomandi í Bío Paradís (Hverfisgötu 54) en hátíðin var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í febrúar á síðasta ári. Hátíðinni var gríðarlega vel tekið og var uppselt á sýninguna í fyrra. Sýningin hefst kl. 20:00 en húsið opna kl. 19:00.

Lesa meira
 
VididalsaRognv2

26.1.2012 : Glæsilegar myndir úr Víðidalsá

Rögnvaldur Guðmundsson stórveiðimaður sendi okkur þessar skemmtilegu veiðimyndir frá því í ágúst síðasta sumar. Hér sést og staðfestist að Víðidalsá er ein af stórlaxa ám Íslands. Þrátt fyrir að Víðidalsá hafi ekki náð sér á strik eins og svo marga aðrar á landinu skilaðu hún allnokkrum stórlöxum á land en hún endaði í 747 löxum.

Lesa meira
 

 

Contact Information

Stangveiðifélagið LAX-Á | Akurhvarfi 16 - 203 Kópavogur | s: 531 6100 f: 557 6108 | lax-a@lax-a.is

NánarMore


 

efnisyfirlit síðunnar